Fréttatíminn - 04.09.2015, Qupperneq 6
ÞÍN STUND
ÞINN STAÐUR
Jahn
Aamodt
Leggur grunn að góðum degi
Faxafeni 5, Reykjavík • Sími 588 8477 | Opið virka daga frá kl. 10-18 & Laugard. frá kl. 11-16
Dalsbraut 1, Akureyri • Sími: 558 1100 | Skeiði 1, Ísafirði • Sími 456 4566 |
www.betrabak.is
TIMEOUT hægindastóllinn er hannaður af Jahn Aamondt með
fagurfræði og þægindi að leiðarljósi. Stóllinn fæst hjá Betra Baki
í ótal útfærslum. Svörtu leðri og hnotu, svörtu leðri og ljósri eik,
lime grænu, rauðu eða hvítu leðri og svörtum botni, brúnu leðri
allan hringinn, gráu slitsterku áklæði o.fl., með eða án skemils.
Svart leður og hnota
379.980
krónur með skemli
Ég skildi ekki
hvað það var
erfitt að finna
út úr því
hvað landið
hefði upp á
að bjóða og
hversu flókið
það var að
raða saman
ferðalaginu.
Góðar horfur eru í íslenskum
efnahagsmálum og árangur
hefur náðst á mörgum sviðum,
en áskoranir eru enn til staðar.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu
OECD, Efnahags- og framfara-
stofnunarinnar, en slíkar skýrslur
eru gefnar út á tveggja ára fresti,
að því er fram kemur á síðu fjár-
mála- og efnahagsráðuneytisins.
Angel Gurría, framkvæmdastjóri
stofnunarinnar, kynnti helstu
niðurstöður skýrslunnar ásamt
Bjarna Benediktssyni fjármála-
og efnahagsráðherra. Gurría
sagði efnahagsbatann hérlendis
eftirtektarverðan og viðsnúning-
inn meiri og hraðari en í öðrum
Evrópuríkjum eftir fjármálaáfallið.
„Við teljum horfur almennt góðar,
en hins vegar er ljóst að ekkert
má gefa eftir. Ísland stendur enn
frammi fyrir þeim áskorunum að
tryggja sjálfbæran hagvöxt, sér í
lagi að styrkja undirstöður efna-
hagslegs stöðugleika, festa í sessi
árangurinn í ríkisfjármálum og
efla framleiðnivöxt,“ sagði Angel
Gurría.
Helstu niðurstöður skýrslunn-
ar eru þær að verðbólga hefur
minnkað, erlend staða þjóðarbús-
ins hefur batnað, opinberar skuldir
hafa lækkað, atvinnuleysi hefur
minnkað og færri fjölskyldur búa
við fjárhagserfiðleika. Áætlun
um afnám fjármagnshafta er
fagnað en hvatt er til varfærni við
losunina sem raskar ekki efna-
hagslegum stöðugleika. Miklar
launahækkanir sem ákveðnar voru
í nýlegum kjarasamningum eru
langt umfram framleiðniaukningu
og verðbólgumarkmið og munu
krefjast aðhalds í peningamálum
sem dregur úr hagvexti.
Jöfnuður hefur náðst í ríkisfjár-
málum og opinberar skuldir hafa
lækkað. Nýgerðir kjarasamningar
geta haft neikvæð áhrif á sjálf-
bærni í ríkisfjármálum til lengri
tíma. Auka þarf aðhald til að
tryggja áframhaldandi árangur.
Áhætta felst í lífeyrisskuldbinding-
um hins opinbera og vanda Íbúða-
lánasjóðs. Mikilvægt er, segir á
síðu ráðuneytisins, að draga úr
þessari áhættu og skapa svigrúm,
m.a. með lækkun skulda ríkis-
sjóðs. -jh
Efnahagsmál ný skýrsla OECD
Eftirtektarverður efnahagsbati hérlendis
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra.
