Ský - 01.04.2007, Síða 20
Sigríður Hrönn Guðmundsdóttir vinnur á vegum Eskimo á Indlandi en hún hefur starfað sem fyrirsæta í um átta ár með góðum hléum. Hún
vann til að mynda um árabil á Spáni hjá einni af bestu
umboðsskrifstofunum þar í landi, Group.
Starf hennar í dag felst aðallega í myndatökum á
Indlandi fyrir vörulista og auglýsingar í blöð auk þess
sem hún leikur mikið í sjónvarpsauglýsingum. Þá hefur
Sigríður Hrönn leikið í indverskum kvikmyndum. Hún
bendir á að efnahagskerfið þar í landi hafi opnast mikið
fyrir erlend fyrirtæki á undanförnum árum og að miklar
og hraðar breytingar séu á tískumarkaðnum.
„Ég er búin að vera ótrúlega heppin með vinnu á
Indlandi. Ég ætlaði að vera hérna í einn til tvo mánuði
og fara svo í bakpokaferðalag um Asíu. Ég endaði svo á
því að vinna næstum því daglega með bestu ljósmynd-
urum, stílistum og leikstjórum Indlands. Auk þess er ég
búin að vera í helstu tískutímaritum á Indlandi svo sem
Cosmopolitan, Verve, L’Officiel, Elle og Marie Claire.
Það hafa birst viðtöl við mig í öllum helstu dagblöðum
í Bombay og ég er nánast stöðugt í sjónvarpinu þar sem
ég hef verið í auglýsingum sem eru mikið sýndar. Fólk
þekkir mig úti á götu og ég er mikið beðin um eiginhand-
aráritanir í verslunarmiðstöðvum.“
Sigríður Hrönn hefur leikið í tveimur Bollywood-
myndum og í annarri lék hún aðalhlutverkið. Nokkrir
frægir indverskir leikarar léku í henni auk bresku leikkon-
unnar Michelle Collins, sem leikið hefur í East Enders.
„Það var gaman að fá í fyrra 2. verðlaun á Indlandi
sem „most successful model of the year“ en enginn
útlendingur hefur unnið þessi verðlaun.“
Þegar Sigríður Hrönn er spurð hvað fyrirsæta þurfi
að hafa til að ná langt segir hún: „Ég held að það skipti
miklu máli að þekkja markaðinn og vinna með það sem
maður hefur. Það er líka mikilvægt að vera sterkur kar-
akter og láta ekki fólk vaða yfir sig án þess þó að vera með
stæla. Það er nauðsynlegt að þola að vera einn og fjarri
fjölskyldu og vinum. Þær stelpur sem ná langt í þessum
bransa virðast líka vera með sjálfstraust sem tengist ekki
bara útlitinu, þær eru meðvitaðar um kosti sína og hæfi-
leika. Þær stelpur sem treysta bara á útlitið missa fljótt allt
sjálfstraust og þar með metnað þar sem í þessum bransa
er sífellt verið að gagnrýna á einn eða annan hátt hvernig
maður lítur út.“
íslenskar fyrirsætur
„Þær stelpur sem ná langt í þessum bransa virðast líka vera með
sjálfstraust sem tengist ekki bara útlitinu, þær eru meðvitaðar um
kosti sína og hæfileika.“
„Sigriður Hrönn er ein þeirra fyrirsætna okkar sem notið
hefur hvað mestrar velgengni á Indlandi. Sigga, eins og
hún er kölluð, er klár og alltaf hress en þessir eiginleikar
vega mikið í Indlandi og auðvitað alls staðar. Hún hefur
ekki þessa fullkomnu hæð sem yfirleitt er óskað eftir í
fyrirsætuheiminum en persónusjarmi hennar hefur bætt
fyrir það. Hún hefur einnig mikla leikhæfileika og hefur
leikið í tveimur bíómyndum. Sigga hefur ákveðinn „cele-
brity status“ á Indlandi og er iðulega stoppuð á förnum
vegi til að gefa eiginhandaráritanir.“
Andrea Brabin hjá Eskimo
Sigríður Hrönn Guðmundsdóttir
Bollywood-myndir
og verðlaunasæti
20 sk‡
S
ig
ríð
ur
H
rö
nn
G
uð
m
un
ds
dó
tti
r.