Fréttatíminn - 04.09.2015, Side 56
56 heilsa Helgin 4.-6. september 2015
Jógaferð í landi guðanna
K erala fylki, eða land guðanna, á Suður-Ind-landi er sannkölluð paradís fyrir líkama og sál. Úrval Útsýn býður upp á tveggja vikna
ferð til Kerala í lok október þar sem lögð verður
áhersla á heilsu og vellíðan. Í boði verður sjö daga
Ayurvedísk Pancha Karma hreinsun hjá hinum
virta Dr. P. Sambhu sem rekur meðferðarstofu
við Kovalam ströndina. „Ayurveda
fræðin eru þúsund ára gömul fræði
og koma úr hinum fornu Veda-rit-
um á Indlandi, þeim sömu og jóga
heimspekin kemur frá. Ayurveda
þýðir í raun „Vísindi lífsins“ og
hafa Indverjar notað þessa þekk-
ingu í árþúsundir til að ná og við-
halda góðri heilsu,“ segir Kristína
Haraldsdóttir, en hún mun sjá um
fararstjórn í ferðinni ásamt Ólafíu
Wíum. Þær verða ferðalöngum inn-
an handar og munu leiða þá í gegn-
um jógatíma daglega. Auk þess
mun jógakennarinn Jinu Vibhoothy
leiða jóga við sólarupprás valda
daga sem hentar öllum, bæði byrj-
endum og lengra komnum.
„Ayurveda hreinsunin felst í að
afeitra líkamann og boðið verð-
ur upp á meðferðir á hverjum degi sem henta
hverjum og einum, svo sem nudd, olíumeðferðir
og fleira,“ segir Kristína. Í ferðinni verður lögð
áhersla á að fólk hafi góðan tíma aflögu á milli
meðferða til að njóta sín eftir eigin höfði enda lagt
upp með að ferðin verði afslöppuð. Síðustu þremur
dögunum verður eytt í sögulegu hafnarborginni
Kochi. „Þar eru margar góðar verslanir og mark-
aðir auk skraddara á hverju götuhorni. Hótelið
okkar er við Forth Kochin ströndina svo fyrir þá
sem það vilja er upplagt að slappa af á ströndinni,
eða láta dekra við sig á einum af mörgum nudd-
eða spa-stöðum í nágrenninu,“ segir Ólafía. Nán-
ari upplýsingar um ferðina og bókanir má nálgast
á heimasíðu Úrval Útsýn, ww.uu.is
Unnið í samstarfi við
Úrval Útsýn
Úrval Útsýn | Hlíðasmára 19 | 201 Kópavogi | 585 4000 | uu.is
INDLAND JÓGA & AYURVEDA
27. OKTÓBER – 10. NÓVEMBER 2015
Kristína Haraldsóttir
FARARSTJÓRAR
Ólafía Wíum
Úrval Útsýn | Hlíðasmára 19 | 201 Kópavogi | 585 4000 | uu.is
INDLAND JÓGA & AYURVEDA
27. OKTÓBER – 10. NÓVEMBER 2015
Kristína Haraldsóttir
FARARSTJÓRAR
Ólafía Wíum
Þarmaflóran hefur áhrif
á skap og líkamsþyngd
Þessi venjulegi
heimilismatur
er alltaf holl-
astur, matur
þar sem inni-
haldslýsingin
er helst engin
eða mjög stutt.
Rannsóknir sína í auknum mæli hversu mikilvæg þarmaflóran er heilsu okkar.
Sýnt hefur verið fram á að fjölbreytileiki baktería í þörmum hefur ekki aðeins
áhrif á líkamlega heilsu okkar heldur einnig andlega heilsu. Birna Ásbjörns-
dóttir næringarfræðingur segir hollan og lítið unnan mat vera bestu leiðina til
að viðhalda heilbrigði þarmaflórunnar.
Þ eir sem eru með færri bakteríur í þörmunum og minni fjölbreytni eru líklegri til þess að vera of þungir eða
með ákveðin krónísk vandamál. Því fjöl-
breyttari þarmaflóra, því minna af vanda-
málum,“ segir Birna Ásbjörnsdóttir næring-
arfræðingur sem vinnur um þessar mundir
að meistarverkefni sem snýr að meltingar-
veginum og þarmaflórunni.
