Allt um íþróttir - 01.03.1952, Blaðsíða 24
og Preston. Ráðlegast mun því að
gizka á sigur heimaliðsins, 1.
Barnsley—Doncaster.
Bæði þessi lið leika í II. deild.
í síðustu 5 leikjum hefur Doncas-
ter staðið sig betur en Barnsley.
En fallhættan vofir yfir hjá báð-
um liðunum og má því búast við
tvísýnum leik. 1X2
Coventry—Sheff. Wednesday.
Coventry er í 4. neðsta sæti í
II. deild og mun því gera mikið til
að fjarlægjast botninn. Sh. Wed-
nesday hefur hins vegar mikla
möguleika til að fara upp í I. deild.
Leikurinn er því tvísýnn. Ráðleg-
ast mun að gizka ásigur Sh.W. með
jafntefli sem möguleika, þ. e. 2 X
Q.P.R.—Leicester.
Q.P.R. eru í neðsta sæti í II.
deild og mun liðið gera allt til
þess að forðast fall. Leicester hef-
ur úr síðustu fimm leikjum fengið
5 stig. Vænlegt mun því að gizka
á sigur Q.P.R. með jafntefli sem
möguleika, þ. e. 1 X
Hver réttilega útfyllt röð (aðal-
dálkur) telst sjálfstæð getraun og
kostar 75 aura. Sigur fyrir það lið,
sem fyrr er nefnt (félag nr. 1)
er merktur með 1 í vinstri reit að-
aldálksins, jafntefli er merkt með'
X í miðreit aðaladálksins, sigur
fyrir það lið, sem síðar er nefnt
(félag nr. 2) er merktur með 2
í hægri reit aðaldálksins.
Og þessar tölur og merki verður
að skrifa á réttan stað, því að það
er reiturinn, sem merkið er skráð
í, sem sker úr um ágizkunina.
60
SPREYTTU ÞIG!
Sá, sem getur svarað 8 spurn-
ingum rétt, hefur góða þekkingu
á íþróttum og íþróttamálum.
1. Hvað kepptu margir KR-ingar
á Ólympíuleikunum í London?
2. í hvaða íþróttagrein keppir
Kjartan Magnússon?
3. Hvað heitir bezti knattspyrnu-
maður Finnlands?
4. Hver er núverandi formaður
íþróttabandalags framhalds-
skóla í Reykjavík?
5. Hvað hlaut Örn Clausen mörg
atkvæði í atkvæðagreiðslunni
um íþróttamann ársins 1951?
6. Hvað á að lesa úr FDR?
7. Hvar voru Ólympíuleikarnir
haldnir 1932?
8. Hvað eiga Islendingar mörg
N orðurlandamet ?
9. Á þessu ári eru fimm ár liðin
síðan einhver glæsilegasta för
ísl. íþróttafélags var farin.
Hvaða för var það?
10. Hvað hlupu margir íslending-
ar 1500 m. á betri tíma en
4:10.0 s.l. ár? Svör á bls. 71.
„Leichtatletik" birti nýlega lista
yfir 10 beztu frjálsíþróttamenn í
heimi s.l. ár og studdist við heims-
afrekaskrána. Útkoman varð sú, er
hér greinir:
1. Emile Zatopek, Tékkósl.
2. Robert Richards, U.S.A.
3. Adhemar F. da Silva, Brazilíu.
4. Vladimir Kazanzew, Rússl.
5. Emm. McDonald Bailey, Engl.
6. Richard Attlesey, U.S.A.
7. James Fuchs, U.S.A.
8. George Rhoden, Jamaica.
9. Veikko Karvonen, Finnl.
10. Sverre Strandlie, Noregi, og
Herbert Schade, Þýzkal.
IÞRÓTTIR