Ský - 01.04.2007, Page 70
70 sk‡
varnarsvæðið. Álver í Helguvík mun rísa í áföngum. Áætlað er
að lokið verði við fyrsta áfanga í árslok 2010 og þá yrði fram-
leiðslugetan allt að 150.000 tonn. Þegar fullum afköstum yrði
náð árið 2015 er gert ráð fyrir 250.000 tonna framleiðslugetu.
Álframleiðsla og gróðurhúsaáhrif
Ál er þriðja algengasta frumefni jarðar og sá málmur sem mest
er notaður t.d. í bifreiðar og flugvélar. Vegna lítillar eðlisþyngdar
áls verða þessi farartæki mun léttari en ella og því stuðlar notkun
áls að minni útblæstri koldíoxíðs og þar með minni áhrifum
gróðurhúsalofttegunda. En ál er notað til margs annars. Þannig
valda lífshættir nútímamannsins t.d. sívaxandi eftirspurn eftir áli
í byggingarvörur, s.s burðarvirki, klæðningar, glugga og hurðir,
auk matvælaumbúða á borð við dósir undir svaladrykki og
mjólkurfernur.
Gjarnan er rætt um gróðurhúsaáhrif og losun efna í tengslum
við atvinnulíf. Auðvitað skipta sífellt betri mengunarvarnir miklu
máli en rétt er að hafa í huga að eina varanlega leiðin til að
stemma stigu við þessu tvennu er að menn dragi sjálfir úr notkun
á tækjum og efnum sem stuðla að menguninni, svo sem plasti,
stáli, áli o.s.frv. Á meðan spurn eftir áli heldur áfram að vaxa er
ljóst að byggja þarf þrjú til fjögur meðalstór álver á hverju einasta
ári einhvers staðar í heiminum.
Losun gróðurhúsalofttegunda er ekki skaðleg heilsu fólks í
nágrenni við álver heldur veldur hún hnattrænum áhrifum. Það
skiptir því miklu frekar máli hve mikil losunin er en hvar hún
á sér stað. Ef jarðefnaeldsneyti er notað við álframleiðsluna er
mengandi útblástur níu til tíu sinnum meiri en frá álveri á Íslandi
þar sem notaðar eru endurnýtanlegar orkulindir. Það gildir einu
hvort álver eru reist einhvers staðar víðs fjarri Íslandi, t.d. í Kína
eða Ástralíu, koltvísýringurinn berst um allan hnöttinn. Því er
ábyrgð Íslendinga mikil að nýta okkar umhverfisvænu orkulindir
alþjóðasamfélaginu og sjálfum okkur til heilla. sky
,
Vöxtur Norðuráls á Grundartanga
Fjöldi
Ár Ársframleiðsla starfsmanna
1998 60.000 tonn 160
2001 90.000 tonn 200
2006 180.000 tonn 320
2006 220.000 tonn 360
2007 260.000 tonn 420
Loftgæði mæld á Grundartanga.