Allt um íþróttir - 01.03.1952, Blaðsíða 30

Allt um íþróttir - 01.03.1952, Blaðsíða 30
Orðið er laust: Hvers eiga knattspymumenn okkar að gjalda? Undanfarnar vikur hefur eitt af helztu umræðuefnum eins af dag- blöðum höfuðborgarinnar verið, hvort tækt sé að senda knatt- spyrnulið héðan til Helsingfors í sumar. Er hér um að ræða dag- blaðið Vísi, sem hóf þessar (á tíð- um mjög skemmtilegu) umræður með hugleiðingum frá eigin brjósti um óhæfni íslenzkra knattspyrnu- manna. Eins og við var að búast skiptust menn í tvo andstæða flokka, með og móti. Til þessa virð- ist sá síðarnefndi hafa haft öllu betur í viðureigninni, enda fleiri snúizt ásveif með þeim málstað. En hvers eiga knattspyrnumenn vorir að gjalda? Hvergi hefur ból- að á að menn hafi gripið neitt æði og ruðzt út á ritvöllinn til þess að lýsa vandlætingu yfir fornum óför- um eða nýafstöðnu eða væntanlegu „flani“ skíðakappanna ellegar frjálsíþróttastjarnanna? Hvergi heyrðist þess getið, að von væri á betri árangri í Noregi í vetur en náðist í Sviss fyrir fjórum árum, og fór þó ekki dult, að ætlunin væri að senda enn fleiri „til lær- dóms og þekkingarauka". Ekki hefur enn heyrzt, hve margir af frjálsíþróttamönnunum muni send- ir til Finnlands í sumar, og þó hef- ur ekki enn hafizt nein herferð fyrir fækkun væntanlegra þátttak- enda á því sviði. Eða gera menn ráð fyrir að slíkt sé sjálfgert, þeg- ar bakteríur og dómstólar leggj- ast á eitt til að höggva þar stór skörð? Eða man enginn ferðirnar til Berlín og London? Eða sigrana yfir Finnum og Svíum og öðrum sambærilegum árangri, sem knatt- spyrnulið íslenzk hafa náð á und- anförnum árum? En hver er orsök þess, að fremur er á loft haldið ósigri 2 félaga (lélegustu félag- anna á síðasta Islandsmóti) fyrir atvinnumannaliði (í fullri þjálfun) suður í Koblenz en stærsta íslenzka knattspyrnusigrinum, yfir Svíum í sumar sem leið? En er ekki óhætt að treysta for- ystumönnum knattspyrnumálanna að taka þær ákvarðanir í þessu máli, sem þeir sjá réttastar og farsælastar á sama hátt og almenn eining virðist vera um að treysta forystumönnum sund- og frjáls- íþróttamálanna til þess hjá sér? Hvers vegna ekki? S. G. BOTVINNIK — frh. af bls. 53: hverju er styrkur hans fólginn? Járnharður sjálfsagi, óþreytandi baráttuvilji, ísköld ró, næstum óskeik rökvísi, síðast en ekki sízt er sjálfstraust, sem hann á sam- merkt um við fyrirrennara sína í hásætinu. 66 IÞRÓTTIR

x

Allt um íþróttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.