Fréttatíminn - 17.07.2015, Síða 38
S vokallaðar „S´mores“ eru sannkallað gúmmelaði sem er tilvalið að útbúa í útileguna
eða bara við grillið heima. Um er
að ræða samloku úr hafrakexi með
sykurpúðum og súkkulaði á milli.
S´mores eiga uppruna sinn að rekja
til skátahreyfingarinnar í Banda-
ríkjunum, en fyrsta uppskriftin
birtist í skátabæklingi frá stúlknas-
kátasveit þar í landi. Heitið er sam-
setning á orðunum „Some more,“
eða „aðeins meira.“ Samlokuna er
bæði hægt að útbúa við grillið eða
yfir opnum eldi. Munið bara að fara
varlega, bæði yfir eldinum og þegar
kemur að magni sykurneyslunnar.
38 matur & vín Helgin 17.-19. júlí 2015
NÚ Í NÝJUM UMBÚÐUM
LJÚFFENGA HEILHVEITIKEXIÐ
SEM ALLIR ELSKA
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
plankaparket
Verðdæmi:
190 mm Eik Rustik burstuð
mattlökkuð 6.990.- m2
Mynd/Shutterstock
Amerísk súkkulaði-
og sykurpúðasamloka
S´mores:
Hafrakex
Súkkulaði að eigin vali (einnig er sniðugt
að nota súkkulaðismjör)
Sykurpúðar
Aðferð:
Setjið súkkulaði á hafrakex. Þræðið
sykurpúða upp á grilltein og grillið þar
til þeir verða stökkir að utan og mjúkir
að innan. Rennið grilluðum sykurpúðum
af grillspjótinu beint á súkkulaðið og
kexið, leggið kexköku (og auka súkkul-
aði) ofan á og klemmið saman. Bíðið þar
til súkkulaðið byrjar að bráðna áður en
þið njótið.
Á sumrin er alltaf góð stemn-ing í því að grilla í góðum félagsskap. Enn skemmti-
legra er að grilla við opinn eld á fal-
legu sumarkvöldi. Það eru engin
takmörk fyrir því hvað er hægt að
grilla. Hér er hugmynd að skemmti-
legu brauði sem auðvelt er að gera.
Búið til einfalt Pizzudeig og vefjið
því upp á greinar sem þið finnið í
kringum ykkur, eða klippið greinar
af trjánum. Haldið svo deiginu yfir
eldinum þangað það er orðið fallega
gyllt og bakað í gegn. Einnig er gott
að brenna það lítillega á nokkrum
stöðum. Þegar brauðið er tilbúið er
svo bara hægt að borða það beint af
greininni. Það er skemmtilegt hvað
ilmurinn af trénu smýgur skemmti-
lega í gegn. Gott er að dýfa brauð-
inu í ýmsar olíur eða bráðinn ost.
Grilluð stemning
Uppskrift að Pizzadeigi.
6 desilítrar hveiti, alls ekki
heilhveiti
2 matskeiðar matarolía
1/2 teskeið salt
2/5 desilítrar volgt vatn
1 bréf þurrger
Aðferð:
Blandið hveiti og salti
saman. Bætið við olíu. Setjið
volgt vatn í litla skál, setjið
þurrgerið út í og látið hann
leysast upp.
Blandið því svo í deigið
og hnoðið öllu vel saman.
Vefjið svo deiginu upp á
greinarnar.