Fréttablaðið - 05.10.2015, Síða 13
Golfsettið ferðast frítt!
+ Skráðu þig í Icelandair Golfers á www.icelandairgolfers.is
Aðild að Icelandair Golfers er innifalin fyrir korthafa
Premium Icelandair American Express®
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
6
61
93
1
0/
13
Ég var um daginn að blaða í ágætu greinasafni sem hafði að geyma uppgjör ýmissa félagsvísinda-
manna við Hrunið og oflætistímana
þar á undan, þegar nýútskrifað fólk úr
viðskiptadeildum háskólanna fór um
heiminn og hélt að það væri afkom-
endur „víkinga“, og ætti því að æla á
milli rétta á fínum veitingahúsum,
sofna í helstu óperuhúsum heims,
aldrei halda fundi og taka ákvarð-
anir um milljarðatugi króna án þess
að ráðgast við nokkurn mann, allra
síst sjálfan sig. Félagsvísindamenn-
irnir töluðu í þessu sambandi um
hugmyndafræði Íslendingasagnanna
sem hefðu fyllt þessa krakka af þess-
um mikilmennskuórum. En þær eru
ekkert svona.
Hér er skyndikúrs í Íslendinga-
sögunum handa komandi útrásar-
víkingum (þetta er víst að bresta á
aftur) og félagsvísindamönnum.
Sögur um oflæti
Íslendingasögurnar fjalla alls
ekki um það hvað Íslendingar
séu fullkomnir heldur hitt hversu
ófullkomnir þeir séu. Þær enda
til dæmis alltaf með ósigri (karl)
hetjunnar; en það gerir þessar sögur
í rauninni ekki að tragedíum því
að allir eru dauðfegnir að losna við
þessa ofstopamenn; meira að segja
Egill Skallagrímsson sem af öllum
mótherjum sínum ber má um síðir
þola það óhetjulegasta ástand sem
hugsast getur: að verða gamalmenni.
Þetta eru erkisögur um Íslendinga.
Þær greina frá ættardeilum, land-
námi og héraðsuppbyggingu, mann-
vígum, ástum og örlögum, fólki
sem stríðir við skapgerðarbresti og
reynir að lifa með sæmd. Þær segja
frá orðheppni og orðseinheppni og
orðabölvun. Þær segja frá völdum,
lagarefjum, kaupskap, misnotkun,
hefndum, sáttum, vináttu, rógi,
misskilningi, heigulskap, gæfuleysi
og gjörvileik og já, hetjuskap en þó
umfram allt: oflæti. Þar er fullt af alls
konar fólki. Persónur eru þar sam-
settar og við sjáum þær í athöfn, þær
eru leiddar fram í verkum sínum og
tilsvörum, útliti, fasi og jafnvel játn-
ingum sem að vísu eru sveipaðar dul
í flóknum vísum, eins og nútímaljóð.
Íslendingasögur eru nútímaskáld-
sögur og við sjáum persónur þeirra
daglega á götu.
Eru þetta hetjubókmenntir? Þar
koma stundum við sögu náungar
– löngu horfnir þegar sögurnar
eru skráðar – sem gerðust mála-
liðar (soldið eins og atvinnumenn
í fótbolta) og stóðu í mannvígum
erlendis og jafnvel hér heima líka,
með hörmulegum afleiðingum.
Eigum við að dást að þeim? Við
skulum segja frekar að saga þeirra
þykir þess verð að hún sé sögð.
Ekki fegrun, heldur stækkun
Sögurnar eru einhvers konar sam-
bland af goðsögum og raunsæis-
bókmenntum. Íslendingasögurnar
rekja með öðrum orðum af ískaldri
nákvæmni og umtalsverðri kald-
hæðni deilur og vandræði sem
hljótast af stolti á villigötum. Þær
segja sem sé frá oflæti. Þær segja frá
fólki sem linnir ekki látum fyrr en
það hefur tekist á hendur það sem
því er ofviða; sem er eina skilgrein-
ingin á Íslenska draumnum sem
hægt er að aðhyllast. Siðvillt skáld
og nýríkir afglapar, glúrin gamal-
menni og spilltir höfðingjar eru
áberandi: og konur sem hika ekki
við að senda menn til mannvíga til
að standa vörð um hefndarskyldu
og sæmd eða vegna ástar á þeim
sem þær láta drepa. Sumar sögur
segja frá hálfgerðum afglöpum sem
eru ófærir um að taka þátt í daglegu
lífi fólks og samfélaginu vegna þess
að þeir eru á valdi hugmynda sem
ættaðar eru úr allt öðrum kringum-
stæðum, sem kannski voru aldrei til
nema sem skáldskapur, donkíkótar.
