Fréttatíminn - 11.09.2015, Qupperneq 30
Þetta er
samt mikil
áskorun því
þetta er æft
tal í sam-
ræmi við
tónlistarflut-
ing. Eitthvað
sem ég er
ekki vanur
því þegar ég
held tón-
leika einn þá
kemur bara
eitthvað.
Við erum alltaf í einhverju fári
Í október stígur tónlistar-
maðurinn KK á svið Borgar-
leikhússins og segir sögu
gítaranna sinna sem hafa
fylgt honum í blíðu og stríðu
í gegnum árin. Hann greinir
frá uppruna þeirra og sér-
stökum tengslum sínum við
hvern og einn þeirra – allir
tengjast þeir á einn eða
annan hátt skrautlegu lífi og
örlögum erlendra trúbadora
sem áttu það sameiginlegt að
þrá réttlæti og frelsi. KK segir
sjálfur að þetta sé öðruvísi en
tónleikar þar sem hann hefur
ráðið sjálfur hvað hann segir
því fyrir þetta þarf hann að
læra ákveðinn texta eins og
hver annar leikari. Hann fær
þó smá tíma í hverri sýningu
til þess að spinna eins og hann
er vanur.
K ristján Kristjánsson, eða KK, hefur sungið um lífið í næstum þrjá áratugi og lög
hans og textar eru margir orðnir
þjóðareign. Á tónleikum segir hann
gjarnan sögur af ferðum sínum um
heiminn og KK er góður sögu-
maður. Í sýningunni Vegbúar, sem
frumsýnd verður í Borgarleikhús-
inu þann 15. október, mun Kristján
segja sögur og spila tónlist, en í
þetta sinn eru þetta ekki bara hans
sögur, né hans lög.
„Þetta er einleikur um tónlistina
og hvernig hún getur haft afgerandi
áhrif á gang mála,“ segir Kristján
þegar hann er spurður nánar út í
verkefnið. „Hversu mikilvæg tón-
listin er í lífi okkar,“ segir hann. „Í
blóðugum byltingum, sem og and-
legum málefnum. Tengingunni við
hinn mikla eilífa anda. Hvað er tón-
list? Ef maður fer að pæla í því þá er
þetta einhver tíðni sem fer út í loft-
ið, hittir mann og einhverra hluta
vegna eru komnir einhverjir tónar
inn á svið og halda ræður og taka við verð-
launum og slíkt. Þá kom upp þessi umræða
hvort fólk væri ekki stressað að koma fram
og tala fyrir framan allt þetta fólk,“ segir
hann. „Þegar ég var spurður hvort ég væri
stressaður þá svaraði ég, „Ég hef gítarinn.“
Þetta sló okkur báða og við fórum að pæla
í þessu. Út frá þessum pælingum er þetta
leikrit, Vegbúarnir, sprottið,“ segir Krist-
ján. „Við erum búnir að vera að skrifa þetta
síðan 2008 og kynna þetta fyrir leikhúsun-
um öðru hvoru, þegar við höfum haft tíma,“
segir hann. „Borgarleikhúsið sýndi þessu
mikinn áhuga og tók þetta inn og setti okkur
undir sinn verndarvæng.
Rauði þráðurinn í verkinu er, eins og ég
sagði, áhrif tónlistarinnar, en séð frá mín-
um bæjardyrum. Mínum gíturum og slíkt,
en samt reyni ég að hafa þetta sem minnst
um mig,“ segir Kristján. „Það væri óþægi-
legt að vera einn á sviðinu með einleik, um
mig. Við fjöllum um tónlistarmenn sem haft
hafa mikil áhrif á gang mála í gegnum tíð-
ina. Menn eins og Dylan, Lennon, Joe Hill,
Woody Guthrie og Cat Stevens og fleiri.
Svo fer ég líka í áhrif tónlistar á gang mála
almennt eins og í baltnesku ríkjunum á sín-
um tíma. Byltingin þar var kölluð The Sing-
ing Revolution. Svo tek ég lög frá þessum
löndum og tímabilum, svo er eitt og eitt lag
frá mér líka,“ segir Kristján.
Gítararnir eru vörður
Kristján hefur um árabil verið með tónlistar-
þætti á Rás 1 og er mikill áhugamaður um
tónlist. Hann segist þó ekki eiga sér nein
uppáhalds tímabil í tónlistinni heldur leyfir
öllu að njóta sín. „Ég sæki mína vitneskju
í bækur og á vefinn, eins og aðrir,“ segir
hann. „Ég hef samt haft fyrir því að sækja
mér þessa vitneskju og hef þurft þess í mínu
starfi. Ég hef áhuga á allri músík sem snertir
mig. Það eru til tvær tegundir tónlistar. Sú
sem snertir mann, og sú sem snertir mann
ekki,“ segir Kristján. „Það getur hvaða teg-
und tónlistar sem er snert mann, það fer
ekkert framhjá manni þegar það gerist. Ég
nota svo gítarana mín sem vörður í leikritinu
því ég fer um víðan völl,“ segir hann.
„Þetta er skemmtun líka, og það má ekki
vera leiðinlegt. Ég hugsa að ég verði með
svona sjö gítara úr mínu safni,“ segir hann.
