Fréttatíminn - 04.09.2015, Side 36
Skilningurinn á því hvernig maður á að vera er of þröngur, segir Atli Bollason. Sem betur fer er þetta allt að breytast og við
erum að verða frjálsari. Mynd Hari
Gullpottur
við enda
regnbogans
Atla Bollason kannast margir við. Hann er áberandi í
listaheiminum og er tíður gestur á tónleikum og listvið-
burðum ýmiskonar. Atli er þrítugur bókmenntafræðingur sem
er með mörg járn í eldinum. Hann hefur unnið fyrir kvik-
myndahátíðina RIFF í mörg ár og á hátíðinni í ár leikur hann í
einni af kvikmyndunum sem sýndar verða. Hann tekur hverju
verkefni og hverri hugmynd fagnandi og segir að ferill manns
sé bara samansafn af þeim hlutum sem hann hefur tekið þátt
í. Atli Bollason er ólíkindatól.
A tli Bollason hefur starfað við kvikmyndahátíðina RIFF frá árinu 2005, ef undanskil-
in eru tvö ár þegar hann var í námi í
Kanada. Hann er titlaður ritstjóri há-
tíðarinnar. „Ég held ég sé búinn að
vera þarna næst lengst af öllum sem
starfa við hátíðina,“ segir Atli. „Ég
hef verið í hinum og þessum hlut-
verkum á þessari hátíð en í dag er ég
fyrst og fremst ráðgjafi og ritstjóri
hátíðarinnar,“ segir hann. „Mín þátt-
taka er þó minni í ár en oft áður.“
Verkefnin mörg og ólík
Atli lærði bókmenntafræði í Há-
skóla Íslands og tók svo masters-
gráðu í fræðunum í Kanada. Hann
er með mörg járn í eldinum og það
er ekki hægt að segja að Atli Bolla-
son sé að gera eitthvað eitt. „Ég geri
allan andskotann,“ segir hann. „Í
vetur hef ég verið að vinna í auglýs-
ingagerð, ég hef skrifað mikið um
tónlist og menningu og hef einnig
verið að vinna sem plötusnúður.
Ég hef leikið og skrifað og í vetur
var ég meðframleiðandi á heimild-
armyndinni Íslenska krónan sem
frumsýnd var í lok vetrar og verður
á dagskrá RÚV í vetur. Ég sé ekki
af hverju maður ætti að binda sig
við eitthvað eitt þegar maður hefur
áhuga á svona mörgu,“ segir hann.
„Það hefur allavega gengið hingað
til og ég held að það gangi alltaf
ef maður er bara opinn fyrir því
að gera hvað sem er og hafi engar
áhyggjur af því að vera að eltast við
eitthvað eitt. Þá koma hlutirnir bara
til manns og ég er til í að prófa eigin-
lega allt,“ segir Atli. „Bókmennta-
fræðin er vítt hugtak og hún hef-
ur þróast á þann veg að hún meiri
merkingarfræði. Hvort sem um er
að ræða bókmenntir, kvikmyndir
og samfélagið allt. Mér hefur þótt
gaman að nota þessi tól þegar ég er
að vinna.“
Tónlistin alltaf nálægt
Atli var meðlimur í hljómsveit-
inni Sprengjuhöllinni fyrir um tíu
árum. Sá félagsskapur vakti mikla
athygli á þeim stutta tíma sem hann
var starfræktur en Atli hefur alltaf
unnið að tónlist, og með tónlistar-
mönnum. Hann hefur samið texta
fyrir Hjaltalín og Gus Gus og í haust
kemur út plata með Helga Björns
þar sem Atli samdi texta. „Ég hef
alltaf verið að dútla mér í músíkinni
en textarnir eru eitthvað sem hafa
orðið ofan á í bili,“ segir Atli. „Ég
hef líka verið í ráðgefandi hlutverki
hjá Hjaltalín. Svo er maður alltaf
með einhver verkefni opin í tölvunni
heima, en það er fyrst og fremst
hobbí. Það er skemmtilega ólíkt
að gera texta fyrir Hjaltalín annars
vegar og Helga Björns hins vegar,“
segir hann. „Tónlistin slær alltaf
tóninn í textagerðinni. Helgi er oft
með einhverja hugmynd, eða frasa
sem hægt er að vinna með á meðan
Hjaltalín er oft með einhvern bull-
texta í upphafi sem ég hef unnið út
frá með Högna Egilssyni, söngvara
sveitarinnar. Helgi er svo á íslensku
og Hjaltalín á ensku. Helgi er popp-
aðri og Hjaltalín meira á jaðrinum.
Þetta eru ólík viðfangsefni en bæði
mjög skemmtileg,“ segir Atli.
Verður sjálfur á tjaldinu
Á RIFF í ár er kanadísk kvikmynd
sem heitir O, Brazen Age. Það sem
er merkilegt við þá mynd er að Atli
leikur eitt hlutverka myndarinnar.
Hann segist hafa gaman af því að
leika, en hefur ekki hugmynd um
hvort hann sé góður leikari. „Þegar
ég var í náminu í Kanada gerði ég
tilraunir til þess að leika, sem ég
hafði aldrei gert,“ segir Atli. „Ég
kynntist leikstjóranum Alexander
Carson og við urðum ágætis vinir og
ég lék í tveimur stuttmyndum sem
hann hefur gert. Svo síðasta haust
var hann að framleiða sína fyrstu
mynd í fullri lengd og ég fór út til
Toronto og lék í henni,“ segir Atli.
