Fréttablaðið - 22.08.2015, Page 34
Frá árinu 1999 hefur Rósa
E g g e r t s d ó t t i r s t a r f a ð s e m
sérfræðingur við skólaþróunarsvið
Háskólans á Akureyri og er
u p p h a f s m a ð u r a ð þ r ó u n
byrjendalæsis fyrir 1.–2. bekk
grunnskóla en sú aðferð hefur
verið tekin upp og kennd í um 80
grunnskólum vítt og breitt um landið.
Rósa lauk kennaraprófi frá KHÍ árið
1982, BA-prófi í sérkennslufræðum
árið 1993 og tveimur árum
seinna lauk hún meistaraprófi í
menntunarfræðum frá Institute of
Education, East Anglia í Cambridge.
Rósa segir það hugsjón sína
að takast á við læsi barna og efla
lestrarkunnáttu. „Samræða og
sköpun með lestur þarf að fá meira
vægi. Mér er í sjálfu sér alveg sama
hvað þessar stefnur heita. Við
þurfum að vinna að því að gera
lestur skemmtilegan og áhugaverðan
fyrir börn og leyfa þeim að skapa í
kringum hann til að öðlast þekkingu
og finna sjálf sig.“
Hljóðaðferðin gamla steingeld
Ástæður þess að Rósa hóf að þróa
nýja aðferð við lestrarkennslu voru
þær að það kveikir ekki nægilega
mikinn áhuga barnanna á lestri
bóka. „Hljóðaðferðin er steingeld
aðferð að mínu mati. Þar fá börnin
einn staf í einu án samhengis og
Rósa er ekki mikill aðdáandi hljóðaðferðarinnar svokölluðu. „Ég er svo sem enginn óvinur hennar, mér finnst hún bara léleg aðferð.“ Fréttablaðið/Auðunn
allra fyrst á skólagöngu sinni. Þegar
börn hefja nám í 1. bekk eru þau
misjafnlega á vegi stödd. Sum þekkja
stafi, önnur eru farin að lesa og svo
er hópur sem þarf að læra alla stafina
og hvernig á að vinna með þá. „Byrj-
endalæsi gerir ráð fyrir því að hægt
sé að kenna börnum sem hafa ólíka
færni í lestri og því er lögð áhersla á
hópvinnu um leið og einstaklings-
þörfum er mætt. Vinna með tal,
hlustun, lestur og ritun er felld í eina
heild,“ segir Rósa.
„Öll þessi ungmenni sem eru að
húrrast niður í samræmdu prófun-
um og PISA-prófum og hvað þau nú
heita, öll þessi próf, langflest þeirra
hafa lært eftir hljóðaðferðinni. Ég er
svo sem enginn óvinur hennar, mér
finnst hún bara léleg aðferð. Það er
ekki mitt takmark að fella einhverja
aðferð, hún verður bara að sanna sig
og standa í lappirnar.“
Rússnesk miðstýring.
Rósa telur það skipta miklu máli að
skólastjórnendur og fagfólk innan
þeirra veggja sem og fræðslustjórar
sveitarfélaga hafi ákveðið frelsi til að
móta og þróa þær kennsluaðferðir
sem kenndar eru innan veggja skól-
anna. Þróun skólastarfs sé mikilvægt
svo þær haldi lífi.
Hins vegar er hún ánægð með að
menntamálaráðherra skuli leggja
ofuráherslu á læsi því þar sé pottur
brotinn. Það sé hins vegar ekki
rétt nálgun ráðherra að ætla sér að
leggja á eina kennsluaðferð sem
eigi að kenna alls staðar. „Hvers
konar land vill hann ef hann ætlar
að fara að stjórna því og skipa fólki
hvernig það á að stýra skólunum og
hvaða aðferðir þeir nota. Þá getum
við eins pantað yfir okkur Kína eða
Rússland, það er bara svoleiðis,“
segir Rósa. „Það veit enginn hvað
vakir fyrir honum en ég trúi ekki
að menntamálaráðherra sé einhver
sérstakur aðdáandi að „Ási sá sól“ eða
„Sísí á ís““.
