Fréttatíminn - 04.09.2015, Síða 16
Hann er
reyndar
fjórtán árum
yngri en
ég, en hann
reykir svo
hann er
miklu elli-
legri.
HEILHVEITIKEXIÐ HEFUR EIGNAST FULLKOMINN JAFNINGJA
– NÝJA HAUST HAFRAKEXIÐ
HAUST FJÖLSKYLDAN STÆKKAR
LJÚFFENGT PAR SEM ALLIR ELSKA
K jartan bróðir leikur móðurina, Frið-riku, og ég og Ólafía
Hrönn leikum börnin henn-
ar,“ útskýrir Árni Pétur
Guðjónsson spurður um
hlutverkaskipan í nýju verki
Björns Hlyns Haraldssonar,
Móðurharðindunum, sem
er fyrsta frumsýning Þjóð-
leikhússins á þessu hausti.
„Auk okkar leika í verkinu
þeir Sigurður Sigurjónsson
og Hallgrímur Ólafsson,“
bætir hann við.
Spurður hvernig Kjartan,
yngri bróðirinn, geti leikið
móður hans hnussar Árni
Pétur. „Hann er reyndar
fjórtán árum yngri en ég,
en hann reykir svo hann er
miklu ellilegri. Það er orðin
hefð fyrir því að láta okkur
leika bræður en eins og
komið er kemur þetta mun
betur út. Hann er orðinn
svo gamall.“
Árni Pétur lýsir verkinu
sem svartri kómedíu og
segir að þótt hláturinn sé
sjaldan langt undan hjá
áhorfendum þá sé líka
Hlátur og högg í magann
Árni Pétur Guðjónsson
leikur son bróður síns
Kjartans í nýju verki
Björns Hlyns Haralds-
sonar, Móðurharðindin,
sem frumsýnt verður í
Kassanum annað kvöld,
laugardag.
verið að fjalla um mjög sára og erfiða hluti. „Einn
áhorfandinn lýsti því þannig að það skiptust á
hlátrar og högg í magann,“ segir hann. „Það
koma þarna upp á yfirborðið sárindi og gamlar
væringar sem ég held að flestir þekki úr eigin
fjölskyldu.“
Hann vill þó ekki meina að þeir bræður, hann
og Kjartan, eigi eitthvað svipaða fjölskyldu og þá
sem sést á sviðinu. „Nei, ég get ekki sagt að það
séu nein sláandi líkindi. Við spunnum reyndar
dálítið á æfingatímabilinu og sögðum öll sögur úr
eigin fjölskyldum sem Björn Hlynur fléttaði inn í
verkið, en þessi fjölskylda í leikritinu er á engan
hátt byggð á okkar fjölskyldu.“
Í efnislýsingu Þjóðleikhússins á Móðurharð-
indunum kemur fram að atburðarás verksins
snúist í kringum heimkomu barnanna tveggja
til að vera við jarðarför föður síns og öll þau fjöl-
skylduleyndarmál sem upp vella við slíkar að-
stæður. Árni Pétur vill ekki samþykkja þá tillögu
mína að verkið sé ádeila á hið hefðbundna ís-
lenska fjölskylduleikrit, en segir vissulega verið
að leika sér með þá klisju. „Við erum mikið að
vinna með klisjur í þessu verki,“ segir hann. „Það
er gert grín að alls konar heilögum kúm, eins og
tólf spora kerfinu og fleiru, og hinu hefðbundna
fjölskyldudrama, auðvitað. En það er líka óhugn-
aður í loftinu og áhrif frá Hitchcock og film noir
eru greinanleg. Það eru eiginlega undirliggjandi
hrollvekjustraumar þótt yfirborðið sé létt.“
Friðrika, móðirin, er fulltrúi hins gamla tíma,
fín frú sem aldrei hefur unnið úti og á engin líf-
eyrisréttindi. Árni Pétur segir verkið að hluta
til uppgjör við gamla Ísland og ættarsnobbið.
„Þetta er svona Thoroddsen, Briem, Shciöth
fjölskylda, allt óskaplega fínt og snobbað á yfir-
borðinu en undir eru bara morknaðar spýtur
og morknir leðurstólar, það er enginn grunnur
fyrir snobbinu lengur. Gamla Ísland er úrelt
og morknað og börnin sem áttu að taka við
ættarveldinu hafa klúðrað öllu í lífinu, eins og
gengur, svo það er dálítið erfitt að sjá á hverju
hið nýja Ísland byggir eiginlega. Grunnurinn er
ekki traustur.“
Auk þess að vera höfundur verksins er Björn
Hlynur Haraldsson einnig leikstjóri þess. Axel
Hallkell gerir sviðsmynd og hann er einnig bún-
ingahönnuður ásamt Leilu Arge. Um lýsingu sér
Ólafur Ágúst Stefánsson og dramatúrg er Símon
Birgisson. Frumsýnt verður í Kassanum annað
kvöld, 5. september, og sýningar út september
eru komnar í sölu í miðasölu Þjóðleikhússins.
Friðrika Benónýsdóttir
fridrika@frettatiminn.is
Hver er
Árni Pétur
Guðjónsson
Fæddur:
19. ágúst 1951
Nám: Leiklistarskóli
Íslands og Statens
Teaterskole í Kaup-
mannahöfn
Leikferill: Hefur
leikið í ótölulegum
fjölda sviðsverka,
sjónvarpsþátta og
kvikmynda meðal
annars Börk í Hæ
Gosa, Diðrik í Stellu
í framboði, Svikar-
ann í samnefndum
einleik og Pabbann
í Rándýri, en um
leik hans þar sagði
Jón Viðar Jónsson:
„Árni Pétur
þarf ekki nema
örlítið augnaráð til
að sýna sársauka
sem engin orð ná til
að tjá.“
?
16 leiklist Helgin 4.-6. september 2015