Fréttatíminn - 03.07.2015, Síða 50
S vava Gunnarsdóttir heldur úti blogginu ljufmeti.com þar sem hún birtir dásamlega
ljúffengar uppskriftir. Bloggið er
þriggja ára um þessar mundir og
segir Svava að það sé alltaf gaman
að vera matarbloggari, sama hvaða
árstíð er. „Ég er yfirleitt með létt-
ari mat yfir sumartímann og þegar
haustið skellur á kemur löngunin í
haustlegri og aðeins þyngri mat.“
Ásamt tilraunum í eldhúsinu er
útivist eitt af helstu áhugamálum
Svövu. „Við fjölskyldan göngum
allan ársins hring. Útiveran gerir
öllum gott og er eitt það besta sem
maður getur gert fyrir sjálfan sig.
Glymur hefur verið í algjöru upp-
áhaldi hjá strákunum mínum og
þeir vilja fara þangað á hverju
sumri. Það er falleg leið sem gaman
er að ganga. Dóttir mín hefur verið
dugleg í styttri göngum upp á síð-
kastið, fer á Helgafellið og kringum
Hvaleyrarvatn og Vífilsstaðavatn
með vinkonum sínum. Elliðaárdal-
urinn er líka reglulega heimsóttur.
Þar er skjólsælt, fallegt og endur-
nærandi að taka einn hring þar eftir
vinnudaginn,“ segir Svava.
Fréttatíminn fékk Svövu til að
deila uppskrift af sniðugu nesti í
gönguferðina. „Það þarf kannski
ekki mikið nesti í styttri göngu-
ferðir en í fjallgöngum er vatnsbrúsi
alltaf með í för. Þegar krakkarnir
eru með þá hef ég gert pitsusnúða
og hafrastykki sem þau eru mjög
hrifin af. Mér þykja hafrastykkin
vera frábært nesti sem hentar vel í
ferðalagið, göngur eða hjólatúra. Ég
pakka þeim inn í bökunarpappír og
þá er þægilegt að grípa þau með sér
á hlaupum út.“
heilsa 45Helgin 6.-8. júní 2014
Veldu lífrænt, heilnæmt
og hollt.
Einfaldur lífrænn pasta réttur
2 dósir Biona Tómatar með basiliku
500 gr Biona spelt pasta
15-20 gr Íslenskt smjör eða bragðlaus kókosolía
5 sneiðar 17% Ostur ef vill
Pasta er soðið eftir leiðbeiningum á pakkanum.
Vatnið sigtað af. Tómötunum er hellt í djúpan pott
eða pönnu, smjörið sett út í og hrært vel saman,
þá er osturinn settur út í og hrært þar til hann er allur
uppleystur, til að gera réttinn bragðmeiri er gott að
setja salt, pipar og timian út í.
Pasta látið í sósuna og hrært saman
, þekktu merkið!
Sniðugt nesti í
gönguferðina
Hafrastykki
230 g haframjöl (2½ bolli)
10 g rice krispies (½ bolli)
20 g kókosmjöl (¼ bolli)
90 g súkkulaðibitar (½ bolli ) – mér
þykir suðusúkkulaði best
100 g púðursykur (½ bolli)
1/2 tsk salt
50 g smjör (¼ bolli)
60 g hnetusmjör (¼ bolli)
3 msk hunang
2 msk síróp (má sleppa)
1/2 tsk vanilludropar
Setjið smjör, hnetusmjör, hunang
og síróp í pott og bræðið saman
við lágan hita. Þegar blandan hefur
bráðnað er vanilludropum bætt
út í. Setjið haframjöl, rice krispies,
kókosmjöl, súkkulaðibita, púður-
sykur og salt í skál og blandið vel.
Hellið smjörblöndunni saman við
og hrærið öllu vel saman. Þrýstið
blöndunni í bökunarform sem er
20×20 cm og bakið við 175° í 20 mín-
útur. Kælið og skerið síðan í stykki.
Svava Gunnarsdóttir bloggar um sitt helsta áhugamál; bakstur og eldamennsku
á matarblogginu Ljúfmeti og lekkerheit. Hér deilir hún uppskrift af dásamlegum
hafrastykkjum sem eru tilvalin í ferðalagið, fjallgöngur eða hjólatúra.