Fréttatíminn - 04.09.2015, Page 82
Ægisgarður
hefur verið
opnaður þar
sem Seglagerðin
Ægir var áður
til húsa.
Ægisgarður er
brugghús og
einkaskemmti-
staður í eigu
Víking ölgerðar
og Finna, sem
kenndur er við
Prikið. Ljósmynd/
Hari
Skemmtanir einkaSkemmtiStaður og brugghúS til heiðurS bjórmenningu opnar
Hundrað milljóna Ægisgarður úti á Granda
Aldarfjórðungi eftir að bjór var leyfður blómstr-
ar bjórmenning á Íslandi sem aldrei fyrr. Úti á
Granda er nú búið að reisa nýtt brugghús og
einkabjórstað undir nafninu Ægisgarður sem
opnaður var á dögunum. Það eru Finni á Prikinu,
eða Guðfinnur Sölvi Karlsson eins og hann heitir
fullu nafni, og Víking ölgerð sem standa að Ægis-
garði. Seglagerðin Ægir var rekin í sama hús-
næði um langt árabil.
Framkvæmdirnar hafa ekki farið hátt en um er
að ræða nálægt 100 milljóna króna fjárfestingu,
samkvæmt heimildum Fréttatímans. Hvorki náð-
ist í Finna né forsvarsmenn Víking vegna þessa
í gær.
Ægisgarður er ekki hugsaður fyrir gesti og
gangandi heldur verður þetta eingöngu einka-
staður og er þegar byrjað að taka við bókunum.
Slík einka- veitingahús og skemmtistaðir hafa
notið vaxandi vinsælda í borgum erlendis. Sam-
kvæmt upplýsingum Fréttatímans verður boðið
upp á skemmtiprógramm, bæði fyrir innlenda
hópa og túristahópa, undir heitinu Víkinga-leikar.
Búið er að setja upp stærðarinnar bruggkúta
inn af staðnum þar sem hægt verður að brugga
sérbjóra í takmörkuðu magni en ekki hefur verið
tekin ákvörðun um hvenær sú framleiðsla hefst.
Ekki eru heldur uppi áform um að flytja fram-
leiðslu á Víking, Thule og Einstök-bjórunum frá
Akureyri þó Víking sé nú að koma sér upp föstu
heimili á höfuðborgarsvæðinu. -hdm
Mjölnir í Keiluhöllina?
Húsnæði Keiluhallarinnar við Öskjuhlíð
hefur staðið autt að undanförnu eftir að
rekstur hennar lagðist af. Ýmsir munu hafa
rennt hýru auga til húsnæðisins en því
heyrist nú fleygt að Jón Viðar Arnórsson
og hans fólk í bardagafélaginu Mjölni
muni hreppa hnossið. Ef það reynist rétt
þýðir það enn meiri sókn Mjölnis sem
hefur stækkað með hverju árinu. Búast
má við því að viðskiptavinir Mjölnis getið
notið matar og drykkjar á veitingastað í
Öskjuhlíðinni, fari svo að starfsemin flytjist
þangað.
Atli flytur heim
Kvikmyndatónskáldið Atli Örvarsson ætlar
að flytja heim frá Los Angeles með fjöl-
skyldu sína. Atli og Anna, eiginkona hans,
og tvö börn ætla að setjast að á Akureyri,
heimabæ hans, að því er fram kemur á
vef Hringbrautar. Atli samdi á dögunum
tónlistina við kvikmyndina Hrúta og hlaut
lof fyrir.
Sigurður eignaðist strák
Hljómsveitin Hjálmar treður upp á Ljósa-
nótt í Reykjanesbæ í kvöld og á Húrra á
laugardagskvöld. Sigurður Guðmundsson,
hljómborðsleikari sveitarinnar með meiru,
eignaðist sitt annað barn á miðvikudag
og munaði minnstu að hann kæmist ekki
til landsins í tæka tíð fyrir hljómleikana.
Sigurður og Tinna Ingvarsdóttir, kona
hans, eru búsett í Noregi. Þau eignuðust
strák og mun öllum heilsast vel.
Escobar í Hafnarstræti
Nokkrar vikur eru nú síðan
skemmtistaðnum Dolly var
lokað í Hafnarstræti. Eins og
Fréttatíminn hefur greint frá
hyggur athafnamaðurinn
Jón Gunnar Geirdal á opnun
nýs skemmtistaðar í þessu
húsnæði. Endurbætur
á því standa nú yfir
og mun nýi staðurinn
kallast Escobar.
Latínóstemning verður
á staðnum með til-
heyrandi kokteilum
og tekílaskotum.
