Fréttatíminn - 11.09.2015, Qupperneq 16
Sumir halda
að hann sé
að pumpa
einhverju í
vöðvana á
sér en hann
er bara
svona stór.
Þetta er ekk-
ert bull.
Sumt fólk
mun aldrei
finna svona
ást í lífinu
Þau kynntust á Facebook og hafa verið óað-
skiljanleg síðustu mánuði. Í næstu viku ganga
þau svo í heilagt hjónaband á Mr. Olympia-
sýningunni í Las Vegas. Og það er öllum boðið.
Sara Heimisdóttir er 26 ára stelpa úr Reykjavík
sem var að læra lögfræði á Flórída þar til hún
kynntist líkamsræktarfrömuðinum Rich Piana.
Nú búa þau saman í fimm hundruð fermetra
villu í Los Angeles og keyra um á Maserati.
Framtíðin er björt og Sara ætlar aldrei að flytja
aftur til Íslands.
Þ
að eru yfir milljón manns
búnir að sjá myndbandið
núna svo ég er nokkuð viss
um að það verður stappað í
brúðkaupinu. Við erum pínu
stressuð um að það komist ekki allir
fyrir og hótelið verði ósátt við okkur,“
segir Sara Heimisdóttir, 26 ára Reykvík-
ingur sem gengur að eiga líkamsrækt-
arfrömuðinn Rich Piana í Las Vegas á
fimmtudaginn í næstu viku.
Verður í þröngum brúðarkjól sem
sýnir bakið vel
Það brá mörgum í brún í síðustu viku
þegar vefmiðlar á Íslandi fjölluðu um
brúðkaup Söru og Rich Piana. Hann til-
kynnti um ráðahaginn á Youtube-rás
sinni og myndbandinu var dreift með
ógnarhraða á samfélagsmiðlum. Mynd-
bandið hefur nú fengið yfir eina milljón
áhorfa. Brúðkaupið verður á fimmtu-
dagskvöldið í næstu viku, 17. september,
á Mr. Olympia sýningunni í Las Vegas.
„Þetta verður ekki beint hefðbundið
brúðkaup. Við giftum okkur með öðru
pari, Ashley og Coty, sem eru í liðinu
– eru sponsoruð af Rich. Ég verð samt
í hvítum brúðarkjól. Ekki týpískum,
stórum hvítum kjól heldur mjög þröng-
um og flottum kjól sem sýnir bakið vel.“
Koma einhverjir gestir frá Íslandi?
„Já. Bróðir minn kemur og hugsan-
lega pabbi, ef hann kemst. Móðir mín
býr í Flórída og hún kemur. Svo koma
tvær bestu vinkonur mínar frá Íslandi.
Þær fljúga til LA á mánudag og keyra
yfir með okkur. Svo verða auðvitað fullt
af vinum héðan.“
Kynntust á Facebook
Sara segir að þau hafi nýlega ákveðið að
gifta sig og hafi því þurft að hafa hraðar
hendur við undirbúninginn. En hver er
sagan að baki þessu öllu saman?
„Við töluðum aðeins saman fyrir
tveimur árum og vissum hvort af öðru
en svo kynntumst við í gegnum Facebo-
ok. Við byrjuðum saman fyrir einhverj-
um mánuðum síðan en þetta small svona
rosalega vel saman. Við erum eiginlega
alveg eins, eigum svo margt sameigin-
legt og þetta var bara „meant to be.“
Sumt fólk mun aldrei finna svo ást í
lífinu en við erum mjög heppin að hafa
fundið hvort annað.“
Sé ekki fyrir mér að flytja aftur til
Íslands
Sara flutti til Orlando fyrir um fimm
árum. „Ég ákvað að gera eitthvað meira
með líf mitt, að láta draumana rætast.
Ísland er bara svo lítið land. Mamma var
búin að vera flugfreyja hjá Flugleiðum í
25 ár svo ég hafði verið mikið hér og er
mjög amerísk í mér. Ég er meira að segja
fædd 4. júlí. Ég sé ekki fyrir mér að flytj-
ast aftur til Íslands,“ segir hún.
Fylgistu ennþá með því sem gerist
heima á Íslandi?
„Voða lítið. Bara því sem fólk segir
mér. Ég er ekkert hangandi á netinu að
skoða hvað er í gangi. Ég gerði það fyrst
eftir að ég flutti út en núna veit ég bara
það sem fjölskylda og vinir segja mér.
En tengslin eru til staðar því öll fjöl-
skyldan býr þar nema mamma og ég er
búin að vera með fullt af dóti í geymslu í
fimm ár. Ég þarf klárlega að koma einn
daginn, það er orðið langt síðan ég hef
séð alla. Ég er ekki alveg búin að gleyma
ykkur.“
Sara settist á skólabekk eftir að hún
fluttist til Flórída. Fyrst lærði hún sál-
fræði og svo lögfræði. „Svo kynntist ég
Rich og við náðum strax vel saman. Við
vitum að við viljum vera saman að eilífu
og ætlum að gera allt í okkar valdi til að
láta það ganga. Ég ákvað því að flytja frá
Flórída til Los Angeles og tek mér pásu
frá skólanum.“
Peningasóun að keppa í fitness
Eftir að Sara flutti út til Flórída keppti
hún í fitness. Það var hluti af því að láta
drauma sína rætast.
„Mig langaði alltaf að keppa þegar ég
var á Íslandi, að fara á svið, enda er þetta
vinsælt sport. Þegar ég kom út fékk ég
mér þjálfara og fór að keppa. Mér gekk
vel en þetta kostar rosalega peninga og
þú notar alla þína orku. Það passaði ekki
vel með skólanum.“
Hún segir að Rich hafi fengið sig til
að líta þetta öðrum augum en hún áður
gerði. „Eins og fólk getur séð er hann
öðruvísi en allir. Þú finnur ekki hrein-
skilnari mann. Þess vegna elskar fólk
hann, hann er svo hreinn og beinn.
Hann segir til dæmis ungu fólki það sem
aðrir segja þeim ekki. Hann sagði mér
Framhald á næstu opnu
Hin 26 ára gamla Sara
Heimisdóttir gengur að
eiga hinn 44 ára gamla
Rich Piana í næstu
viku. Þau kynntust fyrir
nokkrum mánuðum og
hafa verið óaðskiljanleg
síðan. Hér eru þau í
ræktinni.
16 viðtal Helgin 11.-13. september 2015
Skírnartertur
að hætti Jóa Fel
Pantanir í Síma: 588 8998
joifel@joifel.is