Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.09.2015, Qupperneq 76

Fréttatíminn - 04.09.2015, Qupperneq 76
Nils Lundgren mun koma fram með Hot Eskimos í Hörpu. Tónleikar sveitarinnar verða á föstudaginn í næstu viku, 11. september.  TÓNLIST EINN VIRTASTI DJASSTÓNLISTARMAÐUR SVÍA Á TÓNLEIKUM Í HÖRPU Sænski básúnuleikarinn og söngvarinn Nils Land- gren leikur með djass- tríóinu Hot Eskimos í Hörpu þann 11. septem- ber næstkomandi. Nils Landgren er einn virtasti djasstónlistarmaður Svía og nýtur mikilla vinsælda víða um heim. Hann er fjölhæfur tónlistarmaður og margverðlaunaður fyrir verk sín. Jón Rafnsson, bassaleikari Hot Eskimos, segir Nils frábæran söngvara og efnisvalið vera blöndu af plötum Landgren og Hot Eskimos. Nils Landgren ásamt eskimóum H ot Eskimos gáfu árið 2011 út geisla-diskinn „Songs from the top of the world“ sem hlaut geysigóðar viðtök- ur og er nýr diskur þeirra félaga, „We Ride Polar Bears“, væntanlegur í verslanir núna í lok ágúst. Hot Eskimos hafa gjarnan leikið sér að því að setja þekkt rokk- og popplög í djassbúning og það hefur Nils reyndar gert töluvert líka, svo það verður spennandi að sjá hvað kemur út úr þessu samstarfi. „Þetta samstarf kemur nú bara til vegna þess að ég hef þekkt Lundgren í einhver fimm- tán ár,“ segir Jón Rafnsson bassaleikari Hot Eskmos. „Svo var Karl Olgeirsson, píanóleik- ari tríósins, staddur í Svíþjóð og sér hann á tón- leikum og heillaðist algerlega af honum,“ segir hann, en þriðji meðlimurinn er svo Kristinn Snær Agnarsson trommuleikari. „Ég segi bara við Kalla að við fáum hann bara yfir til þess að spila með okkur og Nils leist strax vel á. Þetta er búið að taka langan tíma þar sem hann vinnur mjög mikið og er mikið bókaður. Hann er mikill vinnuþjark- ur. Við ætlum að spila lög af sólóplötunum sem hann hefur sent frá sér í gegnum árin,“ segir Jón. „Hann hefur gert mikið af fallegum ball- öðum og svo tökum við líka lög þar sem við sprettum úr spori. Hann er stórt nafn í Evrópu og stórstjarna í Þýskalandi, til að mynda. Við stofnuðum Hot Eskimos árið 2010 og höfum komið fram reglulega. Við höfum gert mikið af því að taka þekkta popp-smelli og sett þau djassbúning. Allt frá Jóhanni G til Ásgeirs Trausta ásamt því að á nýju plötunni eru tvö lög eftir Karl, svo við erum farnir að smygla frumsömdu efni að,“ segir Jón Rafnsson. Á tónleikunum í Kaldalóni, þann 11. sept- ember, mun myndverk eftir myndlistarkon- una Kristínu Gunnlaugsdóttur leika hlut- verk sviðsmyndar og hefur hún oft unnið með tónlistarmönnum um allan heim. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is Vegglistaverk Errós, Frumskógardrottningin. Frumskógardrottning Errós afhjúpuð Listasafn Reykjavíkur býður til formlegrar afhjúpunar á vegg- listaverkinu Frumskógardrottningin eftir Erró við Íþróttamiðstöðina Austurberg í dag, föstudaginn 4. september klukkan 15.15. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri afhjúpar veggmyndina. Boðið verður upp á tónlist og veitingar við afhjúpun verksins. Leikskólabörnin frá leik- skólanum Ösp mæta og syngja við undirspil Tónskóla Sigursveins, að því er fram kemur í tilkynningu listasafnsins. Erró gaf Reykvíkingum verkið og útfærði það í samráði við Listasafn Reykjavíkur á tvær byggingar í Breiðholti, annars vegar á fjölbýlis- hús við Álftahóla og hins vegar á íþróttamiðstöðina Austurberg. Álftahólaverkið, sem