Allt um íþróttir - 01.03.1952, Side 28

Allt um íþróttir - 01.03.1952, Side 28
íþróttafélag stúdenta 25 ára, Nýlega varð íþróttafélag stúd- enta 25 ára og minntist félagið af- mælisins með íþróttakeppnum og mótum. Laugard. 31. janúar 1928 var fé- lagið stofnað, lög þess samþykkt og stjórn kosin, en fyrstu stjóm félagsins skipuðu: Þorgrímur Sig- urðsson formaður, Sigurjón Sig- urðsson ritari og Ragnar Ólafsson gjaldkeri. Stofnendur voru 24 alls, þar af ýmsir kunnir menn. Félagið hefur lagt stund á ýms- ar íþróttagreinir, m. a. fimleika, glímu, knattspymu, handknatt- leik, hnefaleika, sund, frjálsar íþróttir, skíðaíþrótt og körfuknatt- leik. Stúdentar hafa staðið sig með miklum ágætum í flestum þessara íþróttagreina og verður ekki farið nánar út í þá sálma hér. Ein af fyrstu sýningum, sem stúdentar tóku þátt í, var glímusýning á íþróttamóti stúdenta frá Norður- Þýzkalandi og Norðurlöndum. Fór mót þetta fram í Kiel. Tóku þátt í för þessari níu stúdentar og heppn- aðist förin ágætlega, en fararstjóri var Guðm. Karl Pétursson stud. med. Almennt hefur íþróttalíf stúd- enta ekki staðið með þeim blóma, sem æskilegt hefði verið. Skortur á húsnæði til hvers konar íþrótta- iðkana frá upphafi til 1949, hefur verið erfiður þrándur í götu fyrir vöxt og viðgang félagsins. Félagið hefur starfað óslitið frá stofnun til 1942, en á tímabilinu 1943—45, að báðum árum meðtöldum, reynd- ist ókleift að halda uppi reglulegu félagsstarfi Árið 1950 hefst nýtt tímabil í sögu félagsins með hæfniskeppni deilda, nýju íþróttahúsi og hisp- urslausri framkvæmd íþrótta- skyldunnar. Og í öðru lagi dugnað- ur þáverandi formanns Í.S., Braga Friðrikssonar, sem einnig kom í framkvæmd gamalli hugsjón um íþróttabandalag framhaldsskóla í Reykjavík. Þessum sundurlausu þönkum um íþróttalíf stúdenta er bezt að ljúka með niðurlagsorðum greinar, er rektor Háskólans ritaði um íþrótta- skylduna og íþróttahúsið í Stúd- entablaðið: „Ég lít nokkur ár fram í tímann. Ég sé unga, vaska stúdenta, er taka þátt í skrúðgöngu annarra íþróttafélaga á hátíðisdögum þjóð- arinnar, í einkennisbúningum sín- um. Ég sé unga stúdenta að leikj- um í íþróttahúsinu, og sé þá ganga keikrétta og samstillta undir stjórn kennarans. Ég heyri svamlið í sundlauginni. Hlátrasköll glymja og gleði ríkir í þessu húsi. Ég sé þá ganga djarfari og vonglaðari til sinnar andlegu vinnu. — Ég sé stúdenta framtíðarinnar." 64 ÍÞRÓTTIR

x

Allt um íþróttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.