Allt um íþróttir - 01.03.1952, Blaðsíða 8

Allt um íþróttir - 01.03.1952, Blaðsíða 8
Kristján Ingólfsson: Afrekaskrá Islendinga í frjálsíþróttum árið 1951. 110 m. grindalilaup: örn Clausen, I.R.................. 14.7 Ingi Þorsteinsson, K.R.............15.0 Haukur Clausen, l.R................15.8 Rúnar Bjarnason, I.R...............17.0 Bjarni Linnet, Ármann ......... 17.0 Valdimar örnólfsson, I.R...........17.1 Tómas Lárusson, Umf. Afturelding 17.3 Eggert Sigurlásson, Týr............17.8 Rúnar GúSmundsson, Umf. Vaka . 17.9 Ólafur Þórarinsson, F.H............18.1 Loksins skauzt Öm undir 15 sek. og tók nú greinilegum framförum. Tími hans skipar honum í hóp beztu grindahlaupara Norðurlanda. Annars er ekki loku fyrir það skot- ið, að Örn eigi eftir að fara neðar. Það hefur ræzt vel úr Inga Þor- steinssyni. Það mun fáa hafa grun- að, þegar hann hóf æfingar, lang- ur og lingerður unglingur, að inn- an nokkurra ára yrði hann orðinn okkar næstbezti grindahlaupari, á tíma, sem myndi sóma sér hvar í heiminum sem væri. Annars hef- ur sannazt hið fornkveðna á Inga, að „æfingin skapar meistarann". Hann hefur með framförum sín- um sýnt það og sannað, hversu langt er hægt að ná, ef vilji og einurð er fyrir hendi. Annars skortir Inga ennþá hraða, og hon- um þarf hann að reyna að ná betri, þá má búast við að hann fari nið- ur úr öllu valdi, því að stíl hefur hann mjög góðan. Haukur Clausen kemur næstur. örn Clausen og Ingi Þorsteinsson sigra í 110 m. grindahlaupi í Osló 1951. Hann hljóp þessa vegalengd nú að- eins einu sinni, þ. e. í tugþraut Reykjavíkurmeistaramótsins. Ef til vill eru tímarnir helzt til of góðir, því að vindur mun hafa ver- ið 2—3 vindstig. — Þá er Rúnar Bjarnason. Sama sagan með hann og Hauk, hljóp vegalengdina að- eins einu sinni, en það er auðvitað allt of sjaldan, ef einhver árangur á að nást. Bjarni Linnet og Valdi- mar Örnólfsson, drengjameistar- inn, tóku framförum. Þessir menn 44 IÞRÓTTIR

x

Allt um íþróttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.