Ský - 01.04.2007, Page 86
86 sk‡
egar ég var barn horfði ég eingöngu á kvikmyndir úr
aftursæti fjölskyldubílsins í bílabíói. Að ég ætti nokkurn
tíma möguleika á að leika í kvikmyndum datt mér ekki
í hug. Það að ég sé verðugur þessa heiðurs í kvöld segir
mér að allt er mögulegt. Það er mögulegt fyrir dreng frá
Texas, sem trúir á drauma sína, nálgast þá með hjartanu
og lætur þá rætast…..“
Þetta voru upphafsorð Forests Whitakers þegar hann tók við
óskarsverðlaununum í lok febrúar á þessu ári. Whitaker stendur
á hátindi ferils síns og hefur á þessu ári sópað til sín öllum helstu
verðlaunum kvikmyndabransans í heiminum fyrir túlkun sína á
einræðisherranum Idi Amin í The Last King of Scotland.
Forest Whitaker á að baki 24 ár í kvikmyndum. Þótt ekki hafi
hann komist á tindinn fyrr en nú hefur hann ekki þurft að strögla
þessi tuttugu ár. Hann fékk snemma stór tækifæri sem hann nýtti
vel. Meðal annars var hann valinn besti leikarinn á kvikmyndahátíð-
inni í Cannes árið 1988 fyrir leik sinn í Bird, sem Clint Eastwood
leikstýrði. Alla tíð hefur Forest Whitaker verið virtur leikari sem á að
baki mörg eftirminnileg hlutverk. En segja má með The Last King of
Scotland hafi hann komist í fámennan hóp kvikmyndastjarna sem
skína hvað bjartast um þessar mundir.
Efnilegur í ruðningi
Forest Whitaker fæddist í Longview í Texas 15. júlí 1961. Faðir
hans var tryggingasali og móðir hans kennari og er hann einn fjög-
urra systkina, á eina eldri systur og tvo yngri bræður. Fjölskylda
hans fluttist til Los Angeles þegar Whitaker var á barnsaldri og þar
gekk hann í skóla. Á háskólaárum sínum þótti Whitaker efnilegur
í ruðningi enda hafði hann líkamsbygginguna í þá íþrótt, er 1,89 á
hæð og yfir 100 kíló að þyngd. Fékk hann skólastyrki út á hæfileika
sína í ruðningi. Meiðsli gerðu það að verkum að hann varð að snúa
við blaðinu, hætta í íþróttum og sneri hann sér þá að tónlistar- og
leiklistarnámi.
Whitaker lauk námi 1982 og fór þá strax að leita fyrir sér í kvik-
myndum og gekk mun betur en flestum. Sama ár og hann lauk námi
fékk hann hlutverk í áreitninni og gamansamri unglingamynd, Fast
Times at Richmond High, sem hefur með árunum öðlast virðulegan
sess í sögu kvikmyndanna. Þar voru fleiri ungir leikara í misstórum
Forest Whitaker
Viðkunnanlegur gæðaleikari sem lætur vel að leika persónur sem eru sakleysið uppmálað,
aðrar persónur sem fyrst og fremst eru mannlegar, en látið ekki blekkjast af útlitinu.
Hann getur eins vel leikið illmenni, morðingja og nú síðast einræðisherra sem hefur
öðlast sess meðal verstu manna sem uppi hafa verið.
Forest Whitaker í hlutverki Idi Amins í The Last King of Scotland.
Þ
• Texti: Hilmar Karlsson