Fréttatíminn - 11.09.2015, Page 4
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
UP! MEÐ
STUÐIÐ
e-Up! rafmagnsbíll verð frá:
2.990.000 kr.
Við finnum
mjög mikið
fyrir því þegar
ferðamenn-
irnir koma inn
til okkar hvað
þeim finnst
gaman að geta
komið og rætt
við listamenn-
ina sjálfa.
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
Vætusamt annars staðar en á Vestur-
landi. lítið eitt kólnar.
HöfuðborgarsVæðið: Skýjað, en
úrkomulauSt að kalla.
s-átt og léttir til n-lands.
Víðast þurrt.
HöfuðborgarsVæðið: Skýjað og
SmáSkúrir eða Suddi.
Víða rigning, einkum austanlands.
kólnar fyrir norðan.
HöfuðborgarsVæðið: að meStu
þurrt en fremur þungbúið.
lítið verður um sól og
rignir víða um land
Stormlægðirnar eru úr sögunni í bili, en
ekkert lát er á því að regnþrungið loft
sæki að okkur. einkum mun rigna
suðaustan- og austanlands, en suðvestan-
vert landið sleppur að mestu við vætuna.
annars verðum við að milli
„kerfa“ á laugardag og
ágætis veður víðast þá.
Spáin er þó ekki eins hag-
stæð og var fyrr í vikunni.
mestu hlýindin eru einnig
að baki og úr þessu fer
kólnandi. ekki er þó
frosthætta næstu daga.
12
9 9
10
11
10
10 13
11
11
9
5 6
7
9
einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
vikan sem var
Afþakkar launaálag
Helgi Hrafn gunnarsson, þingmaður
Pírata, hefur tekið við formennsku
í flokknum af Birgittu Jónsdóttur.
rétt eins og forverinn afþakkar Helgi
sérstakt launaálag sem fylgir for-
mennskunni, sem nemur tæpum fjórum
milljónum króna á ári. Píratar spara
ríkinu rúmlega 15 milljónir króna á kjör-
tímabilinu.
Sumarbörn í salti
enn bólar ekkert á frumsýningu kvik-
myndarinnar Sumarbarna. framleið-
endur hennar fengu 97 milljónir króna í
styrk frá kvikmyndamiðstöð árið 2013,
sama ár og tökum á henni lauk. til stóð
að frumsýna myndina árið 2014 en ekk-
ert hefur verið gefið út um frumsýningu
síðasta árið. Í frétt Viðskiptablaðsins
segir að Kvikmyndamiðstöð geti krafist
endurgreiðslu styrksins verði myndin
ekki kláruð.
27 metra tré
tréð sem talið er vera hæsta tré
lands ins nálg ast nú 27 metr a. tréð er
sitka greni sem gróður sett var á kirkju-
bæj arklaustri árið 1949.
Felldi niður mál gegn Þorsteini
Sérstakur saksóknari hefur fellt niður
mál á hendur þorsteini má baldvinssyni
og nokkrum starfsmönnum Samherja,
er varðaði meint brot á lögum um
gjaldeyrismál. þorsteinn er ósáttur við
vinnubrögð Seðlabankans í málinu.
Guðbjartur með krabbamein
guðbjart ur Hann es son, þingmaður
Sam fylk ing ar inn ar, tekur ekki sæti á
alþingi á næstunni. Hann greindist með
krabbamein í sumar og heyr nú baráttu
við það.
Íslenska karlalandsliðið
tryggði sér þátttökurétt
á em í knattspyrnu sem
haldið verður í frakk-
landi næsta sumar með
jafntefli við Kasakstan
á sunnudagskvöld.
þessum merka áfanga
var fagnað á ingólfstorgi
þá um kvöldið. Ísland er
fámennasta þjóðin sem
komist hefur á em. búist
er við því að þúsundir
Íslendinga muni fylgja
liðinu eftir í frakklandi.
