Fréttatíminn - 04.09.2015, Síða 2
Jólaferð til Parísar
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Dásamleg jólaferð til einnar glæsilegustu
borgar Evrópu. Töfrandi ljósadýrðin og hin
mikla hátíðarstemning um alla borg skapar
einstaka upplifun í upphafi aðventunnar.
Sp
ör
e
hf
.
26. - 29. nóvember
Verð: 109.900 kr. á mann í tvíbýli.
Mikið innifalið m.a. skoðunarferð
um París!
Everest fagnað í Feneyjum
Á Face
book
síðunni
„Kæra
Eygló Harð
ar – Sýrland
kallar“ hafa
yfir 16.000
manns
boðist til að
bjóða fram
aðstoð til
sýrlenskra
flótta
manna.
Eiríkur Örn
hlaut enn ein
verðlaunin
fyrir Illsku
í vikunni,
frönsku
bókmennta-
verðlaunin
Transfuge.
Salander og Blomkvist
rokseljast
Það sem ekki drepur mann, framhaldið
af milleniumþríleik Stiegs Larsson, rauk
rakleiðis í fyrsta sæti metsölulista
Eymundsson, en bókin kom út á íslensku
í síðustu viku. Það er David Lagerkrantz
sem skrifar þessa viðbót við þríleikinn um
Lisbeth Salander og Mikael Blomkvist,
hinar ofurvinsælu söguhetjur Larssons, og
hefur það framtak mælst misjafnlega fyrir.
Fyrrverandi sambýliskona Larssons, Eva
Gabrielsson, hefur farið hörðum orðum
um bókina og fullyrt að Stieg hefði aldrei
samþykkt skrif hennar. Ýmsir vinir Lars-
sons hafa gengið enn lengra og talað um
skrif og útgáfu bókarinnar sem grafarrán.
Lesendum er þó greinilega slétt sama
um slíkar deilur, þeir vilja sinn skammt af
Salander og Blomkvist hver svo sem hefur
skráð söguna. - fb
Fæstir eldri
borgarar á Völlunum
Eldri borgarar, 65 ára og eldri, voru
alls 40.282 hinn 31. desember 2011,
samkvæmt manntalinu sem Hagstofa
Íslands tók þann dag en kemur fram í
Hagtíðindum sem gefin voru út í vikunni.
Það jafngildir 12,8% mannfjöldans. Hlut-
fallslega bjuggu flestir eldri borgarar í
Laugardal austur í Reykjavík en fæstir á
Völlunum í Hafnarfirði. Atvinnuþátttaka
eldri borgara er mikil hér á landi. Alls náði
hún 20,6% í árslok 2011 þegar allir 65 ára
og eldri voru taldir. Í aldurshópnum 65-69
ára var atvinnuþátttakan 53,2% en 5,7%
hjá sjötugum og eldri.
Arion banki gefur
Landspítala sjúkrarúm
Arion banki hefur fært Landspítala 150
milljónir króna að gjöf sem spítalinn mun
nota til kaupa á nýjum sjúkrarúmum og
dýnum. Með gjöfinni verður spítalanum
gert mögulegt að kaupa 400 ný sjúkrarúm
og dýnur á næstu tveimur árum og verða
þá gömlu rúmin tekin úr notkun. Gert er
ráð fyrir að fyrstu sjúkrarúmin verði tekin
í notkun eftir sex til átta vikur. „Gömlu
rúmin, sem eru mörg hver hálfrar aldar
gömul, eru úrelt og þjóna ekki sama hlut-
verki og nútímarúm sem í dag eru lækn-
ingatæki. Til viðbótar hefur verið erfitt
fyrir starfsfólk að vinna við rúmin þar sem
þau eru mörg hver rangskreið og erfitt er
að hækka þau og lækka. Gjöf Arion banka
mun breyta daglegu lífi sjúklinga og starfs-
fólks á spítalanum,” segir Páll Matthíasson,
forstjóri Landspítala. - fb
Stórmyndin Everest í leik-
stjórn Baltasars Kormáks
var frumsýnd á kvik-
myndahátíðinni í Feneyjum
á miðvikudagskvöldið
og var opnunarmynd há-
tíðarinnar, sem þykir mikill
heiður. Viðtökur hafa verið
góðar, þótt gagnrýnandi
The Guardian hafi reyndar
sagt myndina frústrerandi
stórslys, og meðal annarra
góðra dóma má nefna
fimm stjörnu dóm í Daily
Mail í gær. Everest fer næst
til Frakk lands á Deau ville
kvik mynda hátíðina þar sem
hún verður einnig opn un ar-
mynd hátíðar inn ar. Myndin
byggir á sönnum atburðum
og með aðalhlutverkið fer
Jake Gyllenhaal, en aðrar
stjörnur myndarinnar eru
Keira Knightly, Jason
Clarke, Josh Brolin og Robin
Wright.
