Allt um íþróttir - 01.03.1952, Page 3
ALLT U M ÍÞRÓTTIR
TÍMARIT UM INNLENDAR DG ERLENDAR ÍÞRDTTIR
RITSTJÓRAR :
RAGNAR INGÚLFSSDN □□ QRN EIÐSSQN
ÁBYRGÐARMAÐUR:
GÍSLI ÁSMUNDSSQN
UTANÁSKRIFT:
TÍMARITIÐ ÍÞRQTTIR,
DRÁPUHLÍÐ 32
2. HEFTI MARZ III. ÁRG.
Um þessar mundir eru aðeins
þrír og hálfur mánuður þar til
Ólympíuleikarnir í Helsingfors
hefjast. Á þessari íþróttahátíð
keppa margar þúsundir íþrótta-
manna og kvenna, og allt bendir
til þess að keppendur verði frá
fleiri löndum en verið hefur áður.
Með fullri virðingu fyrir þeim
löndum, sem staðið hafa fyrir Ól-
ympíuleikum, er óhætt að full-
yrða, að Ólympíuleikarnir 1952
munu skipa veglegan sess í sög-
unni. Finnar hafa hingað til verið
annálaðir fyrir vel skipulögð
íþróttamót, og svo mun og verða
nú.
Við íslendingar höfum nú þegar
tilkynnt þátttöku í leikunum, en
óráðið mun ennþá í hvaða grein-
ar keppendur verða sendir. í hæsta
lagi verða sendir keppendur í þrjár
greinar, þ. e. frjálsíþróttir, sund
og knattspyrnu. Þessa dagana er
deilt hart um það, hvort senda eigi
knattspyrnulið og eru menn ekki
á eitt sáttir í því efni, eins og við
er að búast. Ekki er hægt að neita
því, að knattspyrnumennirnir eiga
það að mörgu leyti skilið að kom-
ast á leikana, og eftir frammistöðu
þeirra í fyrra, þar sem þeir unnu
Svía 4:3, en töpuðu fyrir Norð-
mönnum 1:3 á grasvelli, er alls
ekki víst að útkoman yrði svo
óhugnanleg í Helsingfors. Ef Ól-
ympíunefndin treystir sér til að
afla nægra peninga til að senda
knattspyrnulið, tíu frjálsíþrótta-
menn og fjóra til fimm sundmenn
ásamt öðru fylgdarliði, hví ekki að
gera það?
Vonandi verður það hægt, en þá
verða líka allir að æfa af alúð og
kostgæfni og nota vel þennan
stutta tíma, sem eftir er til leik-
anna.
IÞRÓTTIR
39