Fréttablaðið - 22.08.2015, Síða 57

Fréttablaðið - 22.08.2015, Síða 57
| atvinna | LaUGaRDaGUR 22. ágúst 2015 15 Réttindagæslumaður fatlaðs fólks á Austurlandi Velferðarráðuneytið auglýsir lausa til umsóknar stöðu réttindagæslumanns fatlaðs fólks á Austurlandi skv. 4. gr. laga um réttindagæslu fyrir fatlað fólk nr. 88/2011 og reglugerð nr. 973/2012. Um hálft starf er að ræða Helstu verkefni réttindagæslumanns er að fylgjast með högum fatlaðs fólks, veita því nauðsynlegan stuðning við að leita réttar síns og koma með ábendingar til þjónustuaðila. Nánari upplýsingar um réttindagæslu er að finna á www.vel.is/rettindagaesla MenntunAR- og HæfniskRöfuR • Háskólamenntun sem nýtist í starfi. • Þekking og áhugi á réttindum fatlaðs fólks. • Reynsla af starfi með fötluðu fólki. • Þekking á mismunandi tjáskiptaleiðum fatlaðs fólks. • Færni til að vinna sjálfstætt og skipulega • Hæfni í mannlegum samskiptum • Þekking á stjórnsýslu er kostur Um launakjör fer eftir kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Ráðuneytið hvetur karla jafnt sem konur til að sækja um starfið. Nánari upplýsingar um starfið veitir Halldór Gunnarsson, halldor.gunnarsson@vel.is Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfs- feril skulu berast velferðarráðuneytinu, Hafnarhús- inu við Tryggvagötu, 150 Reykjavík eða á netfangið: postur@vel.is eigi síðar en 7. september nk. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests. Velferðarráðuneytinu, 22. ágúst 2015. Starfsmaður á skrifstofu Steypustöðin ehf. óskar eftir að ráða starfsmann á skrifstofu félagsins. Helstu verkefni eru símsvörun og móttaka viðskiptavina, afstemmingar og ýmis tilfallandi skrifstofu- og bókhaldsstörf. Leitað er að starfsmanni með þekkingu á bókhaldi og góða almenna tölvuþekkingu. Reynsla af notkun Navision er æskileg en ekki nauðsynleg. Um er að ræða framtíðarstarf. Viðkomandi þarf að hafa ökuréttindi og náð 20 ára aldri. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til og með 28. ágúst 2015 Umsóknum skal skilað til Önnu Stellu Guðjónsdóttir fjármálastjóra á netfangið anna@steypustodin.is Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu. www.vedur.is 522 6000 Sérfræðingur í mælarekstri Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að sækja um starfið á www.starfatorg.is. Veðurstofa Íslands er opinber stofnun sem heyrir undir umhverfis- og auðlinda- ráðuneytið. Hjá stofnuninni starfa um 130 manns með fjölbreytta menntun og starfsreynslu sem spannar mörg fræða- svið. Auk þess starfa um 120 manns við athugana- og eftirlitsstörf víðsvegar um landið. Hlutverk stofnunarinnar er öflun, varðveisla og úrvinnsla gagna, sem og miðlun upplýsinga á helstu eðlisþáttum jarðarinnar, þ.e. lofti, vatni, jörð, snjó, jöklum og hafi. Starfsemin fer fram á fjórum sviðum: Eftirlits- og spásviði, Athugana- og tækni sviði, Úrvinnslu- og rannsóknasviði, Fjár mála- og rekstrarsviði og Skrifstofu for stjóra. Nánari upplýsingar um stofnunina má finna á heimasíðu hennar www.vedur.is Gildi Veðurstofunnar eru þekking, áreiðanleiki, framsækni og samvinna. Ráðningar hjá stofnuninni munu taka mið af þessum gildum. Veðurstofa Íslands auglýsir eftir sérfræðingi í mælarekstri, til starfa á Athugana- og tækni sviði, tímabundið starf í eitt ár. Sviðið sinnir marg þættu hlutverki fyrir langtíma náttúru fars- og auðlindarannsóknir og vöktun náttúruvár. Sviðið ber ábyrgð á frumskráningu allra mæligagna og gagnastraumum til innri og ytri viðskiptavina. Í boði er spennandi og krefjandi starf í hópi 25 starfsmanna við rekstur á viðamiklu mælikerfi sem telur yfir 600 stöðvar, vítt og breytt um landið.  