„Myndin heitir O, Brazen Age, eða
Ó, skammlausa öld eins og ég þýddi
titilinn fyrir dagskrá RIFF. Þetta er
sjálfstæð mynd, eða „indie“ eins og
það er kallað. Fjallar um unga lista-
menn í Toronto sem eru að reyna að
fóta sig í lífinu og ekki síst að skilja
við æskuna og hluti sem hafa fylgt
þeim frá barnæsku, og hefja fullorð-
ið líf. Ég leik bara einn af þessum
listamönnum,“ segir Atli.
„Mér finnst þetta skemmtilegt.
Ég hef haft áhuga á bíói lengi og þó
ég hafi ekki verið mikið að koma
fram sem leikari þá er þetta ekki
alveg ókunnugt mér. Ég kom oft
fram með öðrum hætti í mennta-
skóla og síðar. Var í Morfís og slíku.
Sprengjuhöllin var líka „perform-
ance“ atriði, og mér finnst þetta
mjög skemmtilegt. Þetta er bara
eitt af mörgu og ég sé mig ekkert
endilega festast í þessu.“
Ertu góður leikari?
„Ég vona það,“ segir Atli og
hlær. „Það er kannski ekki mitt að
dæma.“
Krútt-kynslóðin á prent
Verkefnin hefur aldrei vantað hjá
Atla og hann segist taka öllu því
sem á vegi hans verður, ef það hent-
ar honum. Hann er með bók í smíð-
um og einnig er hann að takast á
við mjög stórt verkefni á næstu vik-
um. „Ég er að eignast mitt fyrsta
barn í október,“ segir hann. „Það
er væntanlegt þremur vikum eftir
RIFF, svo ég fer að undirbúa það
og reyna að átta mig á hvernig það
gengur fyrir sig. Samhliða því að
standa í barnauppeldi ætla ég að
taka upp þráðinn í skrifum á bók
um krútt-kynslóðina, sem ég hef
verið að dunda mér við í eitt og
hálft ár. Ég fór að rannsaka þetta
síðasta sumar. Bókin ætti að koma
út á næsta ári, eða þar næsta. Ef
allt gengur upp þ.e.a.s.,“ segir Atli.
„Krútt-kynslóðin er kannski rang-
nefni þegar talað er um kynslóð.
Þetta er meiri hópur. Þó einhver
sé fæddur á einhverju árabili þá
þarf sá sami ekkert að vera partur
af þessari kynslóð,“ segir hann.
„Þetta hugtak er notað um ákveðna
lista-senu, og það er hún sem ég er
að skoða. Þegar ég var táningur var
þessi sena að koma upp og fram-
koma þessa fólks hafði mikil áhrif á
mig,“ segir Atli. „Maður sér þessar
hugmyndir ennþá bergmála í sam-
félaginu. Þetta sprettur allt út frá
Björk. Það sem mér finnst merki-
legast og mig langar að skoða, er
það að þetta fór út úr því að vera
einhver smá sena, yfir í það að vera
eitthvað sem ferðamannaiðnaður-
inn hefur tekið upp.
Inspired by Iceland er unnið úr
þessari hugmyndafræði. Það sem
var bara einhver smáhreyfing varð
að ímynd Íslands og breyttist auðvi-
tað heilmikið á leiðinni,“ segir Atli.
„Það finnst mér mjög áhugavert.
Um leið er þetta mjög stórt verk-
efni og ég hef aldrei skrifað bók
áður,“ segir hann og hlær. „Maður
verður bara að leggja af stað og sjá
hvað gerist. Eins og með allt. Ég hef
stundum velt því fyrir mér, þegar
fólk spyr mig hvað ég sé að gera,
hvort ég sé ekki að byggja neitt
upp, sökum þess hversu mörg og
ólík verkefnin mín eru,“ segir hann.
„Engan starfsframa. En á endanum
er starfsframinn bara listi af því
sem maður hefur gert. Mér finnst
spennandi að það sé ekki bara í einu
fagi, eða einu fyrirtæki eða á einu
sviði. Heldur að það sé meiri regn-
bogi,“ segir hann.
Ertu aldrei hræddur um að regn-
boginn sé búinn?
„Er ekki gullpottur við enda regn-
bogans?,“ segir Atli og hlær.
„Svo lengi sem hlutirnir ganga
upp. þá er þetta í lagi. Maður þarf
ekki að breyta hlutunum ef þeir
virka. Eins og ég segi þá er skiln-
ingurinn á því hvernig maður á að
vera of þröngur. Sem betur fer er
þetta allt að breytast og við erum að
verða frjálsari. Það er ekkert leiðin-
legra en að halda að lífsstíll manns
sé betri en þess næsta. Það er bara
hallærislegt,“ segir Atli Bollason.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Ég geri allan
andskotann,
Það hefur
allavega
gengið hing-
að til og ég
held að það
gangi alltaf
ef maður er
bara opinn
fyrir því að
gera hvað
sem er.
36 viðtal Helgin 4.-6. september 2015