Ský - 01.04.2007, Qupperneq 82
82 sk‡
K
Y
N
N
IN
G
Hornafjörður:
„Segja má að ímynd okkar byggist á Vatna-
jökli annars vegar og humrinum hins vegar,“
segir Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri
Hornafjarðar. „Vatnajökulsþjóðgarður verður
spennandi verkefni sem mun efla ferðaþjón-
ustuna mikið og auka ferðamannastrauminn
um landsvæði þjóðgarðsins verulega og hafa
mikið að segja fyrir þá sem bjóða upp á gist-
ingu og afþreyingu fyrir ferðamenn.“
Mest er að gera í jöklaferðunum á sumrin
en töluverður kraftur í þeim vor og haust
að sögn Hjalta Þórs.
Hann segir Skaftafell
og Jökulsárlón fjölsótt-
ustu ferðamannastaðina
í héraðinu og þangað
komi um 150.000
ferðamenn á ári. Á lón-
inu sigla síðan um 40-
50 þúsund manns.
Ferðaþjónustan
sé því s tór
atvinnugrein
sem margir hafi atvinnu af allt
árið, þótt þeim fjölgi mikið yfir
sumarið.
„Mikill áhugi er á að efla vetrar-
ferðamennskuna og finna eitthvað
sem dregur ferðamenn að yfir veturinn
eins og gert hefur verið í Norður-Skand-
ínavíu. Má þar nefna norðurljósin og
ýmsa menningarviðburði sem við höfum
verið að þróa, t.d. blúshátíðina sem haldin
hefur verið í mars tvö síðustu ár. Svo koma
hreindýrin niður á láglendið á veturna
og jökullinn er alltaf aðgengilegur.“
Menn kynnast
Þórbergi á heimaslóð
Á Hala í Suðursveit er verið að
byggja upp menningartengda
ferðaþjónustu í tengslum
við Þórberg Þórðarson. Þar
má sjá sýningu sem byggð
er á verkum skáldsins og
aðstæðum í Suðursveit þegar
Þórbergur var að alast þar
upp. Síðan er verið að merkja gönguleiðir
með vísun í sögur Þórbergs svo fólk getur
skemmt sér við að
fylgja kennileitum
úr verkum skáldsins.
Menn hafa greint auk-
inn áhuga á sögum
Þórbergs. Nýlega var
svo opnuð á Höfn ný
og endurbætt Jökla-
sýning. Þar er hægt að
fræðast um tilurð og
þróun jökla og kynnast
aðstæðum jöklafara og
náttúrufari við rætur Vatnajökuls.
Humar á „hóteli“
Á þekkingarsetrinu Nýheimum á Horna-
firði vinna Matís og Frumkvöðlasetur Aust-
urlands með útgerðarfélaginu Skinney-
Þinganesi að verkefni sem miðar að því
að flytja lifandi humar á markaði erlendis.
Humarinn er veiddur, honum haldið lif-
andi í nokkra mánuði á „humarhóteli“ og
hann seldur þegar verðið er hæst, um jól
og páska. Tilraunasending hefur þegar farið
til meginlands Evrópu. Þarna er greinilega
fundin leið til að auka virði sjávarfangsins í
framtíðinni.
„Þessir aðilar hafa í hyggju að þróa áfram
aðferðir sem aukið geta verðmætasköpun í
matvælaframleiðslu og efla þannig atvinnu-
lífið hér,“ segir Hjalti Þór Vignisson og
minnir á að fyrstu helgina í júlí ár hvert
sé haldin sérstök humarhátíð á Höfn sem
dregið hafi að fjölda ferðamanna ekki síður
en jökullinn, en hvort tveggja, humarinn og
jökullinn tengist ímynd Hornafjarðar. sky
,
SUÐURKJÖRDÆMI
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri.
Vatnajökulsþjóðgarður mun
margefla ferðaþjónustuna
Í sveitarfélaginu Hornafirði,
sem nær frá Hvalnesskriðum
að Skeiðarársandi, búa 2200
manns. Þetta er víðfeðmt
sveitarfélag og eru um 200
kílómetrar á milli marka þess
í austri og vestri. Á Höfn búa
nú 1650 manns.