Ský - 01.04.2007, Síða 47
sk‡ 47
Kvikmyndaskóli Íslands
Kvikmyndagerð hefur breyst mikið á síðustu árum og segir Ásdís
mun auðveldara í dag að koma sér upp aðstöðu til kvikmyndagerðar
heldur en áður var: „Kvikmyndagerð hefur færst nær ljósmynda-
vinnslu að því leyti að alveg eins og allir geta ljósmyndað þá geta allir
fengið sér vél og byrjað að búa til kvikmynd. Það þarf þó alltaf að
tileinka sér viss grundvallaratriði til að geta starfað við kvikmynda-
gerð, hvað varðar kunnáttu í tækni og vinnubrögðum. Þessa skólun
veitum við eftir bestu getu. Þá er miðlað fróðleik um hundrað ára
sögu kvikmyndarinnar.“
Kvikmyndaskólinn er í nýju húsnæði, sem er mun rúmbetra en
húsnæðið sem skólinn var í áður: „Það eru að sjálfsögðu kennarar og
nemendur sem búa til góðan skóla, en ekki er verra að vera í rúmgóðu
húsnæði og höfum við verið að koma okkur fyrir hér á Lynghálsinum
þar sem Stöð2 var áður. Húsnæðið mun nýtast okkur vel.“
Ásdís segir möguleikana á að fá starf í kvikmynda- og sjónvarps-
iðnaðinum góða eftir að námi lýkur: „Það fer að vísu eftir því hvert
starfið er, en það er skortur á mannskap í viss störf eins og hljóð-
vinnslu og störfin í kringum kvikmyndatökuna og klippingu. En
kvikmyndagerð er og verður alltaf fag þar sem einstaklingurinn þarf
sjálfur að hasla sér völl og hafa fyrir því að koma sér á framfæri og
gera sig gildandi. Starfið er ekki beint hagstætt fyrir fjölskylduna.
Það þarf stundum þolinmæði og umburðarlyndi til að sátt náist, en
starfið getur verið mjög gefandi og fjölbreytt fyrir hvern þann sem
leggur það fyrir sig.“
Ásdís Thoroddsen: „Kvikmyndagerð er fag þar sem einstakl-
ingurinn þarf að hasla sér völl.“
Ásdís Thoroddsen, skólastjóri
Kvikmyndaskóla Íslands:
Grunnnám
í alhliða
kvikmyndagerð
Hollywoodkepnni
í stuttmyndum
Að verða þekktur kvikmyndagerðarmaður er draumur margra
sem fást við gerð stuttmynda. Nú er kominn farvegur fyrir
unga og metnaðarfulla krakka sem vilja sinna stuttmyndagerð
til að skjóta sér strax upp á stjörnuhimininn. Um er að ræða
stuttmyndakeppni sem sjálfur Steven Spielberg er orðaður
við, en Skjár 1 hefur verið að bjóða Íslendingum að taka þátt
í nýjum sjónvarpsþáttum og um leið möguleika á að vinna sér
inn kvikmyndasamning í Hollywood. Þættirnir kallast On the
Lot og verða sýndir á Skjá Einum í vor og sumar.
On the Lot er ekki ósvipað American Idol. Eftir mikla leit
um víða veröld standa uppi 16 kvikmyndagerðarmenn. Það
verður mikil dramatík á bak við tjöldin þegar þessir ungu
leikstjórar þurfa að skila af sér kvikmynd undir pressu á einni
viku.
Þættirnir munu taka við af American Idol á FOX-sjón-
varpsstöðinni og verða með svipuðu fyrirkomulagi. Í hverri
viku dettur einn keppandi úr leik þar til einn stendur uppi
sem sigurvegari og hlýtur að launum eina milljón dollara til að
gera kvikmynd í Hollywood í samstarfi við Steven Spielberg
og framleiðslufyrirtæki hans, Dreamworks. Fengu Íslendingar
kost á að taka þátt með því að skrá stuttmyndir til leiks á
vefsíðunni www.thelot.com fyrir 16. febrúar.
Hvort einhverjum Íslendingi tekst að komast til Holly-
wood á eftir að koma í ljós en margir munu örugglega senda
inn stuttmynd og vona að sama ævintýrið gerist og með
Magna Ásgeirsson, sem sló í gegn í Rock Star: Supernova eins
og alþjóð veit.
Steven Spielberg er risi í kvikmyndaheiminum og
kannski kemst einhver ungur og hæfileikaríkur
íslenskur kvikmyndagerðarmaður í návígi við hann.