nefnist Réttlætisgyðjan, var afhjúpað á síðasta ári. Hluti þeirra myndar var svo yfirfærður á vegg íþróttamiðstöðvar- innar við Austurberg en að þessu sinni er það Frumskógardrottningin sem er í aðalhlutverki. Veggmyndirnar mynda þannig eina heild. Borgarráð ákvað fyrir tveimur árum að fjölga listaverkum í opinberu rými í Breiðholti og er verkið hluti af því átaki. Verkefninu er ætlað að breiða út list í opinberu rými utan miðborgarinnar, fegra hverfið og skapa umræðu. Síðustu tvö ár hafa fimm stór vegglistaverk verið sett upp í hverfinu eftir listamennina Erró, Theresu Himmer, Söru Riel og Ragnar Kjartansson auk minni veggmynda eftir unga listamenn úr frístundamiðstöðinni Miðbergi. Listasafn Reykjavíkur hefur haft umsjón með verkefninu sem hefur verið unnið í samráði við íbúa í Breiðholti og hverfisráð. Frönsk stórstjarna í nýrri mynd Kristínar Upptaka Útvarpsleik- hússins á Blindu konunni og þjóninum eftir Sigurð Pálsson í leikstjórn Krist- ínar Jóhannesdóttur er tilnefnd til Prix Europa, evrópsku ljósvakamiðl- averðlaunanna, í f lokki stakra útvarpsleikrita í ár. Tilkynnt verður um verð- launahafa og verðlaunin afhent þann 23. október en leikstjórinn, Kristín Jóhannesdóttir, á síður von á að vera viðstödd verð- launaafhendinguna, enda hefur hún öðrum hnöppum að hneppa þessar vikurnar. Hún er þó að vonum sæl með tilnefninguna og vitnar í son sinn á fyrsta skóladegi hans: „Þetta er stórkostlega þokkalegt, eins og barnið sagði,“ segir hún hlæjandi. Ástæðan fyrir því hversu upp- tekin Kristín er þessa dagana er að hún er á fullu við undirbúning gerðar sinnar fyrstu kvikmyndar síðan Svo á jörðu kom út árið 1992. Nýja myndin hefur hlotið vinnuheit- ið Alma, sem þýðir sál en er einn- ig nafn aðalpersónunnar, sem Elma Stefanía Ágústsdóttir leikur. „Það er allt komið í gang og verið að undirbúa á öllum vígstöðvum,“ segir Kristín. „Ég er að æfa núna og það gengur vel, enda er ég með alveg ótrú- lega magnaðan hóp af fólki með mér. Það stend- ur t i l að byrja tökur um mánaða- mótin októ - ber/nóvember og þetta er svo viðamikið og upp- tökustaðirnir svo margir að líklega verðum við í tökum framundir vor.“ Fyrir utan einvalalið íslenskra leikara sætir það mestum tíðindum að franska leikkonan Emm- anuelle Riva mun leika eitt af aðalhlutverkum myndarinnar, hvernig kom það til? „Það var haft samband við umboðsmann hennar sem veitti okkur aðgang að henni og ég bara hringdi í hana. Við spjölluðum lengi og það fór vel á með okkur. Ég er náttúrulega búin að fylgjast með þessari konu síðan ég kom fyrst í kvikmyndanám út til Frakklands og myndin Hiroshima, mon amour var stórkostleg uppgötvun fyrir mig á sínum tíma.“ Þetta er íslensk mynd úr ís- lenskuEmmanuelle Riva vakti síð- ast heimsathygli fyrir leik sinn í myndinni Amour sem hlaut bæði Gullpálmann og Óskarsverðlaunin. Hún á að baki glæstan feril og er enn eftirsótt leikkona, þrátt fyrir árin 89. Kristín segir hana hafa orðið mjög hrifna af handrit- inu og ólm viljað vera með. „Ég varð mjög hissa en hún var bara svo heilluð af þessu handriti að hún sagði strax að hún myndi koma en bætti svo við „Flýttu þér að gera þetta því ég er orð- in gömul og það er ekki eftir neinu að bíða.“ Friðrika Benónýsdóttir fridrika@frettatiminn.is Emmanuelle Riva. Kristín Jóhannesdóttir. 76 menning Helgin 4.-6. september 2015
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.