„Allir hafa þeir sína sögu, bæði sem hljóð-
færi og líka af mér persónulega. Það er einn
sænskur gítar þarna frá árinu 1910 og þá
get ég tengt hann auðveldlega við þá per-
íódu. Robert Johnson og Joe Hill til dæmis.
Ég er ekki búinn að eiga hann frá upphafi,“
segir Kristján sposkur. „Ég keypti hann á
uppboði í Svíþjóð fyrir 30 árum. Ég hef allt-
af sankað að mér allskonar gíturum í gegn-
um tíðina og þeir eiga allir sínar sögur.“
Öðruvísi að læra texta
Ferill Kristjáns spannar þrjá áratugi og
hann hefur farið víða. Hann tengir tímabil
á ferlinum oft við hljóðfærin sín og segir
að ósjálfrátt spili hann ekki sömu lögin á
sömu gítarana. „Gítararnir geta átt það til
að tengja mig við ákveðin tímabil í lífinu,“
segir hann. „Svo er líka svo skrýtið að mað-
ur spilar ekki sömu lögin á sömu gítarana.
Gítarinn segir í rauninni til um karakter
tónlistarinnar sem spiluð er á hann,“ segir
Kristján. „Ég fer inn á þetta í sýningunni
sem og kem inn á kynni mín af fólki og
stöðum í gegnum tíðina og ferðalög mín.“
Ertu stressaður?
„Það er svo mikill texti sem ég þarf að
læra og ég er ekki vanur því,“ segir hann.
„Við viljum hafa fastan texta. Öðruvísi
breyti ég þessu daglega og þá verður þetta
aldrei tilbúið. Um leið og textinn er tilbúinn
og ég búinn að læra hann, þá má kannski leika
sér aðeins með hann,“ segir Kristján. „Ég
mundi vilja hafa kannski 5 til 10 mínútur af
sýningunni þar sem ég hef frjálst flæði. Þetta
er samt mikil áskorun því þetta er æft tal í
samræmi við tónlistarflutning. Eitthvað sem
ég er ekki vanur því þegar ég held tónleika
einn þá kemur bara eitthvað,“ segir hann.
Lifir í núinu
KK hefur gefið út fjölda hljómplatna og
samið lög fyrir leikhús. Þó eru sjö ár síðan
síðasta plata kom út og er hann ekkert að
flýta sér að gefa út nýja plötu.
„Fyrir nokkrum árum var byrjað á heim-
ildarmynd um mig sem verður sýnd núna
um jólin,“ segir hann. „Í tilefni af því kem-
ur út plata með safni af mínum lögum og á
henni verða nokkur ný lög. Ég hef bara verið
á fullu í öðrum hlutum og ekki fundið neina
pressu til þess að koma með nýja plötu,“ seg-
ir Kristján. „Ég sé ekki ástæðu til þess að
koma með plötu, bara til þess að gera það.
Ég reyni að lifa í núinu. Á þessum tímum
sem við lifum á, þá fjarlægjumst við núið
alltaf meira og meir,“ segir hann. „Við erum
alltaf í einhverju fári að reyna að komast úr
núinu yfir í næsta nú. Málið er að við höfum
bara núið og við erum alltaf á flótta undan
einhverju sem er ekki hægt að vera á flótta
undan og fyrir bragðið erum við föst í hausn-
um á okkur. Ef við pælum í því þá eru hugs-
anir okkar sem við höldum að séum við, en
eru það ekki því þær eru egóið okkar, um
fortíðina eða framtíðina. Um leið og maður
kemur inn í núið og andar bara djúpt og lítur
í kringum sig, þá missir maður ekki af feg-
urðinni sem er allt í kring,“ segir Kristján
Kristjánsson, KK tónlistarmaður.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
á þig sem búa til einhverjar tilfinn-
ingar inni í þér. Gleði og sorg. Fá
mann til þess að gráta eða gleðjast
og elska,“ segir Kristján.
Sjö ára vinna að baki sýningunni
Leikstjóri Kristjáns í Vegbúum er
Jón Gunnar Þórðarson, sem hafði
unnið með Kristjáni áður, en þeir
skrifa verkið saman.
„Við höfðum unnið saman í
leikritinu Fool For Love sem Jón
Gunnar setti upp í Silfurtunglinu
í Austurbæ,“ segir Kristján. „Þar
lék ég gamlan karl og við fengum
nokkrar tilnefningar til Grímunnar,
en unnum þó ekki. Á verðlaunahá-
tíðinni spilaði ég eitt lag og í sviðs-
vængnum áður en ég steig á svið þá
voru margir leikarar að koma og fara
„Þegar ég var spurður
hvort ég væri stress-
aður þá svaraði ég,
„Ég hef gítarinn.“
Ljósmynd/Hari
30 viðtal Helgin 11.-13. september 2015
S. 553-1800 / Holtagarðar / 104 Reykjavík / www.fondurlist.is
Byrjandanámskeið
í Kertagerð 29 Sept.
Föndur, lista og
hannyrðavörur
Allar nánari uppýsingar eru að finna á
http://fondur.is/namskeid/
Stærsta föndurverslun landsins
1000 fm föndurverslun