Fréttablaðið - 22.08.2015, Page 80

Fréttablaðið - 22.08.2015, Page 80
Við tvö þúsund ára gamalt tré í Karabakh sem er um 27 metrar að ummáli og um 54 metra hátt. Eldingar hafa leikið tréð grátt. Það á sitt eigið vegabréf sem sýnir status þess á meðal þjóðarinnar. elskulegur og bauð okkur heim til tengdaforeldra sinna sem buðu okkur upp á berjasafa og ávexti úr garðinum og leystu okkur út með gjöfum.“ Í Jerevan lenti Aldís á spítala því í skógarferð í Litháen hafði hún verið illa bitin af skorkvikindi og var nú komin með sýkingar, bólgur og ofnæmisvið­ brögð. „Ég var flutt á stærsta sjúkrahús borgarinnar en þegar ég kom í and­ dyrið þá leist mér vægast sagt ekkert á húsið og aðbúnaðinn en læknarnir voru framúrskarandi og það var vel hugsað um mig. Ég mun hins vegar aldrei framar minnast á aðbúnað á íslenskum sjúkrahúsum. Munurinn er sláandi.“ Í Jerevan voru ferðafélagarnir í nokkra daga áður en ættingjar Gran­ tasar sendu leigubíl eftir þeim frá Karab­ akh, um 400 kílómetra leið. „Þetta var ábyggilega flottasti bíllinn í bænum, nýlegur Land Cruiser Prado,“ segir Aldís. „Bílstjórinn keyrði hins vegar eins og brjálæðingur, enda hafði hann keypt sér númeraplötur sem veittu honum rétt til að haga sér eins og hann lysti, löggan vinkaði honum áfram og aðrir bílar fuku út í kant eins og flugur þegar við brunuðum eftir miðlínu eða á röngum vegarhelmingi á allt að 140 kílómetra hraða. Auk þess reykti bíl­ stjórinn, talaði stanslaust í símann og var með armenska tónlist á hæsta styrk. En á leiðarenda komumst við og fólkið hans Grantasar tók gríðarlega vel á móti okkur. Frændfólk hans rekur byggingafyrirtæki, veitingastað og gisti­ heimili og sýndi okkur alla helgustu staði Karabakh, eldgamlar kirkjur, hof og klaustur, jafnvel allt frá upphafs­ dögum kristninnar.“ Aldís segir Armeníu sólbakaða og þurra grjótsléttu. „Það er erfitt að átta sig á hvernig fólkið í litlu þorpunum við veginn dregur fram lífið í Armeníu en Karabakh er gróðursælt hérað sem á margan hátt minnir á Sviss. Héraðið er mikil matarkista, þar vaxa allir ávextir sem hugsast getur og alveg skiljanlegt að bæði Armenar og Azerar hafi ásælst svo gróskumikið svæði enda hefur það verið stríðshrjáð í langan tíma.“ Sex ára stríðinu lauk árið 1994 en sjá má áhrif þess víða, að sögn Aldísar. Hún segir uppbyggingu enn í gangi og munu taka langan tíma, kostnaður við að þurfa að byggja upp innviði samfélags­ ins aftur og aftur sé augljós. „Við Íslend­ ingar fyndum fyrir því ef við þyrftum að byggja upp grunnskólana, leikskólana og allar aðrar stofnanir á fimmtíu ára fresti af því að allt hefði verið sprengt í tætlur, fyrir utan öll mannslífin sem fórnað er í svona átökum. Við Íslend­ ingar erum forréttindafólk, að hafa aldrei lent í að verja landið okkar, hér hafa ekki geisað blóðugar styrjaldir vegna þess að það hefur engan langað í þessa eyju lengst úti í hafi. Aftur á móti hafa margar aðrar þjóðir þurft að upp­ lifa slíkt og það markar samfélögin.“ En var ekki tilfinningaþrungið fyrir Elítu að koma á þessar slóðir? „Jú, hún hafði gaman af að koma til Karabakh sem hún var búin að heyra manninn sinn tala um í mörg ár en auðvitað var sárt líka að hann skyldi ekki vera með. Við söknuðum hans öll mikið.“ Við hjónin förum yfirleitt bara á staðina og upplifum það sem Við lendum í, í hVerju landi fyrir sig. stundum pöntum Við ekki einu sinni hótelin fyrirfram. bílstjórinn keyrði hins Vegar eins og brjálæðingur, enda hafði hann keypt sér númeraplötur sem Veittu honum rétt til að haga sér eins og hann lysti. Í einni af mörgum matarveislum ferðarinnar. Lárus með gestgjafanum Rimu, vinkonu Elítu. Þetta er matur handa fjórum og heitu réttirnir ókomnir á borðið. Margt er að skoða í Litháen, þessi miðaldakastali er eitt af því. Hann er í Trakaj og er um- lukinn vatni. Táknmynd Karabakh eru risastórar styttur sem heita afi og amma. Þar segja gárungarnir að þetta sé táknrænt því engir séu eftir í Karabakh nema afi og amma. Unga fólkið sér þar enga framtíð en sendir samt börnin þangað í sumarfrí. 2 2 . á g ú s t 2 0 1 5 L A U g A R D A g U R4 0 h e L g i n ∙ F R É t t A B L A ð i ð 2 1 -0 8 -2 0 1 5 2 2 :5 6 F B 1 1 2 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 D 9 -2 6 9 C 1 5 D 9 -2 5 6 0 1 5 D 9 -2 4 2 4 1 5 D 9 -2 2 E 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 1 1 2 s C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.