Allt um íþróttir - 01.03.1952, Side 16
það var í Hastings 1934—5, er
hann varð 5., á eftir Sir George
Thomas, Euwe, Flohr og Capa-
blanca, en í stórmótinu í Moskvu
nokkrum vikum síðar náði hann
sér aftur, er hann tók 1. sæti á-
samt Flohr, á undan heimsmeist-
urunum fyrrverandi, Lasker og
Capablanca. Það sannaði, að hinn
24 ára gamli meistari Rússlands
var í flokki 5—6 beztu skáksnill-
inga heimsins.
Árið eftir var haldið annað stór-
mót í Moskvu, tvöfalt mót með
þátttöku 5 erlendra meistara og
5 sterkustu heimamanna. Þetta
mót vann Capablanca með 13 vinn.,
en Botvinnik hlaut 12 v., 2y2 v. á
undan 3. manni, sem var Flohr.
Sama ár staðfesti hann enn betur
í stórmótinu í Nottingham stöðu
sína í fremstu röð, með því að taka
1.—2. sæti með Capablanca, á und-
an heimsmeistaranum Euwe og
Alekhine, Lasker, Fine og Reshev-
sky.
Tvéimur árum síðar var honum
boðið til hins sterka stórmeistara-
móts, sem Avro-viðtækjaverk-
smiðjumar í Hollandi héldu með
þátttöku 8 sterkustu meistaranna.
Botvinnik byrjaði með því að tapa
fyrir Reuben Fine, en vann síðan
Alekhine, Capablanca og Reshev-
sky, en tapaði síðan í 11. umf. fyr-
ir Euwe og varð að láta sér nægja
3. sæti á eftir Fine og Keres.
í reyndinni var hér um nokkurs
konar úrtökumót að ræða, því að
almennt var það skoðun manna,
að hér yrði skorið úr um, hver rétt-
bærastur væri til að skora á heims-
meistarann, en þar eð hvorki Fine
eða Keres gerðu sig líklega til þess,
var Alekhine sent orð um mögu-
leika á einvígi milli þeirra, en
styrjöldin kom í veg fyrir alla frek-
ari samninga um einvígi.
Fyrsti ósigur hans í rússneska
meistaramótinu var 1940, er hann
varð 5.—6. á eftir 2 unglingum,
Smyslov og Bondarevsky, sem
varð efstur ásamt Lillienthal. En
í stað þess að koma á einvígi milli
þeirra tveggja, var gripið til þess
mjög svo furðulega ráðs, að sex
efstu menn mótsins tefldu um tit-
ilinn í 4-földu móti, sennilega
sterkasta meistaramót, sem haldið
hefur verið í nokkru landi. Botvin-
nik sigraði í þessu móti og telur
það glæsilegasta skáksigur sinn.
Hann hlaut l31/2 v., en Keres varð
annar með 11 v.
Eftir að Rússar drógust inn í
styrjöldina, hvarf Botvinnik að
mestu af sjónarsviðinu og mun
hafa starfað í úrölsku iðnaðarborg-
inni Perm til styrjaldarloka. Hann
tók þó þátt í þremur mótum, og
það helzta var meistaramótið 1944,
hið fyrsta síðan 1941. Helzti keppi-
nautur hans var Smyslov, en Bot-
vinnik sigraði hann í harðri skák,
sem fræg hefur orðið, og varð 2
vinningum fyrir ofan hann. Árið
eftir var mótið jafnvel enn sterk-
ara, en Botvinnik var í góðri æf-
ingu, tapaði engri skák og varð
3 vinningum á undan næsta manni.
Vorið 1946 sendi Botvinnik Al-
ekhine áskorun um heimsmeistara-
titilinn og jafnframt samdist svo
um með þeim, að brezka skáksam-
52
1ÞRÓTTIR