Helstu verkefni Sérfræðivinna við mælarekstur, eftirlit og upp bygg ingu mælakerfa, ásamt miðlun mæli gagna og úrvinnslu. Starfið spannar mæla rekstur á sviði veðurmælinga, jarð eðlis - fræð legra mælinga og vatna mæl inga, auk annarra sértækra mælinga. Starfinu gæti einnig fylgt hlutverk á sviði gagna strauma, um þróun og endurnýjun gagna flutningsleiða. Menntunar- og hæfniskröfur Háskólanám á sviði, verkfræði, tæknifræði eða raunvísinda. Framhaldsnám (M.Sc) á framangreindum sviðum er kostur.  Farsæl reynsla á sviði mælareksturs og úrvinnslu mæligagna, gagnaumsýslu og streymi mæligagna er kostur.  Góð tölvuþekking. Reynsla á sviði forritunar mælitækja er kostur.  Þekking á viðhaldi og viðgerð mælitækja og eftirlit með sannprófun þeirra er kostur.  Færni í mannlegum samskiptum, frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymisvinnu.  Góð færni í íslensku og ensku.  Farsæl reynsla af ferðum í óbyggðum og ökuréttindi C1E er kostur.  Laun taka mið af kjarasamningum ríkisins og viðeigandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar um starfið veita Óðinn Þórarinsson, framvæmdastjóri Athugana- og tæknisviðs (odinn@vedur.is) og Borgar Ævar Axelsson, mannauðsstjóri (borgar@vedur.is) í síma 522 6000. Umsóknarfrestur er til og með 7. september nk. Microsoft sérfræðingur Þekking og reynsla af rekstri Microsoft lausna Microsoft prófgráður og þekking á Skype for Business er kostur Við óskum eftir sérfræðingum til að ganga til liðs við eitt stærsta og öflugasta rekstrarteymi landsins. Sérfræðingar Sensa sjá um úrlausn vandamála hjá viðskiptavinum, daglegan rekstur sértækra kerfa ásamt því að bera ábyrgð á lausnum og tölvukerfum valinna viðskiptavina. Citrix sérfræðingur Þekking og reynsla af rekstri XenApp og XenDesktop Citrix prófgráður eru kostur, sér í lagi í virtualization Sérfræðingar óskast! Ef þú telur þig hafa það sem þarf til að ná árangri í krefjandi umhverfi þá vinsamlegast sendu okkur upplýsingar um þig á starf@sensa.is. Umsóknum þarf að skila inn fyrir 1. september nk. Allar umsóknir eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Ármúla 31 – 108 Reykjavík – S. 425 1500 – www.sensa.is Sensa er í fararbroddi í hýsingar-, rekstrar- og samskiptalausnum þar sem sterk liðsheild, hátt þekkingarstig og verðmæt viðskiptasambönd spila stórt hlutverk. Sensa er Cisco Gold Partner og stærsti sölu- og þjónustuaðili Cisco samskiptabúnaðar á Íslandi. Þá er Sensa eini samstarfsaðili Microsoft á Íslandi sem er með Premier samning. Mikil áhersla er lögð á velferð starfsmanna, góðan starfsanda og hvetjandi og skemmtilegt starfsumhverfi, m.a. með því að veita starfsmönnum tækifæri til að vaxa með þjálfun og símenntun. Sensa leggur áherslu á vönduð og fagleg vinnubrögð og hefur ávallt þarfir viðskiptavina í fyrirrúmi. 2 1 -0 8 -2 0 1 5 2 2 :5 6 F B 1 1 2 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 D 9 -3 0 7 C 1 5 D 9 -2 F 4 0 1 5 D 9 -2 E 0 4 1 5 D 9 -2 C C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 1 1 2 s C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.