Ský - 01.04.2007, Page 18
Heiða Rún Sigurðardóttir hefur unnið við ýmiss konar auglýsingar á Ind-landi og leikið í tónlistarmyndböndum.
Myndir af henni hafa birst í indversku útgáf-
unum af Cosmopolitan, Marie Claire, Elle og
Verve Magazine. Hún er nýflutt til London þar
sem hún starfar sem fyrirsæta auk þess sem hún
hefur sótt um inngöngu í leiklistarskóla.
„Góð fyrirsæta þarf að vera með góðan lík-
ama, góða húð og heilbrigt hár og tennur. Hvað
varðar persónuleikann er ekki verra ef hún
kemur vel fyrir en sjálfstraust og þolinmæði er
nauðsynleg.“
Heiða Rún segir að það neikvæða við starfið
sé að stundum finni hún fyrir óþolinmæði
og sjálfstraustið minnki sem leiðir til þess að
hún fær ranghugmyndir um sjálfa sig og aðra.
„Það getur leitt mann inn í óraunveruleikann
sem virðist bara eiga sér stað í þessum bransa.
Maður verður bara að muna hver maður er,
hvað er mikilvægt, halda í það sem maður veit
að skiptir máli og muna að í lok dagsins er þetta
bara vinna.“
Starfið getur verið ævintýralegt. Heiða Rún
segir það eftirminnilegasta vera þegar hún fór
einu sinni til Tælands til að taka upp auglýsingu
með frægum, indverskum leikara. „Við fórum
til Phuket sem er gullfallegur staður þar í landi.
Þar sem ég var að leika í auglýsingu með þessari
Bollywood-stjörnu, vorum við á fimm stjörnu
hóteli í fimm daga þar sem var einkaströnd og
allur mögulegur lúxus sem hægt er að hugsa
sér. En það var ekki það besta. Tökustaðurinn
var nefnilega á eyju sem heitir Maya Beach
þar sem kvikmyndin The Beach var tekin. Við
vorum þar við myndatökur í tvo daga og þetta
er ótrúlegasti staður sem ég hef séð.“
Eftir þessa ferð fór Heiða Rún einhverju sinni
með fleirum íslenskum stelpum frá Eskimo í sex
daga siglingu með skemmtiferðaskipi um Ind-
landshaf þar sem teknar voru myndir á fallegri
íslenskar fyrirsætur
Heiða Rún Sigurðardóttir
Prinsessa
og páfuglar
„Maður verður bara að muna
hver maður er, hvað er mik-
ilvægt, halda í það sem
maður veit að skiptir máli
og muna að í lok dagsins er
þetta bara vinna.“
eyju fyrir dagatal. Íbúar voru um
50 og Heiða Rún segir að sand-
urinn hafi verið hvítari en hveiti
og vatnið kristalstært.
„Ég hef einnig fengið að gista
í gömlum höllum á Norður-Ind-
landi sem voru byggðar á 16. öld
en hótelkeðjur reka þar hótel í
dag. Í einni þeirra bjó áttræð
prinsessa ennþá í svítunni sinni.
Fílar og páfuglar voru í hallargarð-
inum.“
„Heiða er „litla“ stelpan okkar. Þótt
hún sé ekki lítil þá hefur hún fylgt
Eskimo í mörg ár. Hún byrjaði mjög
ung að leika í auglýsingum hérlendis
en árið 2005 fór hún til Indlands
sem ein af okkar fyrstu fyrisætum.
Þar tók hún ríkan þátt í uppbygg-
ingu Eskimo í Indlandi. Skrefin voru
ekki alltaf auðveld en hún varð ást-
fangin af Indlandi. Heiða er dansari
að mennt og hefur það auðveldað
henni skrefin í Bollywood. Í dag má
sjá veggspjöld og myndir af Heiðu úti
um allt Indland. Það er aldrei dauður
tími þegar maður er í kringum Heiðu.
Hún er eins og stormsveipur.“
Andrea Brabin hjá Eskimo
18 sk‡
Heiða Rún Sigurðardóttir.