Ský - 01.04.2007, Blaðsíða 31
sk‡ 31
DVD-mynddiskar
06.06.06 var yfirskrift
afmælistónleika Bubba
Morthens 6. júní á síðast-
liðnu ári og voru þeir festir
á filmu og á DVD-mynd-
diskinum með tónleikunum
má upplifa þá aftur. Á
myndinni er Bubbi í stuði í
einu laga sinna og heillar
troðfulla Laugardalshöll.
tónlistarmönnum þjóðarinnar og í öllum
tilvikum var um að ræða mjög vel heppn-
aða og vel sótta tónleika. Auk þess þjóna
allar þessar útgáfur eins konar „best of“
tilgangi og eru því enn söluvænlegri fyrir
vikið. Við lögðum vissulega mjög mikið
undir í öllum þessum útgáfum og kostn-
aður við upptökur, hljóðblöndun, hönnun
og markaðssetningu hverrar þeirra var á
bilinu sjö til átta milljónir króna en þær
stóðu allar vel undir því. 06.06.06 Bubba
seldist samtals í 15.326 eintökum fyrir jólin,
Björgvin og Sinfóníuhljómsveit Íslands í
17.542 eintökum og Sálin og Gospelkórinn
í 9.304 eintökum. Að auki gáfum við út
Stóru stundina okkar sem er samstarfsverk-
efni Senu og Stundarinnar okkar í RÚV.
Sú plata innihélt einnig DVD-disk, eins og
allar fyrri samstarfsútgáfur okkar, og sá nýi
seldist í 3.941 eintökum.
Hvað varðar framhald á slíkum útgáfum
segir Eiður ekkert fastákveðið í þeim efnum:
„Þær verða samt örugglega fleiri, en það þarf
sterka flytjendur til að standa undir svona
útgáfum og þeir eru ekki á hverju strái.“
Varðandi það að gefa út innlenda tónlist í
öðru formi segir Eiður: „Vissulega er mögu-
leiki að gera DVD-útgáfur með íslenskum
tónlistarmönnum á einhvers konar heim-
ildarmyndaformi og við höfum gert það,
en sem aðalefni er það þó hæpið. DVD (og
Blu-ray eða HD-DVD í framtíðinni) er í
dag ekki síst notað sem aukaefni eða „added
value“ í tónlistarútgáfu. Þá aðallega með
heimildarefni en tónleikar geta staðið og
standa sem sérstakar DVD-útgáfur. Ísland
er lítill markaður en reynir þó að halda í við
þessa þróun erlendis frá. Þó er undarlegt að
sala tónlistar á DVD hefur ekki aukist jafn-
hratt hér og í Vestur-Evrópu og Bandaríkj-
unum. Undarlegt en satt. Hér á ég við alla
tónlist, ekki bara íslenska.“ sky
,