Fréttatíminn - 04.09.2015, Síða 32
Sara Hjördís fékk mjög góða dóma á Edinborgarhátíðinni í ár. Ljósmynd/Hari
Er best í því
að setja saman
Ikea húsgögn
Edinborgarhátíðin í Skotlandi er ein stærsta leikhúshátíð
Evrópu. Á ári hverju eru þúsundir leiksýninga ungra og
efnilegra sviðslistamanna sýndar í heilan mánuð og keppast að-
standendur um athygli mörg hundruð þúsunda gesta sem sækja
þessa hátíð ár hvert. Sara Hjördís Blöndal er nýútskrifaður leik-
mynda- og búningahönnuður og flutti nýverið heim. Hún vann
að þremur sýningum á hátíðinni, sem allar fengu mjög lofsam-
lega dóma. Sara segir hátíðina geta verið mikinn stökkpall og er
strax farin að undirbúa þátttöku að ári.
S ara Hjördís útskrifaðist í sumar frá UAL Wimbeldon College of Art í London og
var ráðin til að hanna bæði sviðs-
mynd og búninga fyrir þrjár enskar
sýningar á Edinborgarhátíðinni í ár.
„Námið mitt heitir á ensku „Theater
Design,“ en margir halda að ég hafi
lært að hanna leikhús, sem er ekki
raunin,“ segir Sara. „Ég var að læra
að hanna allt sem fer á svið, fyrir
utan lýsingu. Fyrsta verkefnið sem
ég vann að sem fór á Edinborgarhá-
tíðina er verk sem heitir A&E. Það
var samstarfsverkefni skólans míns
og leiklistarskóla sem heitir East
15 í London. Þau skrifa, leikstýra,
framleiða og leika í fimm leikritum
og fá hönnuði frá mínum skóla í
samstarf, svo þetta var skólaverk-
efni hjá mér sem vatt ansi mikið upp
á sig,“ segir hún. „Ég byrjaði á því í
október á síðasta ári, og ég fékk að
vera með í öllu handritsferlinu, sem
var mjög áhugavert. Við vorum öll
nemendur svo við vorum öll að læra
af hvort öðru, sem var frábært,“ seg-
ir Sara. „Það var frumsýnt í febrú-
ar og fór svo á hátíðina nú í ágúst.
Í framhaldi af þessu hafði Álfrún
Gísladóttir leikkona samband við
mig í janúar, og bað mig að hanna
fyrir sig leikrit sem hún var ekki
enn komin með handrit að. Ég tók
það að mér án þess að vita um hvað
leikritið ætti að vera,“ segir Sara.
Leikritið heitir The Lost Art of Lost
Art og segir Sara það hafa verið
gaman að taka þátt í handritsferl-
inu að verkinu. „Ég fékk að frekjast
aðeins, en bara smá í leikmyndar-
tengdum atriðum,“ segir hún.
Skrá
ðu
þig n
úna!
Danskennarasamband Íslands | Faglærðir danskennarar
www.dansskoli.is | dans@dansskoli.is | sími 553 6645
Erum flutt í Síðumúla 30
„Þriðja verkefnið er í rauninni
verkefni sem ég talaði mig inn
á,“ segir Sara. „Þar eru það aftur
krakkarnir úr East 15 skólanum,
og mig langaði að vinna með þeim
aftur. Ég fékk að vera með og það
var eins og áður að því leytinu til
að ég fékk að vera með í ferlinu,“
segir hún. „Það er leikrit sem heitir
Leftovers og er líka að fá mjög fína
dóma í Edinborg.“
Emma Thompson mætti ekki
Allar sýningarnar hafa fengið fjög-
urra stjörnu dóma í fjölmiðlum sem
skrifa um verkin sem eru á hátíð-
inni, og segir Sara gagnrýni skipta
miklu máli því gestir hátíðarinnar
sækja frekar sýningar sem eru lof-
aðar.
„Við erum bara búin að fá fjórar
stjörnur frá öllum helstu miðlun-
um þarna úti og það skiptir gríð-
arlegu máli fyrir sýningarnar, því
framboðið er svo svakalegt,“ seg-
ir Sara. „Það eru margar hátíðir í
borginni í ágúst svo samkeppnin er
mikil. Í Edinborg búa um 500 þús-
und manns og í ár var búist við um
750 þúsund gestum sem kæmu til
borgarinnar vegna hátíðarinnar og
á henni eru 3500 leiksýningar. Því
er mjög mikilvægt að vekja athygli
og fá góða dóma,“ segir hún. „Það
er keppst um hvern gest og þeir
lesa dómana til þess að upplýsa sig.
Svo stöndum við úti á götu 6 tíma
á dag til þess að fá fólk til þess að
koma. Þessa vegna er líka mikil-
vægt fyrir okkur að geta flaggað
þessum dómum,“ segir Sara. „Það
er mjög lærdómsríkt að labba upp
að fólki og segja þeim að maður sé
að gera stórkostlega sýningu, sem
þau verði að sjá, og maður verður að
vera sannfærandi. Ég labbaði t.a.m
upp að Emmu Thompson og tjáði
henni að hún yrði að koma og sjá
sýninguna okkar,“ segir Sara. „Hún
hefur ekki enn látíð sjá sig.“
Getur smíðað
Sara hefur fengið lof í öllum dóm-
um um sýningarnar og sérstaklega
fyrir Leftovers, og The Lost Art
of Lost Art, þar sem hún lét endur-
hanna málverkið Ópið eftir Edward
Munch. „Það hefur mikið verið rætt
um það sem og leikmyndina í Lefto-
vers þar sem sú leikmynd er mjög
tæknileg þó hún sé á litlu sviði,“
segir Sara sem þarf að búa yfir
smíðakunnáttu þegar kemur að því
að hanna leikmyndir. „Ég er ágætur
smiður, en er samt best í því að setja
saman IKEA húsgögn,“ segir hún.
„Þetta er samt spurning um að vita
hvað maður vill og treysta öðrum
til að búa það til. Ég vona auðvi-
tað að þetta veki einhverja athygli
á mér og minni vinnu. Ef ekki þá
er þetta samt gríðarleg reynsla og
stórkostlegt ævintýri og ég er strax
farin að plana hvað við ætlum að
sýna á næstu hátíð eftir ár,“ segir
hún. „Ég var að flytja heim og bý á
Akranesi þar sem okkur manninum
mínum langar að ala upp son okkar.
Ég er mjög spennt að komast inn í
íslensku leikhússenuna og það eru
ýmis verkefni á borðinu hér heima
sem eru á viðræðustigi,“ segir Sara
Hjördís Blöndal leikmynda- og bún-
ingahönnuður.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
32 viðtal Helgin 4.-6. september 2015