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
ré
tt
t
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
www.heimsferdir.is
Costa del Sol
Frá kr. 69.900
Netverð á mann frá kr. 69.900 m.v. 2 + 2 í íbúð.
Netverð á mann frá kr. 89.900 m.v. 2 í íbúð.
Aguamarina á
17. september í 10 nætur
Hljómsveitin Hjaltalín vinnur
nú að nýrri plötu. Við upptök-
urnar hafa Sigríður Thorlacius
og félagar meðal annars
notið aðstoðar Gunnars Tynes úr
hljómsveitinni múm. Stefnt er að
útgáfu á næsta ári.
Hjaltalín í upptökum
Einar Björn Árnason, kokkur úr Vestmannaeyjum, segir það draumadjobbið að elda ofan í landsliðið.
Fótbolti einar björn eldar oFan í landSliðið á Ferðalögum
Kolbeinn er dug-
legastur að borða
Kokkurinn Einar Björn Árnason, sem rekur veitingastaðinn Einsi kaldi í Vestmannaeyjum, ferð-
aðist með íslenska landsliðinu til Hollands á dögunum til þess að hafa yfirumsjón með mataræði
íslensku landsliðsstrákanna. Hann segir verkefnið skemmtilegt og krefjandi og segir það sam-
eina sín stærstu áhugamál. Fótbolta og matargerð. Einsi mun ferðast með landsliðinu til Tyrk-
lands í vetur og heldur í drauminn um Frakkland.
Þ að er öruggt að drengirnir fá hollan og góðan mat ef þeir eru með kokk frá Vest-mannaeyjum,“ segir Einar
Björn Árnason kokkur sem fór með
íslenska landsliðinu til Hollands í
vikunni.
„Þetta kemur nú til af því að Heim-
ir kom inn í eldhús til mín á Einsa
kalda á dögunum og var sposkur á
svip og ég vissi alveg hvað hann var
að fara að biðja mig um, og ég kink-
aði bara kolli,“ segir hann. „Ég vann
með honum með ÍBV-liðið þegar
hann var að þjálfa þar og ég sá um
mataræði liðsins. Ég hef kynnt mér
mikið mataræði í kringum íþróttir
og hollustu og því var þetta spenn-
andi fyrir mig,“ segir Einar. „Ég
verð með þeim í Tyrklandi líka og
vonandi lokakeppnina í Frakklandi.
Þetta er algert draumadjobb og sam-
einar áhugamálin mín, fótbolta og
matargerð.“
Fréttatíminn ræddi við Einar í
gær, fimmtudag, og var hann búin
að útbúa fjórar máltíðir á dag fyrir
leikmennina undanfarna daga. Hann
segir auðsótt að sækja sér topp
hráefni í Hollandi, en telur það meiri
áskorun þegar hann fer til Tyrklands.
„Hér í Hollandi eru miklir fagmenn
og mitt starf er að hafa aðhald í
gæðum,“ segir hann. „Ég var búinn
að senda þeim matseðil og svo er
það mitt að hafa umsjón með því að
hlutirnir séu gerðir rétt,“ segir hann.
„Ég sé til þess að þeir fái rétt magn
af öllu, bæði fyrir og eftir leik. Ég tók
út allt hvítt. Það er mikið bygg, salat
og brún hrísgrjón, og svo auðvitað
kjöt og fiskur. Fiskurinn kemur svo
að sjálfsögðu frá Vestmannaeyjum,“
segir Einar og hlær.
„Ég var að dæma í matreiðslu-
keppni hér í Hollandi fyrir mánuði á
vegum Vinnslustöðvarinnar í Eyjum
og pantaði þá þann fisk sem mig
vantaði fyrir strákana. Þorskhnakka
og meira fínerí. Þetta verður aðeins
meiri áskorun í Tyrklandi,“ segir
Einar. „Kokkarnir hér í Hollandi eru
frábærir og við höfum vingast vel.
Tveir af þeim eru búnir að þiggja boð
mitt til Eyja næsta sumar, meira að
segja. Strákarnir eru allir duglegir
að borða, en ætli Kolbeinn sé ekki
duglegastur, held ég.“
Einar var bjartsýnn fyrir leikinn
á leikdegi. „Ísland vinnur 2-1, ekki
spurning,“ sagði Einar Björn Árnason
á leikdegi í Hollandi, en úrslit lágu
ekki fyrir þegar blaðið fór í prentun.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Kokkarnir hér
í Hollandi eru
frábærir og við
höfum vingast
vel. Tveir af
þeim eru búnir
að þiggja boð
mitt til Eyja
næsta sumar,
meira að
segja.
82 dægurmál Helgin 4.-6. september 2015