Ský - 01.04.2007, Side 78
78 sk‡
K
Y
N
N
IN
G
Fjarðabyggð:
„Það er ótrúlegt að finna kraftinn sem býr í samfélaginu hér í Fjarða-
byggð, deigluna og sköpunarmáttinn sem í henni felst,“ segir Helga
Jónsdóttir. Hún tók við starfi bæjarstjóra Fjarðabyggðar á síðasta
ári en í júní er liðið ár frá því til varð nýtt sveitarfélag sem í eru sex
byggðakjarnar, Mjóifjörður, Norðfjörður, Eskifjörður, Reyðarfjörður,
Fáskrúðsfjörður og Stöðvarfjörður.
Um þessar mundir er unnið að aðalskipulagi sveitarfélagins en
með því fæst heildarsýn yfir hvað þarf að gera, hvað ber að standa
vörð um og hverju eigi að breyta. „Í tengslum við aðalskipulagsvinn-
una hefur fjölmörgum verkefnum verið hrundið úr vör. Í upphafi
voru haldin íbúaþing í öllum byggðakjörnunum til að fá fram hug-
myndir og viðhorf sem nú er verið að vinna úr,“ segir Helga. Hún
nefnir sem dæmi starfshóp sem vinnur að stefnumörkun í ferðaþjón-
ustu en í öllum byggðakjörnunum býr mikill en vannýttur styrkur
á þessu sviði.
Áhugaverð söfn
„Hér er óvenjuleg safnaflóra og ég efast um að hún sé þessu lík annars
staðar á landinu. Á Stöðvarfirði er hið landsþekkta Steinasafn Petru,
Franska safnið er á Fáskrúðsfirði, Stríðsárasafnið á Reyðarfirði, Sjó-
minjasafnið á Eskifirði og á Norðfirði er Safnahús með náttúrugripa-
safni, safni Jósafats Hinrikssonar og málverkasafni Norðfirðingsins
Tryggva Ólafssonar listmálara. Í stefnumörkuninni er því sérstaklega
horft til menningartengdrar ferðamennsku.“
Á íbúaþingunum komu fram hugmyndir í ásýndar- og umhverf-
ismálum. Helga segir að ætlunin sé að virkja íbúa og fyrirtæki í að
taka til hendinni með bæjaryfirvöldum svo að ásýnd Fjarðabyggðar
verði sem best. „Mikið rask hefur fylgt geysilegri uppbyggingu skóla,
leikskóla, íþróttamannvirkja og íbúðabyggðar og nú er ætlunin að
gera umhverfinu til góða og snyrta það.“
Skilningur og sveigjanleiki
Í álverinu á Reyðarfirði verða til 400 ný störf og við það bætast alls
kyns afleidd störf, t.d. þegar flutningafyrirtæki og verktakar styrkja
þjónustu sína. Með vaxandi íbúabyggð verður til ný þjónusta svo
sem lágvöruverslun, bíó, kaffihús og annað sem kallar á aukin umsvif
og nýtt fólk. „Þeir sem fyrir eru taka á móti þessu nýja fólki með
opnum huga en um leið verður mikil gerjun og henni fylgja nýjar
hugmyndir og verkefni. Öllu verður að forgangsraða og láta það sem
brýnast er njóta forgangs. Nú er að hefjast tilraunaverkefni til að leita
bestu leiða við að taka á móti nýjum íbúum og bjóða þá velkomna,
hvort sem þeir eru innlendir eða erlendir. Ekki er vitað fyrirfram á
hverjum við eigum von, ungu fólki eða gömlu, fjölskyldufólki eða
einstaklingum, Íslendingum eða útlendingum. Við verðum því að
tryggja að kerfið sé sveigjanlegt og skilningur ríki á því að kröfur um
þjónustu geti orðið mjög mismunandi. En við ætlum að taka vel á
móti öllum og vonum að þeir finni að hér eru þeir á góðum stað,“
segir Helga Jónsdóttir, bæjarstjóri í Fjarðabyggð. sky
,
„Ég stend upp frá tölvunni, fer út, geng í 7 mínútur
og þá er ég ein í náttúrunni.“
Tinna
þú ert á góðum stað
Fjarðabyggð er fjölbreytt samfélag þar sem
höfuðáhersla er lögð á að hlúa að þeim þáttum
sem tryggja raunveruleg lífsgæði.
Á traustum undirstöðum er byggt upp framsækið
og fjölskylduvænt samfélag þar sem allir eru
mikilvægir og allir fá tækifæri.
FJARÐABYGGÐ | þú ert á góðum stað fjardabyggd.is
Náttúran og nálægð við hana er mikilvægur þáttur í
raunverulegum lífsgæðum. Í Fjarðabyggð er líflegt og
samhent samfélag rammað inn í stórbrotna fjallasali
Austurlands. Þar eru óbyggðirnar innan seilingar.
StöðvarfjörðurFáskrúðsfjörðurReyðarfjörðurEskifjörðurNeskaupstaðurMjóifjörður
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/F
JA
3
72
53
0
4/
07
Helga Jónsdóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar.
Fjölbreytt og brýn
verkefni framundan
NORÐAUSTURKJÖRDÆMI