Allt um íþróttir - 01.03.1952, Blaðsíða 10
og gerði það svo vel, að það mun
lengi í minnum haft meðal þeirra,
sem á horfðu. Ekki er gott að
segja, hvernig leikar hefðu farið,
ef þeir hefðu aftur leitt saman
hesta sína á sumrinu, Hreiðar og
Eiríkur.
Þriðji maður hér er Hörður
Hafliðason með mjög sæmilegan
árangur, sama er að segja um Rafn
Sigurðsson, sem þó vantar enn
mjög á þá mýkt, sem hindrunar-
hlaupari þarf að hafa til að bera.
Þeir Guðmundur og Hörður Guð-
mundsson kepptu aðeins einu sinni
Eiríkur Haraldsson
46
í þessari grein á sumrinu. Hygg
ég, að þeirra bíðri meiri framtíð
á sléttri braut en í hindrunar-
hlaupinu.
Stangarstökk:
Torfi Bryngeirsson, K.R............4.32
Kolbeinn Kristinsson, Umf. Selfoss . 3.S0
Bjarni Linnet, Á...................3.60
Jóhannes Sigmundsson, Umf. Hrun. 3.50
Kristleifur Magnússon, Týr .......3.45
Ásgeir GuSmundsson, Umf. ísl. . . . 3.30
Isleifur Jónsson, Umf. Selfoss .... 3.30
FriSrik Hjörleifsson, Týr..........3.30
Bjarni GuSbrandsson, 1.R..........3.25
Baldvin Árnason, l.R..............3.25
Hér er það Torfi, þessi konung-
ur íslenzkra stökkvara, sem ber
höfuð og herðar yfir keppinauta
sína. Torfi tók ágætum framförum
á sumrinu og stóð sig ávallt hið
bezta. I landskeppninni í Osló fór
hann yfir 4.30 — og var þá svo
nálægt því að fara yfir 4.42, en
það hefði verið Evrópumet, að
áhorfendur undruðust kaldhæðni
örlaganna að láta rána ekki tolla
á okunum. Síðan lenti Torfa svo
saman við Evrópu-methafann og
meistarann, sænska rakarann
Ragnar Lundberg. Kepptu þeir
þrisvar saman og bar Svíinn tvisv-
ar sigur úr býtum, en Torfi einu
sinni. En Torfi undi ekki glaður
við þessi úrslit, og þegar honum
seinna á sumrinu var boðið til Sví-
þjóðar m. a. til að keppa við Lund-
berg, lók hann boðinu fegins hendi.
En þegar Torfi kom til Svíþjóðar
var Lundberg þar ekki fyrir —
hafði brugðið sér til útlanda. Því
var nú miður, því ekki er gerlegt
að segja, hvernig samfundum
þeirra hefði lyktað.
Kolbeinn tekur árlega reglu-
IÞRÓTTIR