Allt um íþróttir - 01.03.1952, Blaðsíða 27
Keppnin í 3000 m. hindrunar-
hlaupi kemur til með að verða ein
skemmtilegasta frjálsíþrótta-
keppni leikjanna og líklega verð-
ur Ólympíumet Finnans Iso-Hollo
frá 1936 máð burt. Rússarnir þrír:
Kazanzew, Saltikow og Sawenko
verða skeinuhættir og eftir öllum
sólarmerkjum ætti Kazanzew að
sigra örugglega, en hann setti
glæsilegt heimsmet í fyrra, 8:49.8.
Ekki mun hann samt hljóta titil-
inn baráttulaust, því að Segedin,
Ungverjalandi, Þjóðverjinn Hel-
mut Gude og Blomster, Finnlandi,
sem allir eru mjög góðir hindrun-
arhlauparar, munu veita honum
harða keppni. Svíarnir muna sinn
fífil fegri, en þeir fengu alla verð-
launamennina í London, og er lík-
legt að þeir fái engan núna og jafn-
vel ekki mann meðal sex fyrstu.
Fáir spáðu sigri Cabrera í mara-
þonhlaupinu í London, og hver
sigrar í Helsingfors? Flestir gizka
sjálfsagt á sigur Japanans Tanaka,
sem er með langbeztan tíma s.l. ár,
en hæpið er að miða við tíma í
þessu hlaupi, þar sem oft er hlaup-
ið við ólík skilyrði. Karvonen verð-
ur sjálfsagt mjög skeinuhættur og
Bretar tengja miklar vonir við hina
nýju stjörnu sína, Johnny Peters.
Boðhlaupin vinna Bandaríkaj-
menn örugglega, en keppnin um
hin úrslitasætin verður mjög hörð
og sérstakan áhuga höfum við á
4X100 m., en ekki er alveg úti-
lokað, að hún næði takmarkinu,
þ. e. ef skiptingar verða æfðar vel
— og af hverju ekki að gera það
nú einu sinni?
Sundmót Í.R.
Sundmót Í.R. fór fram í Sund-
höllinni 2. apríl s.l. — Helztu úrslit
urðu þessi:
200 m. skriSs. karla: Ari Guðmunds-
son, Æ. 2:20.4, Pétur Kristjánsson, Á.
2:21.0.
100 m. baks. drengja: örn Ingólfsson,
I.R. 2:27.7, Sigurður Friðriksson, UMFK
1:34.4.
200 m. bringusund: Kristján Þórisson,
UR 2:54.4, Sigurður Þorkelsson, Æ. 3:-
07.5.
100 m. baksund: Hörður Jóhannesson,
Æ. 1:17.3, Rúnar Hjartarson, Á. 1:23.8.
Hörður vann til eignar bikar þann, sem
Jónas Halldórsson gaf til keppni í þess-
ari grein.
100 m. bringus. kvenna: Þórdis Árna-
dóttir, Á. 1:31.8, Guðný Ámadóttir KFK
1:40.2.
100 m. bringus. drengjœ Jón Magnús-
son, I.R. 1:25.5, Sigurður Eyjólfsson,
KFK 1:27.5.
100 m. skriSsund drengjœ Gylfi Guð-
mundsson, I.R. 1:06.7, Sverrir Þorsteins-
son, UMFÖ 1:09.2.
50 m. skriSsund kvenna: Helga Har-
aldsdóttir, K.R. 34.6, Inga Árnadóttir,
KFK 35.4.
50 m. bringus. telpna: Hildur Þor-
steinsdóttir, Á. 44.3, Guðný Árnadóttir,
KFK 44.6.
3 X100 m. þrísund: Ægir 3:42.2, Ár-
mann 3:52.5, I.R. (dr.sv.) 4:00.2, sem
er nýtt drengjamet. — Ægir vann til
eignar bikar, sem Formannafélag I.R.
gaf á sínum tíma.
Franski sundkappinn Alex Jany
var nýlega á ferð í Svíþjóð. Hann
keppti m. a. við Göran Larsson og
sigraði hann í 100 m. á móti í Upp-
sala. Tíminn var 58.4 og 58.5. —
í 50 m. hafði Larsson betur.
IÞRÓTTIR
63