Þetta eru sögulegir menn, það tekur
því að segja frá þeim en guð hjálpi
þeim sem ætlar að taka þá sér til
eftirbreytni.
Grettir Ásmundarson er ein slík
hetja, Þorgeir og Þormóður, Kor-
mákur, Hallfreður vandræðaskáld,
Egill skalli, Gunnlaugur ormstunga
og Hrafn, Björn Hítdælakappi …
Meira að segja títtnefndur Gunnar
á Hlíðarenda sem nú er mikil tíska
að álasa, en er alltaf að reyna að vera
góður, spyr Kolskegg bróður sinn
„hvort eg mun því óvaskari maður
en aðrir menn sem mér þykir meira
fyrir en öðrum mönnum að vega
menn“. Og langar bara að kvænast
mesta kvenkosti landsins og sitja í
sæmd sinni. Það verður spennandi
að sjá hvernig Njála verður sviðsett
í Borgarleikhúsinu nú í vetur en
sagan um Gunnar og Hallgerði er
kannski ekki flókin. Kannski fjallar
hún um það sama og allar íslenskar
sögur sem vit er í: að fara að heiman
og að koma heim. Þetta er sagan um
knattspyrnumanninn sem kemur
úr atvinnumennsku með áunna
spennufíkn þaðan, og þyrfti að fara
á reiðistjórnunarnámskeið – og feg-
urðardrottninguna sem hefur ógeð
á karlmönnum eftir misnotkun og
ofbeldi frá barnsaldri og vill komast
burt héðan og inn í hetjuvíddina.
Gunnar vill komast inn hingað og út
úr hetjuvíddinni, gerast venjulegur
búri. Þau mætast í gættinni á hetju-
víddinni og úr verður það versta sem
gat gerst að mati Njáls: Girndarráð.
Saga Gunnars og Hallgerðar er ekki
saga sem bundin er við tiltekið sam-
félag eða samfélagsaðstæður heldur
klassísk ástarsaga, harmsaga, þetta
er ekki saga um hetjuskap heldur
klúður og gagnkvæmt ofbeldi, and-
legt og líkamlegt.
Þessar sögur fjalla um að sitt sé
hvað gæfa eða gjörvileiki. Þær fjalla
um undarlegt ástand í undarlegu
landi þar sem ekki er nein lögga,
bara goðar, varla guðir nema til að
spauga með, naumast þing nema
árleg útihátíð á Þingvöllum þar sem
menn keppast við að þylja upp lög.
Stundum koma þar fyrir skrýtin
orð eins og „slundasamlega“ og
„mannfýla“ en engum er vorkunn að
lesa þær fyrir það: bækur eru bara
skemmtilegri þegar þar eru orð sem
maður skilur ekki en getur fundið af
keiminn uppí sér. Þessa sögur sækja
frásagnir og frásagnarmót í hetjuljóð
þar sem valkyrjur kjósa goðbornum
hetjum örlög. Íslendingasögur eru
erkisögur um Íslendinga. Þær geyma
ekki fegrun á því fólki sem fjallað
er um – heldur stækkun. Það gæti
forðað okkur frá öðru Hruni að fara
að lesa þær aftur.
Erkisögur Íslendingsins
Guðmundur
Andri Thorsson
rithöfundur
Í dag
Íslendingasögurnar fjalla alls
ekki um það hvað Íslending-
ar séu fullkomnir heldur hitt
hversu ófullkomnir þeir séu.
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 13M Á n u d a g u R 5 . o k T ó B e R 2 0 1 5
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
C
2
-5
D
A
0
1
6
C
2
-5
C
6
4
1
6
C
2
-5
B
2
8
1
6
C
2
-5
9
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
6
4
s
_
4
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K