Fréttablaðið - 05.10.2015, Síða 4
Aðeins örfáar sýningar:
Sun. 18. okt . kl . 13.00
Sun. 1. nóv. kl . 13.00
Sun. 15. nóv. kl . 13.00
Sun. 22. nóv. kl . 13.00
Barnasýning ársins
Sproti ársins
Gríman 2015
- DV - S.J. Fréttablaðið
Heilbrigðismál Einn af hverjum sjö
sem koma á húð- og kynsjúkdóma-
deild Landspítalans í skoðun grein-
ist með klamydíu. Lengi hefur verið
talað um að Ísland eigi Evrópumet í
klamydíusmiti og það tengt við hve
duglegir Íslendingar eru að fara í
tékk. Baldur Tumi Baldursson, yfir-
læknir deildarinnar, segir málið
ekki endilega svo einfalt.
„Við viljum fá marga í tékk, það
er jákvætt. En við fáum marga í tékk
og greinum marga. Fjöldi greininga
fer þó eftir því hve vel mönnuð við
erum á deildinni. Því fleiri starfs-
menn, því fleiri skoðanir og því fleiri
greiningar. Þessa dagana er tveggja
vikna biðlisti en heimsóknum hefur
líka fjölgað eftir að við breyttum
rakningu hjá okkur. Nú rekjum
við fjölda bólfélaga heilt ár aftur í
tímann og fólk man betur eftir ból-
félögum vegna Facebook, Tinder og
annarra samfélagsmiðla. Við getum
orðað það þannig að fólk eigi auð-
veldara með að vita eða muna nöfn
bólfélaganna nú til dags.“
Baldur Tumi setur upp einfalt
reikningsdæmi og tekur þar mið
af erlendum rannsóknum. Stærsti
hópur þeirra sem greinast með
klamydíu á Íslandi er á aldrinum
17-27 ára. Ef tuttugu prósent þeirra,
um það bil sex þúsund, stunda
skyndikynni og það er borið saman
við þá sem eru greindir á deildinni
þá kemur út sú niðurstaða að ef
tveir virkir í skyndikynnum stunda
kynlíf eru um helmingslíkur á að
klamydíusmit verði ef ekki er notað-
ur smokkur. Og lítil smokkanotkun
virðist vera vaxandi vandi.
„Við erum að sjá það í greiningum
að krakkar nota minna smokka.
Aukið sárasóttarsmit meðal sam-
kynhneigðra karlmanna gefur
okkur sömu vísbendingu. Foreldrar
og forráðamenn þurfa að skipta sér
meira af þessu. Í hvert skipti sem
félagarnir segja að það sé glatað að
nota smokk þurfa ömmurnar að
segja fimm sinnum að það verði að
nota smokk. Við erum hreinlega að
bregðast unga fólkinu með því að
hvetja það ekki meira til að nota
smokkinn.“
Baldur Tumi stingur upp á að
eytt sé meiri fjárhæðum í forvarnir
og smokkaherferðir enda séu klam-
ydíupróf og -lyf rándýr fyrir samfé-
lagið. Svo ekki sé talað um lyf gegn
HIV og lifrarbólgu. Hann svarar því
játandi að fólk sé mögulega hætt að
vera eins hrætt við að smitast þar
sem hægt er að meðhöndla flesta
sjúkdóma ef maður fer nógu oft í
tékk.
„Það er kannski ekki dauða-
dómur að fá kynsjúkdóm en það
getur haft alvarlegar afleiðingar.
Það er varlega áætlað að fjórð-
ungur kvenna sem eru ófrjóar séu
það vegna klamydíu. Og þar sem
við erum Evrópumeistarar þá er ég
hræddur um að hlutfallið sé hærra
hér.“ erlabjorg@frettabladid.is
Helmings líkur á að ungt fólk sem
stundar skyndikynni fái klamydíu
Þúsund greinast árlega með klamydíu. Flestir á aldrinum 17-27 ára. Yfirlæknir á húð og kynsjúkdómadeild segir þörf á smokkaátaki.
7.000
komu á húð og kyn árið
2014
25%
ófrjórra kvenna eru það
vegna klamydíu.
Húð og kynsjúkdómadeild Landspítalans er í Fossvogi. Þar getur fólk komið í skoðun. Klamydíusmit hefur verstu afleiðing-
arnar fyrir konur. Fái sjúkdómurinn að grassera í mörg ár getur það haft skelfilegar afleiðingar. FréttabLaðið/Pjetur
sýrland Forseti Sýrlands, Bashar
al-Assad, segir að bandalag milli Sýr-
lands, Rússlands, Írans, og Íraks, verði
að skila árangri, annars verði svæðið
eyðileggingu að bráð. Hann sagði það
jafnframt mikilvægt fyrir öll Mið-
austur löndin að loftárásir Rússlands
gegn Íslamska ríkinu væru árangurs-
ríkar en loftárásirnar héldu áfram í
gær og hafa nú staðið yfir í sex daga.
Í viðtali við íranska ríkissjónvarpið
sagði forsetinn að Sýrland, Rússland,
Íran og Írak ynnu saman að því að
berjast gegn hryðjuverkum og
hann teldi líkur á því að árásirnar
yrðu árangursríkar. Hann gagn-
rýndi jafnframt loftárásir Banda-
ríkjamanna í Sýrlandi og Írak og
sagði þær ekki hafa borið árangur
í að sporna gegn hryðjuverkum á
svæðinu.
