Ský - 01.04.2007, Blaðsíða 64
64 sk‡
Guðrún Jóhanna er að leggja lokahönd á að skipuleggja kammertónleika sem verða haldnir á Kirkjubæjarklaustri í ágúst, en hún er listrænn stjórnandi hátíðarinnar í annað
sinn. Hún býr nú í Madrid á Spáni með eiginmanni sínum, Francisco
Javier Jáuregui, sem er klassískur, spænskur gítarleikari. Þar er hún nú
að undirbúa sig undir að syngja Carmen undir leiðsögn einnar fræg-
ustu Carmenar 20. aldarinnar, Aliciu Nafé.
„Ég tók mín fyrstu sóló í Skólakór Kársness hjá Þórunni Björns-
dóttur þegar ég var ellefu eða tólf ára. Ég hafði reyndar alltaf haft
gaman af að syngja með mömmu minni og systur, en ég hafði mikið
yndi af því að blanda röddinni saman við aðrar í kórnum,“ segir
Guðrún Jóhanna sem einnig er mikill leiklistarunnandi.
„Mig langaði alltaf til að leika og syngja og lék t.d. í Þjóðleikhús-
inu, með Leikfélagi Akureyrar, í Leikfélagi MH og stofnaði meira að
segja leikhóp með vinum mínum.
Við tókum okkur saman; ég, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Ólafur
Egill Egilsson, Birna Ósk Einarsdóttir, Flóki Guðmundsson og Páll
Sigþór Pálsson, og settum upp „Sköllóttu söngkonuna“ eftir Ionesco.
Melkorka Tekla systir mín var leikstjóri, en helmingurinn af þessum
hópi eru orðnir leikarar í dag.
Verkið sjálft var auðvitað alger snilld og við sýndum það í svo
miklu návígi við áhorfendur að þeir fremstu sátu við tærnar á mér.
Svo þegar ég kynntist ljóðatónlistinni sá ég hina fullkomnu leið
til að sameina leik og söng og ákvað að helga mig því að ná tökum á
röddinni til að geta tjáð það sem í mér býr.“
„Ég fór í nokkra söngtíma hjá Marie Lang þegar ég var fjórtán ára,
en mér leist ekkert á þann klassíska blæ sem byrjaði að koma á rödd-
ina og hætti því ég vildi frekar vera svona eins og Janis Joplin!
Það var svo ekki fyrr en að ég var orðin nítján ára sem ég hóf söng-
námið fyrir alvöru og hef stundað það víða síðan, á Íslandi, í London,
Frakklandi og á Spáni og er enn að.
Það er búið að vera mikið að gera í vetur, 12 tónar gáfu út fyrsta
diskinn minn í október þar sem við Víkingur Heiðar Ólafsson píanó-
leikari flytjum verk eftir Grieg og Schumann og í nóvember vorum
við með tónleika í Madrid sem var útvarpað í beinni útsendingu af
spænska útvarpinu og dreift um alla Evrópu. Við fluttum eingöngu
íslensk lög og fólk varð mjög hrifið, sérstaklega af „Ave Maria“ eftir
Sigvalda Kaldalóns.
Ég verð með ljóðasöngstónleika í Sevilla Zamora og syng titilhlut-
verkið í „Stígvélaða kettinum“ í Konunglega óperuhúsinu í Madrid á
næstunni, en það stendur mikið til heima á Íslandi líka. Auk stjórn-
unarinnar á Kirkjubæjarklaustri mun ég líka syngja þar, ég syng
Carmen með Sinfóníuhljómsveit Íslands og tónskáldið í „Ariadne auf
Naxos“ hjá Íslensku óperunni og ég verð einnig á kammertónleikum
í Hveragerði og við upptökur hér heima.“ sky
,
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, mezzosópran
Með leiklistargenið í bland
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir
undirbýr að syngja Carmen.
Landshornaflakk
Ungir óperusöngvarar