Íslenskir áhorfendur þurfa
að bíða um sinn eftir að
meta gæði myndarinnar
sjálfir en hún verður frum-
sýnd hérlendis þann 26.
september. - fb
Bækur Eiríkur Örn norðdahl hlaut frÖnsku transfugE-vErðlaunin fyrir illsku
Illska besta skandinavíska skáldsagan á frönsku
Skáldsagan Illska eftir Eirík Örn
Norðdahl hlaut á miðvikudaginn
frönsku bókmenntaverðlaunin
Transfuge sem besta skandi-
navíska skáldsagan sem birtist í
franskri þýðingu á árinu. Það var
Eric Boury sem þýddi bókina á
frönsku.
„Viðtökurnar í Frakklandi hafa
verið rosalega góðar, dómarnir allir
fram úr hófi jákvæðir og svo var
þetta að detta inn,“ segir Eiríkur
Örn og er að vonum ánægður með
verðlaunin. „Þetta var tilkynnt við
opinbera athöfn á miðvikudaginn,
en höfundarnir vissu ekki einu
sinni af þessu fyrirfram, svo þetta
kom mér algjörlega að óvörum.“
Móttökurnar á Illsku í Frakk-
landi hafa líka komið Eiríki á óvart.
„Það birtust nokkrir dómar áður en
bókin kom út – og það voru send út
eintök á blaðamenn og svona. Og
viðbrögðin voru víst miklu meiri og
betri en þau eru vön. Eric, þýðand-
inn minn, segir mér að ég megi
vera mjög kátur – svona læti séu
ekki sjálfsögð, sérstaklega ekki
með fyrstu bók á tungumálinu.“
Ný skáldsaga Eiríks, Heimska,
kemur út hjá Forlaginu í byrjun
október, en hann segir allt óráðið
um hvort hún verði þýdd á frönsku.
„Nei, það er ekki frágengið neitt.
En forlagið mitt í Frakklandi ákvað
strax í júní að skoða hinar bækurn-
ar mínar, sérstaklega þá Gæsku –
og það liggur allt hjá þýðandanum
mínum, Eric Boury. Ásamt hand-
ritinu að Heimsku, sem er reyndar
seld til Svíþjóðar, en það er önnur
saga.“
Friðrika Benónýsdóttir
fridrika@frettatiminn.is
É g ákvað að hringja bara í Bryndísi því mig langaði svo að hitta hana, segir Eygló Harðardóttir félags-og
húsnæðismálaráðherra en hún og Bryndís
Björgvinsdóttir hittust í velferðarráðu-
neytinu í gær þar sem þær fóru yfir atburði
liðinnar viku.
Frá því að Bryndís stofnaði facebook-
viðburðinn „Kæra Eygló Harðar – Sýrland
kallar“ hafa yfir 16.000 manns boðist til
að bjóða fram aðstoð til sýrlenskra flótta-
manna, hvort sem það er í formi flugmiða,
húsnæðis, matargjafa, fatnaðar, leikfanga,
peninga, félagslegs stuðnings eða vináttu.