Þegar við komum að raunprófun
aðferðarinnar telur Rósa engar raun-
prófanir hafa farið fram á neinum
kennsluaðferðum í íslenskum grunn-
Við sem Vinnum Við
þetta höfum yfirlit
yfir hVernig strákum
og stelpum gengur
og höfum skoðað
byrjendalæsi gríðar
lega mikið. Við höfum
gögn sem sýna fram á að
byrjendalæsi Virkar, og
miklu meira en Virkar.
fá ekki vitrænan texta fyrr en eftir
dúk og disk, ég er ekkert á móti
hljóðaðferðinni, mér finnst hún bara
vond aðferð. Við þurfum að huga að
lestraránægju barna á sama tíma og
læsi barna,“ segir Rósa. „Það er engin
áhugakveikja en þekkjandi kennara
þykir mér mjög líklegt að þeir sem
nota hljóðaðferðina noti helling af
öðru kryddi til að bæta námið.“
Hefur ekki haft samband
Í vikunni birti Menntamálastofnun
minnisblað þar sem fullyrt var að
byrjendalæsisstefnan hefði ekki
skilað árangri og að lesskilningi
barna, sem kenndur hefur verið
lestur með þessari aðferð, hafi
beinlínis hrakað. Gagnrýnin felst í
því að hún virki ekki, aðferðin sé ekki
raunprófuð og það sé vilji ráðherra
menntamála að engin kennsluaðferð
fari inn í skólana nema sýnt sé fram á
það með óyggjandi hætti að hún sé
jafn góð eða betri en sú sem fyrir er.
Rósa gefur lítið fyrir minnisblaðið
og segir miðstöð skólaþróunar við
HA mæla árangur nemenda mjög
reglulega. „Við sem vinnum við þetta
höfum yfirlit yfir hvernig strákum
og stelpum gengur og höfum skoðað
byrjendalæsi gríðarlega mikið. Við
höfum gögn sem sýna fram á að
byrjendalæsi virkar, og miklu meira
en virkar. Menntamálaráðherra telur
vanta gögn sem sýnir fram á þennan
árangur en hann hefur ekki talað við
okkur eða falast eftir gögnum, “ segir
Rósa.
Birna María Svanbjörnsdóttir,
forstöðumaður miðstöðvar skóla-
þróunar, hefur bent á annmarka
greiningar Menntamálastofnunar
í bréfi sem hún sendi stofnuninni í
gær. Þar kemur fram að „sú aðferð
sem Menntamálastofnun beitir
hefur þann kost að hún er einföld í
framkvæmd. Hún hefur hins vegar
margvíslega alvarlega galla sem gera
ályktanir minnisblaðsins nánast
marklausar.“
Markmið að auka læsi
Meginmarkmið byrjendalæsis er að
börn nái góðum árangri í læsi sem
Það er ekki
ráðherrans
að velja aðferðir
Rósa Eggertsdóttir er upphafsmaður að þróun byrjendalæsis.
Í vikunni birti menntamálastofnun minnisblað þar sem fullyrt var
að stefnan hefði ekki skilað árangri nemenda. Rósa segist hafa gögn
sem sýni fram á hið andstæða en að menntamálaráðherra hafi
ekki leitast eftir þeim gögnum. Hún setur spurningamerki við að
ráðherrann skipi fagmönnum hvernig eigi að kenna börnum.
Sveinn Arnarsson
sveinn@frettabladid.is
2 2 . á g ú s t 2 0 1 5 L A U g A R D A g U R34 H e L g i n ∙ F R É t t A B L A ð i ð
2
1
-0
8
-2
0
1
5
2
2
:5
6
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
D
9
-2
B
8
C
1
5
D
9
-2
A
5
0
1
5
D
9
-2
9
1
4
1
5
D
9
-2
7
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
1
2
s
C
M
Y
K