Allt um íþróttir - 01.03.1952, Blaðsíða 2

Allt um íþróttir - 01.03.1952, Blaðsíða 2
Ég vil byrja þetta bréf mitt með því að þakka blaðinu skemmtilegt efni, sem það hefur flutt síðan það hóf göngu sína. Mér finnst, að það mætti kynna meir erlenda íþrótta- menn en það hefur gert undanfar- ið. Ég persónulega vildi kynnast hlaupururmm Rudolf Harbig, Gun- der Hagg, Harold Davis, Arne An- dersson, Lovelock. Ég tel þessa menn hafa skarað svo fram úr, að íþróttamenn geti lært margt af þeim og þá einkum „langhlaupar- arnir“. Væri þá helzt að geta um fyrstu kynni þeirra af íþróttum, og hvað einkcnndi þá mest, t. d. skaplyndi þeirra, hvernig þeir hög- uðu hlaupinu, t. d. hvort þeir byrj- uðu geyst eða höfðu hraðan enda- sprett. Þetta er mín tillaga, en auðvitað er það aukaatriði, hvað ég vil í þessu sambandi, en eitt er víst, að margir eru á sama máli og ég um þennan hátt. Einnig fer vel á því að kynna ýmis héruð á sviði íþróttanna, eins og í síðasta blaði. Vil ég gera það að tillögu minni, að í næsta blaði verði Hafn- arfjörður tekinn og íþróttamenn hans. Hafnfirðingar hafa og eiga marga menn, sem reynzt hafa hættulegir íþróttamönnum okkar höfuðstaðarbúa. Þætti mér matur í að birt yrðu drengjametin og met hinna fullorðnu sitt í hvoru lagi, þar sem að íþróttamenn þeirra eru það sterkir, að maður fær enga hugmynd um getu drengjanna, nema með metaskrá þeirra sér. Ég vænti þess fastlega, að þessi grein komi í febrúarblaðinu og síðan verði haldið áfram með þessa kynningarstarfsemi. Með íþróttakveðju, K. V. Við þökkum K. V. fyrir hans ágætu ábendingar og skulum reyna aö verða við óskum hans að einhverju eða öllu leyti. H. R. leggur fyrir okkur eftirfar- andi spurningar: I. Hver er núverandi íslands- meistari í 100 og 200 m. hlaupi kvenna og hver er tíminn? 2. Hvað kaupa margar stúlkur „Allt um íþróttir"? 3. Hvað heitir formaður Í.R.? Svör: 1. Sú heitir Sesselja Þorsteins- dóttir, K.R., og hljóp hún 100 m. á 13.1 sek. og 200 m. á 28.1 sek. 2. Þessari spurningu getum við því miður ekki svarað. Þær eru frekar fáar stúlkurnar, sem eru fastir áskrifendur að ritinu, en ekki höfum við hugmynd um, hve margar kaupa það í lausasölu. Það vantar líklega spennandi fram- haldssögu til þess að kvenþjóðin fái áhuga á ritinu. 3. Hann heitir Gunnar Stein- dórsson. 38 IÞRÓTTIR

x

Allt um íþróttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.