Áhrif á taugakerfið
Birna segir allar nýjustu rannsóknir benda
til þess að fjölbreytileiki þarmaflórunnar
jafnist á við heilt líffæri. „Þarmaflóran er stór
hluti af ónæmiskerfi líkamans og hún hefur
einnig mjög mikil áhrif á taugakerfið og þar
með geðheilsu og líðan. Rannsóknirnar eru
enn margar hverjar enn á frumstigi en það
er samt farið að sýna fram á þetta samband
og það eru stórar fréttir. Við vitum líka fyrir
víst að þarmaflóran hefur mikil áhrif á hver-
skyns bólgur og sýkingar.“
Fæðumst án flórunnar
„Það sem gerir þetta líffæri öðruvísi en önn-
ur er að það er áunnið, því við fæðumst án
þarmaflóru,“ segir Birna. „Í fæðingunni byrj-
um við að fá í okkur bakteríur sem búa svo
um sig í meltingarveginum til frambúðar.
Fyrstu þrjú ár ævinnar eru mjög krítískur
tími sem hefur mikil áhrif á það hvernig
þessar bakteríur þróast og vaxa. Ef við t.d
fáum mikið af sýklalyfjum á þessum árum
getur það haft mikil áhrif á heilsu okkar til
frambúðar. Auðvitað eru sýklalyf mjög góð
og nauðsynleg en ofnotkun er áhyggjuefni
því þau drepa bakteríur í þörmunum sem
eru okkur nauðsynlegar og skilur okkur
því eftir í ákveðnu ójafnvægi. Nýjustu rann-
sóknir sýna að það eru tengsl á milli lélegrar
þarmaflóru og t.d ofnæmis og astma.“
Mikilvægt að borða lítið unnar matvörur
Birna segir hollt fæði skipta sköpum fyrir
þarmaflóruna. „Ef við borðum fæði sem er
ekki næringarríkt þá nærum við sveppi og
óæskilegar örverur sem geta valdið bólgum
og jafnvel öðrum sjúkdómum. Þess vegna
þurfum við alltaf að huga að því þegar við
borðum hvaða jarðveg við erum að rækta
innvortis. Óhollur matur veikir kerfið okkar.
Það er því ekki bara það að við förum á mis
við góða næringu þegar við borðum óhollt,
heldur erum við þá líka að næra það sem við
viljum ekki næra. Við erum þá að næra veik-
leika okkar.“ -hh
Besta leiðin til að
viðhalda heilbrigðri
þarmaflóru
n Almenna reglan er
að borða sem minnst
af unnum mat-
vælum og sem mest
af hreinu og óunnu
fæði. „Þessi venjulegi
heimilismatur er
alltaf hollastur, matur
þar sem innihalds-
lýsingin er helst engin
eða mjög stutt.“
n Það er ekki nauð-
synlegt að taka inn
gerla ef við borðum
fjölbreytt fæði. „Inn-
taka gerla eykur samt
fjölbreytni flórunnar
og getur því bara gert
okkur gott.“
n Fæða sem hjálpar:
Jógúrt og mjólkurvör-
ur með AB-gerlum,
gerjaðar og sýrðar
afurðir eins og súrkál
eru líka mjög góðar.
„Við vorum alls ekki
svo vitlaus í gamla
daga því súrmaturinn
er mjög góður til að
brjóta niður fæðið
fyrir okkur.“
Birna Ásbjörnsdóttir er að ljúka meistargráðu
í næringarlæknisfræði frá Surrey-háskóla og
meistaranámi í gagnreyndum heilbrigðisfræðum
við Oxford-háskóla. Hún hefur starfað sem
næringarráðgjafi um árabil og haldið fjölda nám-
skeiða og fyrirlestra.
Kristín
Haraldsdóttir
og Ólafía Wium
sjá um farar-
stjórn
M
yn
d/
G
et
ty
Rau›arárstígur 14, sími 551 0400 · www.myndlist.is
laugardaginn 22. ágúst 11–19
mánudaginn 7. september
og þriðjudaginn 8. september
uppboðin hefjast kl. 18
Listmuna-
uppboð
í Gallerí Fold
Á uppboðinu verður gott úrval verka
samtímalistamanna svo og fjöldi frábærra
verka gömlu meistaranna.
Hægt er að skoða
uppboðsskrána á
myndlist.is
Forsýning á verkunum
alla helgina í Gallerí Fold
föstudag kl. 10–18, laugardag kl. 11–17,
sunnudag kl. 12–17, mánudag kl. 10–17,
þriðjudag kl. 10–17
(þau verk sem boðin eru upp á þriðjudag)
Jóhannes
S. Kjarval
Kristín
Jónsdóttir
Sæmundur
Valdimarsson
Louisa Matthíasdóttir