„Ég veit að þessu hefur fylgt gífurleg
vinna, áreiti og álag svo ég vildi vita hvort
það væri eitthvað sem ég gæti gert fyrir
hana. Mig langaði líka að heyra frá henni
hvernig við gætum unnið þetta verkefni
áfram svo að sem bestur árangur geti
náðst. Við viljum auðvitað tryggja að þær
upplýsingar sem fyrir liggja komist til
skila á réttan stað,“ segir Eygló og bendir
á að á Facebook-síðunni hafi verið sett upp
aðfangaskráningarsíða þar sem hægt er
að skrásetja frjáls framlög til að geta tekið
á móti flóttamönnum. Síðan verður svo af-
hent Rauða krossinum þann 7. september.
Þrýstingurinn virkaði
„Markmið síðunnar var fyrst og fremst að
sýna stjórnvöldum að við viljum gera betur
og að við getum gert betur,“ segir Bryn-
dís. „Maður finnur fyrir svo mikilli van-
máttarkennd við að horfa á fréttir og finnst
maður ekki geta gert neitt, en við getum
gert þetta. Viðburðurinn heitir Kæra Eygló
því þannig er þrýstingurinn beinn og þetta
virkaði. Eygló er búin að koma inn á síðuna
og svara okkur og það er verið að gera eitt-
hvað,“ segir Bryndís.
„Við erum búin að vera að taka á móti
fleiri flóttamönnum og við vitum hvers
konar verkefni þetta er,“ segir Eygló. „Við
vitum að það skiptir máli fyrir framtíð
þessara einstaklinga að það sé staðið vel
að þessu. Ég bað sjálf um aðstoð almenn-
ings og það að sjá allan þennan fjölda, bæði
fólk sem þrýstir á okkur til að gera meira
en líka fólk sem er tilbúið til að gera sitt,
það er alveg stórkostlegt.“
Vilja taka við fleiri en 50 manns
„Auðvitað veit ég að það veltur ekki á því
hvort að Sigga eða Jón séu að fara að hella
upp á kaffi fyrir flóttafólk hvort að við
tökum við fleirum eða ekki,“ segir Bryn-
dís. „En hugmyndin er miklu frekar sú að
þegar massinn kemur saman þá púslast
þetta allt saman þannig að við getum sýnt
fram á raunverulegan vilja og getu til að
hjálpa fólki. Og það er þrýstingurinn sem
við erum að setja á stjórnvöld með þá von
að tekið verði við fleirum en 50 manns.“
Verður tekið við fleiri flóttamönnum?
„Ég held það liggi fyrir því ef við horfum
til síðustu tveggja ára þá sjáum við fjölg-
un,“ segir Eygló. „Við höfum líka verið að
lagfæra það sem hefur ekki gengið nógu
vel og læra af því sem hefur farið úrskeiðis
þannig að það liggur fyrir að vilji ríkis-
stjórnarinnar er að gera enn betur.“
Sjá einnig síður 10 og 12.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
flóttamEnn yfir 1000 hafa skráð sig hjá rauða krossinum
Ríkisstjórnin vill taka
við fleiri flóttamönnum
Eygló Harðardóttir félags-og húsnæðismálaráðherra og Bryndís Björgvinsdóttir stofnandi
facebook-viðburðarins „Kæra Eygló Harðar – Sýrland kallar“ hittust í velferðarráðuneytinu í
gær, fimmtudag, þar sem þær fóru yfir atburði liðinnar viku. Eygló segir ráðuneytið vera búið að
senda tölvupóst á öll sveitarfélögin þar sem þau eru beðin um aðstoð en nú þegar hafa Reykjavík
og Hafnarfjörður samþykkt að taka upp viðræður varðandi móttöku á flóttamönnum. Hún segir
ríkisstjórnina vilja gera betur við flóttamenn.
Eygló Harðardóttir
velferðarráðherra
og Bryndís Björg-
vinsdóttir rithöf-
undur settust niður
saman í ráðuneytinu
í gær eftir við-
burðaríka viku.
Yfir 16.000 manns
hafa nú skráð sig á
viðburðinn sem var
skapaður til að setja
þrýsting á stjór-
nvöld til að taka við
fleiri sýrlenskum
flóttamönnum. Yfir
1000 manns hafa
skráð sig sem sjálf-
boðaliða hjá Rauða
krossi Íslands frá
því á sunnudag. Ljós-
mynd/Hari
2 fréttir Helgin 4.-6. september 2015