Ský - 01.04.2007, Side 46
46 sk‡
hugi Íslendinga á kvikmyndum er mikill og við
erum sú þjóð sem mest fer í bíó þegar miðað
er við fólksfjölda. Áhuginn snýr ekki síður að
því hvernig á að gera kvikmynd og margir
ungir krakkar eru með sínar litlu digitalvélar
að taka upp myndir sem oftast lenda síðar í glatkistunni.
Stuttmyndahátíð var haldin hér á landi árlega í nokkur ár
og þar gátu ungir og áhugasamir kvikmyndgerðarmenn
komið sínum stuttmyndum á framfæri, en sú hátíð er ekki
lengur við lýði. Skólarnir eru helsti vettvangur stuttmynda
sem gerðar eru af nemendum og hafa farið fram keppnir á
þeirra vegum, sem ná þó ekki út fyrir skólann og er greini-
lega vöntun á stað þar sem krakkar geta komið saman og
sýnt afurðir sínar.
Hjá flestum er stuttmyndagerð með digitalvél áhuga-
mál en hjá öðrum er það vísir að framtíðarstarfi. Áður
fyrr voru ekki miklir atvinnumöguleikar hér á landi fyrir þá
sem lögðu út í að læra kvikmyndagerð og þjónustustörf
við kvikmyndager, en í dag eru breyttir tímar. Öflug
kvikmyndafyrirtæki eru til staðar og alltaf er þörf á góðu
fólki og hafa því margir farið út í að nema kvikmyndagerð.
Kvikmyndaskóli Íslands er innlendur kvikmyndaskóli sem
býður upp á alhliða grunnnám.
SKÝ heimsótti skólann og
ræddi við skólastjórann Ásdísi
Thoroddsen og tvo nemendur,
Irmu Þöll Þorsteinsdóttur og
Böðvar Þór Unnarsson um
skólann og námið.
Kvikmyndagerð heillar
Á
Texti: Hilmar Karlsson
Myndir: Geir Ólafsson
Kvikmyndaskóli Íslands
Kvikmyndaskóli Íslands býður upp á nám fyrir þá sem hyggja á
störf í kvikmynda-, sjónvarps- og tölvuleikjaiðnaðinum á Íslandi
og starfar í samvinnu við framleiðslufyrirtæki og sjónvarpsstöðvar
á Íslandi. Markmið skólans er að stuðla að uppbyggingu mynd-
miðlaiðnaðarins á Íslandi. Skólinn hefur lengst af verið til húsa að
Laugavegi 176, en flutti um áramótin að Lynghálsi 5 þar sem Stöð
2 var áður til húsa. Skólastjóri er Ásdís Thoroddsen og tók hún við
starfinu síðastliðið haust:
„Kvikmyndaskólinn er starfsmenntaskóli og getum við tekið
inn 48 nemendur. Hingað koma nemendur úr mörgum áttum;
fólk sem hefur verið í háskóla og er að bæta við sig tæknimenntun
eða þá að námið hefur vísað þeim þessa leið og aðrir sem hafa lokið
framhaldsskólaprófi, enn aðrir hafa ekki fundið sig í öðru námi
eða vilja breyta til, þá þeir sem hafa einfaldlega mikinn áhuga á
kvikmyndum og vilja munstra sig til starfa við kvikmynda- og
sjónvarpsiðnaðinn.
Í skólanum er um grunnnám að ræða og nemandinn fær alhliða
nasasjón af kvikmyndagerð. Nemandinn hefur tækifæri til að
spyrja sig í hvaða átt hann vill fara, ef hann hefur ekki fyrirfram
mótaða hugmynd um hvað hann ætlar sér.
Hvað varðar fyrirframreynslu nemenda að kvikmyndagerð þá
er hún yfirleitt ekki mikil. „Margir hafa reyndar verið að mynda
mikið með litlum digital-vélum og hafa þannig fengið áhugann
og koma svo i skólann til að læra meira. Þá eru það þeir sem eru
sannir kvikmyndanördar, vita margt og mikið um kvikmyndir en
vilja öðlast færni til að gera þær sjálfir.“
Ásdís Thoroddsen, skólastjóri
Kvikmyndaskóla Íslands:
Grunnnám
í alhliða
kvikmyndagerð