Alþjóðlegir andstæðingar for-
setans hafa sagt að til þess að
binda enda á borgarastyrjöldina í
Sýrlandi verði forsetinn að segja af
sér en sjálfur segir forsetinn í við-
talinu að ef lausnin fælist í afsögn
hans myndi hann ekki hika við að
segja af sér.
Loftárásir Rússa hafa líkt og áður
sagði staðið yfir í sex daga og er árás-
unum sagt beint gegn herbúðum
Íslamska ríkisins en sýrlenskir aktív-
istar segja þær beinast gegn öðrum
uppreisnarhópum.
Í gær sagði rússneska varnarmála-
ráðuneytið frá því að flugvélar þeirra
hefðu sprengt tíu skotmörk undir
yfirráðum Íslamska ríkisins. Sýr-
lenskir aktívistar sögðu hins vegar að
í það minnsta tvö börn og smali hefðu
beðið bana í árásunum sem beint var
að borginni Homs og árásirnar hefðu
að auki sært fimmtán manns.
Bæði Tyrkland og Bretland hafa
fordæmt aðgerðir Rússa og hvatti
David Cameron, forsætisráðherra
Bretlands, Rússa til að breyta um
stefnu og viðurkenna að forsetinn
verði að hverfa frá völdum í Sýrlandi,
hann væri ekki fær um að sameina
sýrlensku þjóðina. – gló
Assad segir loftárásir Bandaríkjamanna árangurslausar
Tuttugu greindust með sárasótt síðasta vetur
Hvað er sárasótt? Sárasótt eða
sýfilis er sjúkdómur sem smitast
eingöngu við kynmök. Ef ekkert
er að gert gengur sjúkdómurinn í
gegnum þrjú stig. Fyrstu einkennin
koma 3-12 vikum eftir smit og eru
rauðbrún sár á smitstaðnum. Frá
einni viku og allt að 6 mánuðum
eftir að sárið grær hefst annað stig
sjúkdómsins með útbrotum víða
um líkamann og einkennum sem
líkjast flensu. Þessi einkenni hverfa
einnig eftir mislangan tíma og þá
er sjúkdómurinn einkennalaus,
stundum árum saman. Á lokastigi
veldur sjúkdómurinn skemmdum
á heila og hjarta. Sárasótt hefur
legið niðri á Íslandi í fjölda ára og
því er um verulega fjölgun á til-
fellum að ræða.
Í hvert skipti sem
félagarnir segja að
það sé glatað að nota smokk
þurfa ömmurnar að segja
fimm sinnum að það verði
að nota smokk.
Baldur Tumi Baldurs-
son, yfirlæknir
húð- og kynsjúk-
dómadeildar Land-
spítalans
bashar al-assad forseti Sýrlands.
FréttabLaðið/ePa
lögreglumál „Ég var staddur í götu
rétt hjá þegar ég sá eldglæringar,“
segir Böðvar Sigurðsson leigubílstjóri.
Hann var við vinnu í Mosfellsbæ þegar
hann tók eftir eldi í húsi við Skelja-
tanga. Lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu rannsakar nú eldsupptökin,
íkveikja hefur ekki verið útilokuð.
Böðvar varð var við eldinn klukkan
hálf fjögur aðfaranótt sunnudags.
Eldur hafði kviknað við skjólvegg og
útidyrahurð á neðri hæð hússins.
„Ég greip upp símann, hringdi í 112
og var með þá á línunni allan tímann.
Ég þurfti að vekja íbúa í öðru húsi
því ég vissi ekki í hvaða götu ég var
staddur til að fá slökkviliðið á réttan
stað,“ segir Böðvar.
Kjartan Gíslason býr í næsta húsi
við það hús þar sem eldsupptökin áttu
sér stað. „Það er bankað hjá mér um
miðja nótt og þar stendur maður í sím-
anum og er að hringja á Neyðarlínuna.
Hann spyr mig númer hvað næsta hús
sé,“ segir Kjartan. Kjartan og Böðvar
hlaupa því næst yfir í næsta hús og
hefja að berja á glugga. „Ég kíki inn
Var á réttum stað á réttri stund
FréttabLaðið/viLHeLm
Ég er bara ánægður
að vera á réttum
stað á réttum tíma.
Böðvar Sigurðsson,
leigubílstjóri
um glugga og sé strákinn sem býr þar
halda á syni sínum. Ég segi við hann
að við ættum að taka börnin í gegn
um gluggann sem við og gerum,“
segir Kjartan. Faðir barnanna tveggja
óð svo eld og reyk til að komast út.
Kjartan fór með börnin inn til sín
og vakti par sem bjó á efri hæð húss-
ins þar sem eldurinn átti sér upptök.
Engan sakaði og Kjartan segir að
börnin hafi verið róleg yfir atvikum
næturinnar.
Kjartan segir að eldtungurnar hafi
náð upp á þak hússins. Slökkvistörf
tóku þó skamman tíma en rífa þurfti
klæðningu úr húsinu til að ljúka
slökkvistörfum. Kjartan segist ekki
hafa séð neitt sem benti til íkveikju.
Böðvar segir að ekkert annað
hafi komið til greina en að aðstoða.
„Maður hugsar ekkert um það í raun.
Þetta gerðist bara. Ég er bara ánægð-
ur að vera á réttum stað á réttum
tíma,“ segir Böðvar en eftir björg-
unarstörfin hélt hann áfram vinnu
til klukkan átta um morguninn.
– srs / joe
5 . o k t ó b e r 2 0 1 5 m á n u d a g u r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
C
2
-5
D
A
0
1
6
C
2
-5
C
6
4
1
6
C
2
-5
B
2
8
1
6
C
2
-5
9
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
6
4
s
_
4
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K