ísland á em!
maría Valsdóttir stóð vaktina í Skúmaskoti þar sem tíu listakonur og hönnuðir sýna og selja verk sín auk þess að selja verk annarra hand-
verks- og listamanna. . Ljósmynd/Hari
skipulagsmál gallerí og listmunaverslun víkur Fyrir nýbyggingu
Undarlegt að hrekja
listamenn úr miðbænum
gallerí Skúmaskot sem rekið er af tíu listakonum og hönnuðum verður að rýma húsnæði sitt við
laugaveg fyrir mánaðamót. rífa á húsið, sem stendur á brynjureit, og byggja nýtt hús þar sem
gert er ráð fyrir að verði íbúðir, hót el og versl an ir.
Þ etta kemur svo sem ekki á óvart, við höfum leigt þetta húsnæði frá mánuði til mánaðar og alltaf vitað
að þetta væri tímabundið ástand, en við
fengum bara að vita að við þyrftum að
fara 1. október núna um mánaðamótin
og mánaðarfyrirvari er ansi knappur,“
segir Elín Haraldsdóttir keramiker, ein
þeirra tíu listakvenna og hönnuða sem
rekið hafa galleríið og listmunaverslun
ina Skúmaskot í bakhúsi við Laugaveg
23 í rúmt ár en hefur nú verið gert að
rýma húsnæðið fyrir 1. október þar sem
til stendur að rífa það. „Við erum alls
ekki með nein leiðindi, vissum að það
stæði til að rífa húsið og byggja eitthvað
nýtt hér á Brynjureitnum, hvort sem það
eru nú hótel og túristabúðir, ég bara veit
það ekki,“ segir Elín. „Þetta bar bara
dálítið bratt að.“
Það er félagið Þingvangur sem er
eigandi Brynjureitsins og samkvæmt
fréttum er meiningin að þar verði íbúðir,
hót el, versl an ir, veitingasalir og skrif
stof ur. Listagalleríið Kling og Bang var
einnig með húsnæði á reitnum en hefur
nú flutt starfsemi sína vegna niður
rifs hússins. Elín segir það undarlega
þjónustu við ferðamenn að hrekja gall
erí og handverksbúðir úr miðbænum.
„Við finnum mjög mikið fyrir því þegar
ferðamennirnir koma inn til okkar hvað
þeim finnst gaman að geta komið og
rætt við listamennina sjálfa um verkin
áður en þeir kaupa. Allt sem við seljum
er handgert af íslenskum listamönnum
og hönnuðum og það er það sem margir
ferðamenn eru að sækjast eftir að finna.“
Elín segist ekki vita hvað sé til ráða
en að Skúmaskoti standi kraftmiklar,
jákvæðar og bjartsýnar konur sem
séu ákveðnar í að finna nýtt húsnæði
og halda starfseminni áfram. Stærsta
vandamálið sé hvað leiguhúsnæði í mið
bænum sé orðið dýrt. „Það er orðið mjög
skrýtið ástand hér í miðbænum,“ segir
hún. „Maður veit eiginlega ekki hvernig
er hægt að bregðast við, eða hver á að
bera ábyrgðina. Er það bara eitthvað
sem verður að ganga sinn gang að mark
aðurinn kallar á hótel og túristabúðir
akkúrat í augnablikinu og þau fyrir
tæki geta líka borgað hæsta leiguverðið.
Þurfa aðrir bara að bíða á meðan þessi
toppur er að ganga yfir?“
Elín og samstarfskonur hennar í
Skúmaskoti eru harðákveðnar í að láta
húsnæðismissinn ekki stöðva rekstur
gallerísins og hún segir þær opnar fyrir
því að skoða alls konar húsnæði. „Við
erum búnar að labba upp og niður allan
miðbæinn á útkikki eftir húsnæði,“ segir
hún. „Höfum meira að segja bankað
upp á hjá fólki þar sem við sjáum laust
húsnæði og höfum allar klær úti. Við
hættum ekki þessari starfsemi fyrr en í
fulla hnefana.“
friðrika benónýsdóttir
fridrika@frettatiminn.is
4 fréttir Helgin 11.-13. september 2015