E f ég á að vera alveg hreinskilinn þá koma þessi verðlaun okkur ekkert svakalega á óvart. Við erum búin
að vera að fá svo ótrúlega góðar umsagn-
ir frá öllum okkar viðskiptavinum að við
höfum bara aldrei séð annað eins,“ segir
Hilmar Halldórsson, framkvæmdastjóri
íslensku vefsíðunnar tripcreator.com,
sem hlaut í gær WebAward verðlaunin
sem besti ferðavefur heims árið 2015.
Fékk hugmyndina fyrir 11 árum
WebAward verðlaunin hafa verið veitt ár-
lega frá því 1997 fyrir vefsíður sem þykja
framúrskarandi í sínum flokki. Meðal
sigurvegara í öðrum flokkum má nefna
stór fyrirtæki á borð við Virgin Atlantic,
Mercedes Benz, AT&T, Samsung og
Adidas. Hilmar segir vefinn hafa verið í
þróun frá því í janúar 2013 þó hugmyndin
hafi fæðst miklu fyrr. „Ég fékk hug-
myndina þegar ég var á leið til Kanada
árið 2004. Ég skildi ekki hvað það var
erfitt að finna út úr því hvað landið hefði
upp á að bjóða og hversu flókið það var
að raða saman ferðalaginu,“ segir Hilmar
sem vann á þeim tíma á Argus auglýs-
ingastofu. Hann gekk með hugmyndina í
maganum í nokkur ár eða þar til hann fór
í frumkvöðlafræði árið 2012 og stofnaði
svo fyrirtækið árið 2013 þegar fyrsti fjár-
festirinn kom til sögunnar og boltinn fór
að rúlla.
70% ferðamanna bóka í gegnum
netið
Vefurinn býr til tillögu að ferðaáætlun
fyrir Íslandsferð sem notendur geta
breytt og bætt að vild. Þegar notandinn
er orðinn sáttur við áætlunina sína getur
hann bókað alla gistingu, afþreyingu og
bílaleigubíl með einum smelli. Notand-
inn hefur þannig aðgang að öllum ferða-
gögnum á einum stað og fær ítarlega
ferðaáætlun sem hann getur prentað út
og haft meðferðis. Helgi bendir á að vef-
urinn sé mikið þarfaþing nú þegar ferða-
þjónusta fer í síauknum mæli í gegnum
netið. „Samkvæmt Ferðamálastofu plana
rúmlega 70% ferðamanna sjálfir ferðirnar
sínar í gegnum netið. Í Bandaríkjunum
eru það 85% ferðamann sem leita sjálfir,
svo þetta er stór markaður. Það hefur
alltaf staðið til að fara með þetta til ann-
arra landa en hins vegar vildum við ná
góðum tökum á þessu á Íslandi áður. Nú
er varan komin á það stig svo við erum að
skoða nýja markaði. Það tekur allt sinn
tíma en það verða spennandi tímar.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
nýsköpun 70% fErðamanna bóka í gEgnum nEtið
Íslensk vefsíða valin besti
ferðavefur heims 2015
Íslenski ferðavefurinn tripcreator. com hlaut í gær hin virtu Webaward verðlaun sem besti
vefurinn í sínum flokki. Hilmar Halldórsson, framkvæmdastjóri vefsins, stofnaði fyrirtækið árið
2013 og hefur fylgst með því vaxa síðan. Hann segir verðlaunin ekki hafa komið starfsmönnum
það mikið á óvart þar sem allir þeirra viðskiptavinir séu yfir sig ánægðir.
Hilmar Halldórsson ásamt kampakátum samstarfsfélögum sínum eftir að hafa fengið fregnir af verðlaununum. Starfsmenn
Tripcreator.com eru nú 11 talsins og er fyrirtækið með skrifstofur í Kópavogi og í Vilníus. Ljósmynd/Hari
6 fréttir Helgin 4.-6. september 2015