Allt um íþróttir - 01.03.1952, Blaðsíða 33

Allt um íþróttir - 01.03.1952, Blaðsíða 33
Ármann og Fram íslands- meistarar í handknattleik. Nýlokið er Meistaramóti íslands í handknattleik. Úrslit urðu þau, að í meistaraflokki karla sigraði Ármann, en í meistarafl. kvenna Knattspyrnufél. Fram. Keppnin um hin sætin í A-deild varð mjög hörð, en neðsta félagið átti að fær- ast niður í B-deild. í byrjun álitu flestir, að Í.R. væri örrugt B-deild- arlið næsta ár, en ÍR-ingar hristu af sér slyðruorðið og unnu tvo síð- ustu leikina. Röðin varð því: Ár- mann, Valur, Víkingur, Fram, Í.R. og K.R. Afturelding vann B-deild- ina. — Sigurvegarar í öðrum flokkum urðu: 1. fl.: Valur. 2. fl.: Víkingur. 3. fl.: Fram. 2. fl. kvenna: Þróttur. Skíðamót Reykjavíkur. Reykjavíkurmeistarar urðu þessi: Svig: Stella Hákonardóttir, K.R. og Ásgeir Eyjólfsson, Á. Brun: Karen Magnúsdóttir, K.R. og Ásgeir Eyjólfsson, Á. Stökk: Hafsteinn Sæmundsson, Í.R. Tvíkeppni: Ásgeir Eyjólfsson. Svíþjóð. Per-Olof Östrand, sem aðeins er 21 árs, setti fyrir skömmu sænskt met í 400 m. skriðsundi á 4:35.7. Gamla metið átti hann sjálfur og var það 4:37.4. Roland Nilsson, kúluvarparinn sænski, sem sigraði Gunnar Huse- by tvisvar hér í Reykjavík fyrir nokkrum árum, dvelur nú í Banda- ríkjunum við nám. Hann hefur ný- lega varpað kúlunni 16.35 m. Noregur: Meistaramótið í stökk- um án atrennu fór ný- lega fram. Per Stavem vann langstökk með 3.30 og Helge Christensen hástökk með 1.57. Bretland. [22 Bikarkeppnin enska er KáKSS nú komin það langt á- leiðis, að farið er að sjá fyrir endann. Er nú aðeins um tvo möguleika að ræða með úrslita- leikinn. Þegar þetta er ritað hefur Newcastle tryggt sér aðild að hon- um annað árið í röð, en andstæð- ingur þess verður annaðhvort Ar- senal eða Chelsea. Blackbum féll úr í undanúrslit- um fyrir Newcastle í annari til- IÞRÓTTIR 69

x

Allt um íþróttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.