Ský - 01.04.2007, Síða 62
62 sk‡
Eyjólfur Eyjólfsson tenór er rétt nýfloginn úr hreiðrinu sem söngvari en hefur fengið byr undir báða vængi.Hann byrjaði að læra á þverflautu við Tónlistarskóla Hafn-
arfjarðar átta ára og kynntist klassískri tónlist snemma. Leiðin lá næst
í kór Flensborgarskólans, síðan í söngnám hjá dr. Þórunni Guð-
mundsdóttur og eftir burtfararprófið þaðan varð ekki aftur snúið.
Við tók þriggja ára framhaldsnám við Guildhall School of Music and
Drama, eins árs mastersnám (MMus) og svo tveggja ára óperudeild.
„Ég söng í fyrsta skipti opinberlega fyrir áheyrendur veturinn
1998 þegar ég var nýbyrjaður að læra hjá dr. Þórunni. Fyrsta sviðs-
reynsla mín var á fjölum Tjarnarbíós í söngleiknum Kolrössu eftir
dr. Þórunni, gamla söngkennarann minn. Verkið var byggt á þjóð-
sögunni um Ásu, Signýju og Helgu og fór ég með hlutverk hunds-
ins, sem hét Spakur. Þetta var enginn venjulegur hundur heldur var
hann jarl sem hin ógurlega Una álfkona hafði hneppt í álög. Þetta
var ótrúlega skemmtilegt. Ég hef alltaf lúmskt gaman af því að segja
fólki að mitt fyrsta sviðshlutverk hafi verið hundur!
Þetta er samt ekki það furðulegasta sem ég hef komið nálægt
á ferlinum, því eftir að ég útskrifaðist frá
Guildhall-skólanum var ég valinn í
að syngja í uppfærslu Ensku þjóð-
aróperunnar (English
National Opera)
á Orfeo eftir
Monteverdi. Það var mikil upplifun að vera byrjaður að syngja við
stærsta óperuhúsið á Bretlandseyjum svona stuttu eftir útskrift. Leik-
stjórinn Chen Shi-Zheng, sem er kínverkur kvikmyndaleikstjóri, var
með mjög óvenjulega nálgun á verkið. Hann fékk indónesískan dans-
flokk til að sjá um dansana og lét okkur söngvarana líka taka þátt í
stærstu danssenunum. Útkoman var vægast sagt mjög eftirminnileg
því þarna rann ítalskt snemmbarokk saman við indónesíska hirð-
dansa og viðbrögð áheyrendanna voru vægast sagt mjög misjöfn. En
þarna kynntist ég frábæru fólki sem ég held góðu sambandi við og
bý vel að þessari reynslu.“
Eyfi er afar lifandi persónuleiki og hefur víða komið við á
tónlistarbrautinni þótt hún sé ekki löng. Hann hefur sungið með
fjölmörgum kórum og sönghópum hér heima og með ýmsum
hljómsveitum, m.a. í London, Sevilla, Kænugarði, Moskvu, París
og Reykjavík. „Ég sæki núna tíma hjá Ryland Davies, en undanfarið
hef ég verið mikið á ferðalögum við að syngja og stússast út um allar
trissur,“ segir Eyjólfur eða Eyfi eins og hann er oftast kallaður. „Það
sem heillar mig mest við sönginn eru ljóðin. Maður hættir að hugsa
einungis um laglínur heldur opnast nýr heimur sem er svo svakalega
spennandi. Mér hefur alltaf þótt gaman að hlusta á söng og syngja
sjálfur. Ég keypti mér iPod síðasta haust og þar geymi ég allt tónlist-
arsafnið mitt sem er mjög fjölbreytilegt. Allt frá evrópskri 14. aldar
kirkjutónlist til færeysks þungarokks. Einnig finnst mér strengja-
tónlist frá barokktímanum mjög skemmtileg. Mest hlusta ég þó á
söngvara og alls ekki tenóra eingöngu.“
Þrátt fyrir flakkið er Eyfi ekkert á förum frá Íslandi.
„Mér hefur þótt svakalega gott að geta verið hér heima og er
mjög þakklátur að hafa fengið þessi frábæru tækifæri hjá Strengja-
leikhúsinu og Íslensku óperunni, fyrst „Skáldið í Skuggaleik eftir
Karólínu Eiríksdóttur og Sjón og svo núna „Sellem“. Ég bý í
Hafnarfirðinum hjá móðurömmu og afa og þar fer afskaplega
vel um mig. Það er ljúft að vakna upp við „Gufuna“ í gamla
bárujárnshúsinu við Jófríðarstaðaveginn. Mamma og bræður mínir
búa rétt hjá sem er afar indælt og er ég mikið hjá þeim. Mér
finnst svo gott að vera í Hafnarfirði vegna þess að hér
eru flestir mínir gömlu vinir og nánasta fjölskylda.“”
Ég er ánægður með hvernig ferill minn hefur þróast. Ég
hef átt því láni að fagna að fá tækifæri til að syngja
mjög fjölbreytta tónlist. Ég gæti ekki hugsað mér
skemmtilegri vinnu og hlakka alltaf til næsta verk-
efnis. Ég er með góðan umboðsmann í Lund-
únum og draumurinn er að vera búsettur hér
heima á Íslandi en fara út í verkefni þegar
þau gefast. Ég er ekkert að velta mér upp
úr framtíðinni, mér finnst alltaf best að
einbeita mér að þeim verkefnum sem
ég er að vinna að hverju sinni og láta
síðan hlutina bara ráðast.“
Eyjólfur Eyjólfsson, tenór
Fyrsta hlutverkið var hundurinn Spakur
Eyjólfur hlakkar alltaf til næsta verkefnis.
Ungir óperusöngvarar