Ský - 01.04.2007, Blaðsíða 6
6 sk‡
Útgefandi:
Heimur hf.
Ritstjórar og ábyrgðarmenn:
Benedikt Jóhannesson
og Jón G. Hauksson
Útlitshönnun:
Heimur hf.
Ljósmyndir:
Geir Ólafsson,
Páll Stefánsson, og fleiri
Blaðamenn/greinarhöfundar:
Benedikt Jóhannesson,
Elísabet Jökulsdóttir,
Erla Gunnarsdóttir,
Fríða Björnsdóttir,
Geir Guðsteinsson,
Hilmar Karlsson,
Páll Ásgeir Ásgeirsson,
Páll Stefánsson,
Sigurður Bogi Sævarsson,
Svava Jónsdóttir.
Auglýsingastjóri:
Vilhjálmur Kjartansson
Prentun:
Ísafoldarprentsmiðja
Heimur hf. – Öll réttindi áskilin
varðandi efni og myndir.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla:
Heimur hf.
Borgartúni 23
105 Reykjavík.
Sími: 512-7575
Allir ósammála
Á fjögra ára fresti velja Íslendingar nýjan hóp til þess að sitja á Alþingi. Þó að oft sé talað um fjórflokkinn í gamni og alvöru duga landanum varla sjö flokkar til þess að rúma allar þær skoðanir sem þeir vilja koma
á framfæri. Samt virðast allir flokkar nálgast miðjuna meir og meir og oft er erfitt
að heyra hvaða flokki frambjóðendurnir tilheyra þegar þeir eru að svara spurn-
ingum. Fyrir kosningar virðist auðveldast að sameina menn um alls kyns vitleysu
því að það kostar ekkert að segjast ætla að lækka skatta og hækka útgjöld. Ef lof-
orðin væru efnd væri það líka á kostnað kjósenda. Ross Perot, sem bauð sig fram
í Bandaríkjunum, hafði slagorð sem hæddist að hefðbundnum stjórnmálum,
slagorð sem sumir brostu að en því fylgdi líka mikil alvara: „Látum börnin
borga.“ Oft er það nefnilega svo að afkomendurnir erfa ekkert nema skuldirnar
eftir eyðslufyllerí hjá fyrri kynslóðum.
Deila má um hæfni frambjóðenda, heiðarleika og einlægni. Menn ná ekki
æðstu metorðum nema vera mjög metnaðarfullir. Þó eru örugglega flestir þannig
að þeir vilja gera sitt besta þegar þeir eru komnir í ábyrgðarstöður. Ólíklegt er
einhver setjist í ráðherrastól beinlínis til þess að leggja fjárhag ríkisins í rúst
eða hygla sér og sínum persónulega. Ekkert er óeðlilegt við það að með nýjum
ráðherra eða bæjarstjóra komi nýir ráðgjafar. Stjórnmálamenn vilja ekki þurfa
að byggja á ráðum manna sem eru ósammála þeim í grundvallaratriðum. Verra
er þegar flokkarnir geta varla ráðið dyravörð eða ritara nema hann sé með rétt
flokksskírteini. Áður fyrr var slíkt reglan. Nú hefur það minnkað mikið hjá rík-
inu en virðist tíðkast nokkuð hjá sveitarfélögum. Flestir embættismenn ættu þó
að vera svo trúir í sínu starfi að stjórnmálaskoðanir þeirra skipti engu máli.
Ef vel er að gáð er þó oft miklu fleira sem sameinar Íslendinga en sundrar. Ég
þekki ágætlega fólk með mjög margvíslegar stjórnmálaskoðanir. Eða kannski ætti
ég að segja að ég þekkti fólk sem kýs með margvíslegum hætti. Því að mjög oft
finnst mér að þetta fólk hafi sömu skoðun og ég á mikilvægum málum. Kannski
eru það helst leiðirnar sem menn greinir á um. Mín skoðun er sú að oftast sé
einfaldasta leiðin sú besta, leið þar sem miðar í rétta átt. Aðrir vilja skipta fólki
í flokka eftir kyni, búsetu og aldri þar sem sumir njóti sérkjara. Markmiðið er
engu að síður það sama, að bæta hag almennings. Ætli það sé ekki einmitt það
sem sameinar flesta stjórnmálamenn þó að menn greini á um hvorum megin við
miðjuna menn vilji sækja að því markmiði? sky
,
Benedikt Jóhannesson
sky
,
2.TBL.2007
REYKJAVÍK
AKUREYRI
EGILSSTAÐIR
VESTMANNAEYJAR
ÍSAFJÖRÐUR
VOPNAFJÖRÐUR
ÞÓRSHÖFN
GRÍMSEY
Það eru 3.990 kr.
hingað og þangað
Afmælistilboð til allra áfangastaða
Flugfélag Íslands heldur upp á 10 ára afmæli sitt á
árinu og lætur alla landsmenn njóta þess með sérstöku
afmælisfargjaldi til allra áfangastaða innanlands, þegar
bókað er á netinu: Aðeins 3.990 krónur aðra leið.
Afmælisfargjaldið er í boði á leiðum félagins frá
Reykjavík til Ísafjarðar, Akureyrar, Egilsstaða og
Vestmannaeyja og frá Akureyri til Grímseyjar,
Vopnafjarðar og Þórshafnar.
Nánari upplýsingar á www.flugfelag.is
flugfelag.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/F
L
U
3
71
50
0
4/
07
Ungt flugfélag með sjötíu ára reynslu.