Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.09.2015, Síða 64

Fréttatíminn - 04.09.2015, Síða 64
64 matur & vín Helgin 4.-6. september 2015 ER HJÁ GAMAN FERÐUM Frá: Nóvember: 26.-29. Desember: 3.-6. Innifalið er flug með sköttum, gisting í 3 nætur á Leonardo Hotel Berlin Mitte með morgunverði. * Verð miðað við 26.-29. nóvember. 72.900 kr.Frá: Aðventuferð í Berlín Frá: Frá: DRAUMA FERÐIN Gaman Ferðir fljúga með WOW air / www.gaman.is / gaman@gaman.is Nóvember: 13.-15. / 20.-22. / 27.-29. Desember: 4.-6. (Uppselt 11.-13.) Innifalið er flug með sköttum, gisting í 2 nætur á Radison BLU Scandinavia með morgunverði og matarveisla á Gröften í Tívolíinu. 69.900 kr. Julefrokost í Köben September: 24.-27. Október: 1.-4. / 8.-11. Innifalið er flug m. sköttum, gisting í 3 nætur á Academy Plaza Hotel með morgunverði. *Verð miðað við 24.-27. september. 59.900 kr.Frá: Dublin September: 18.-20. Innifalið er flug með sköttum og gisting í 2 nætur á Holiday Inn Brighton m. morgunverði. 59.900 kr. Brighton September: 18.-20. / 25.-27. Innifalið er flug með sköttum og gisting í 2 nætur á Holiday Inn Regent Park með morgunverði. 59.900 kr. London  Bjór Fyrsti íslenski BruggBarinn verður opnaðar innan tíðar Fyrsti íslenski bruggbarinn verður opnaður á Grandagarði í næsta mánuði. Þar geta gestir notið matar og bjórs sem bruggaður verður á staðnum af Bergi Gunnarssyni bruggmeistara. Bergur er með meistaragráðu í bruggun og eimun frá háskóla í Skotlandi og hyggst fyrst um sinn brugga þrjá bjóra á staðnum. Þeir verða fleiri í framtíðinni auk þess sem árstíðabundnir bjórar verða á boðstólum. H ér á landi hafa sprottið upp lítil brugghús eins og Gæðingur, Kaldi og Borg. Ég vona að við tökum þátt í því að halda áfram að auðga bjórmenningu Íslendinga,“ segir Bergur Gunnarsson bruggmeistari. Bergur er bruggmeistari á Bryggjunni brugg- húsi sem opnað verður í næsta mánuði úti á Granda. Bryggjan verður til húsa að Grandagarði 8, á jarðhæð í sama húsi og CCP. Framkvæmdir standa nú yfir á staðnum og Bergur er farinn að huga að framleiðsl- unni. „Þetta verður fyrsti staður sinnar tegundar á Ís- landi, svokallaður „brew pöbb“ eða bruggbar, eða veitingastaður þar sem bjórinn er bruggaður á staðn- um. Þarna geta gestir komið og borðað og séð um leið hvað er í gangi inni í brugghúsinu. Þar er maður að brugga meðan fólkið er að drekka bjór sem er framleiddur hinum megin við glerið,“ segir Bergur. Brakandi ferskur bjór, beint af kúnni Hann segir að 16 bjórdælur verði á staðnum og fyrst um sinn verði þrjár tegundir af bjór bruggaðar á staðnum, annað verði keypt erlendis frá og af brugg- húsum hér á landi. „Við verðum með lager, Pale Ale og IPA til að byrja með en svo bætum við vonandi fleiri bjórum við eftir nokkra mánuði. Það eru klárar uppskriftir fyrir fyrstu þrjá bjórana en við ætlum að prófa okkur áfram með þetta, það er ekki greypt í stein hvernig þessir bjórar verða. IPA-inn getur til dæmis verið mismunandi eftir því hvenær þú kemur á staðinn. Það skiptir náttúrlega öllu máli að hann sé nýr og ferskur og það er gulls ígildi að geta boðið upp á IPA og Pale sem kom af kútunum fyrir þremur eða fjórum tímum.“ Vill líka framleiða gin Bergur segir jafnframt að stefnan sé að brugga árs- tíðabundna bjóra, svo sem jólabjóra, páskabjóra og sumarbjóra. „Við höfum töluvert gerjunarpláss og getum gert það sem við viljum, innan skynsamlegra marka.“ Þá er til skoðunar að framleiða sérstakt hús-gin fyrir Bryggjuna. Ekki er byrjað að brugga á Bryggjunni ennþá. „Það er verið að setja upp græjurnar. Nú eru rafvirkjar og píparar að vinna í þessu. Vonandi getum við byrjað að brugga á næstu tveimur vikum,“ segir Bergur. Búinn að drekka mikið af bjór að undanförnu Bergur er 28 ára gamall og lauk prófi í efnafræði frá Háskóla Íslands áður en hann skellti sér í meistara- nám í bruggun og eimum við Heriot-Watt háskólann í Edinborg. „Ég var nú bara hálf stefnulaus eftir há- skólann, sá þetta nám á netinu og fannst ansi spenn- andi. Þetta reyndist rosalega gaman,“ segir hann en fram að þessu hafði hann aðeins prófað að brugga sjálfur, án þess þó að sökkva sér neitt ofan í fræðin. Eftir að hann lauk námi starfaði Bergur á Microbar í Austurstræti og prófaði sig áfram í bruggun áður en hann var ráðinn á Bryggjuna. „Ég er búinn að drekka mikið af bjór undanfarna átta mánuði – en allt innan marka þó,“ segir hann. Bergur var til að mynda einn þeirra sem stóðu að MIB-bjórnum sem kom á markað snemma á þessu ári í takmörkuðu upplagi og seldist upp á rúmum sólarhring í Vínbúðunum. „Það kom á óvart hvað það gerðist fljótt. Það getur vel verið að við hittumst aftur, þessi hópur manna, og gerum eitthvað,“ segir bruggmeistarinn. Hver er svo eftirlætis bjórstíllinn þinn? „Úff, þetta er eins og að spyrja hver er uppáhalds maturinn manns. Það fer bara eftir því í hvernig stuði maður er hverju sinni. Stundum eru það súr- bjórar, stundum mjög beiskir IPA-bjórar og stundum 11 prósent Imperial Stout-ar. En ætli ég drekki ekki mest af IPA-bjórum, það er svona „go to“-bjórinn minn.“ Hröð þróun í bjórmenningunni hér Bergur fagnar bættri bjórmenningu á Íslandi og þeim breytingum sem hafa orðið á skömmum tíma með börum sem sérhæfa sig í handverksbjórum. „Við byrjuðum seint út af bjórbanninu en þetta hef- ur allt gerst hratt. Er það ekki bara smá íslenskt? Þegar eitthvað verður töff, þá hoppa allir rakleiðis um borð. Við gerum þetta ótrúlega oft, það eru fjöl- mörg dæmi í sögu landsins um svona æði. En þegar fólk er búið að venja sig á það að drekka bjór með bragði, eins og einhver orðaði það, þá er það ekkert að fara aftur til baka. Það var vant því að drekka gulan kolsýrðan vökva með prómillum í en nú er úr nægu að velja.“ Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is Bergur Gunnarsson er með meistarapróf í bruggun og eimun. Hann verður bruggmeistari á Bryggjunni brugghúsi sem opnað verður á Grandagarði í næsta mánuði. Ljósmynd/Hari Bergur bruggar á Bryggjunni
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.