Ský - 01.04.2007, Page 80
80 sk‡
Suðurkjördæmi er víðfeðmt og staðhættir
og atvinnulíf þar býsna ólíkir frá einni
sveit til annarrar. Á Suðurnesjum eru þjón-
ustugreinar og ýmis starfsemi tengd flugi á
Keflavíkurflugvelli sú atvinnustarfsemi sem
íbúarnir byggja afkomu sína helst á – og svo
fiskvinnsla og útgerð. Sjávarútvegur skiptir
einnig miklu fyrir byggð í Þorlákshöfn,
Vestmannaeyjum og á Höfn í Hornafirði.
Í sveitunum á Suðurlandi byggist atvinnu-
líf að verulegu leyti á landbúnaði, þar sem
nýjum greinum eins og ferðaþjónustu vex
stöðugt ásmegin.
Byggðarlögin á Árborgarsvæðinu, til að
mynda Hveragerði og Selfoss, hafa á síðustu
árum vaxið hratt á undanförnum árum og
íbúum fjölgað mikið. Þar hafa verið sett á
laggirnar fjölmörg ný fyrirtæki sem m.a.
byggja á því að veita þjónustu eigendum
þeirra þúsunda sumarhúsa sem eru í upp-
sveitum Árnessýslu og víðar á Suðurlandi.
Raunar sækir sumarhúsafólk í sveitasæluna
árið um kring og margir í þeim hópi geta
með traustum rökum talist til heimamanna.
Endurspeglar það öðrum þræði eðlisbreyt-
ingu sem orðið hefur í Suðurkjördæmi síð-
ustu ár. Þannig teljast byggðir á Reykjanesi
og á Árborgarsvæðinu nú hluti af höf-
uðborgarsvæðinu – og íbúarnir njóta í senn
alls hins besta sem sveit og borg hafa upp á
að bjóða. sky
,
SUÐURKJÖRDÆMI
Sveit og borg í senn
Skaftafell. Þjóðgarður þar sem Hvannadalshnjúkur - hæsta fjall landsins - gnæfir
yfir, 2.111 metrar á hæð.
Vestmannaeyjar. Einstæður staður sem lætur engan ósnortinn.