Fréttatíminn - 11.09.2015, Síða 36
3x15
Kolvetnaskert,
próteinríkt og fitulaust
Hentar
fyrir LKL
mataræði
H
VÍ
TA
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
Krakk-
arnir í
Hjarta-
steini
Tökur standa nú yfir á kvikmyndinni Hjartasteini
á Borgarfirði eystra. Þetta er fyrsta stóra mynd
leikstjórans Guðmundar Arnars Guðmundssonar.
Aðalhlutverk eru í höndum tveggja ungra drengja,
Baldurs Einarssonar og Blæs Hinrikssonar. Auk
þeirra fer fjöldi ungmenna með stór aukahlut-
verk í myndinni sem frumsýnd verður á næsta ári.
Fréttatíminn tók þessa ungu leikara tali. Lengri
útgáfur af viðtölunum má finna á vef Fréttatímans.
Ljósmyndir/Roxana Reiss
Baldur Einarsson,
13 ára.
Hlutverk: Þór –
Aðalhlutverk
Búseta: Reykjavík.
Foreldrar: Hulda
Birna Baldursdóttir
og Einar Örn Jónson.
Hvernig undirbjóstu
þig fyrir myndina?
Með því að lesa yfir
það sem ég átti að
lesa yfir, skilja hvað
atriðið er um og
mikið meira.
Átt þú og persónan
sem þú leikur mikið
sameiginlegt? Ég og
Þór erum svakalega
líkir með persónu-
leikann og skapið.
Hvað er skemmti-
legast við að leika í
myndinni? Eiginlega
bara allir í kring um
mig og umhverfið.
Hvað er erfiðast við
að leika í myndinni?
Álagið er mjög mikið
þegar þú ert að gera
erfiðar senur og þarf
að gera þær aftur og
aftur af því að þú ert
þreyttur og pirraður
þá viltu bara pakka
saman og fara heim.
Stefnir þú á eitthvað
leiklistartengt í fram-
tíðinni? Ég ætla að
vona að ég fái svipuð
verkefni í framtíðinni
og ég er mjög glaður
að ég geti byrjað
svona hátt uppi...
Blær Hinriksson,
14 ára.
Hlutverk: Kristján –
Aðalhlutverk
Búseta: Kópavogi.
Foreldrar: Hinrik
Ólafsson og Drífa
Harðardóttir
Hvernig undirbjóstu
þig fyrir myndina?
Við leikararnir lásum
yfir hverja einustu
senu og lékum hana
aftur og aftur.
Átt þú og persónan
sem þú leikur mikið
sameiginlegt? Já við
erum líkir á ákveðinn
hátt og eigum margt
sameiginlegt og það
er það skemmtilegt
að líkja karakter-
unum saman.
Hvað er skemmti-
legast við að leika
í myndinni? Að
kynnast öllu þessu
skemmtilega fólki
og setja sig í aðra
persónu en maður
sjálfur.
Hvað er erfiðast við
að leika í myndinni?
Að setja sig í spor
þessara hörmunga
sem hann Kristján er
að upplifa.
Stefnir þú á eitthvað
leiklistartengt í fram-
tíðinni? Já, ég vona
að ég fái að takast á
við svona spenn-
andi og skemmtileg
verkefni.
Diljá Vals, 15 ára.
Hlutverk: Beta
– Vinkona Þórs og
Kristjáns – besta vin-
kona Hönnu
Búseta: Reykjavík
Foreldrar: Valur
Freyr Steinarsson og
Ásta Sigmarsdóttir
Hvernig kom það til
að þú fórst að leika
í Hjartasteini? Að-
standendur Hjarta-
steins, höfðu séð mig
í Málmhausi og báðu
mig að koma og leika
í kynningarefni fyrir
myndina.
Hvernig undirbjóstu
þig fyrir myndina?
Við fórum í gegnum
langt og erfitt æf-
ingatímabil í sumar
áður en að sjálfum
tökunum kom, þar
sem við greindum
persónurnar og
reyndum að tengjast
þeim.
Átt þú og persónan
sem þú leikur mikið
sameiginlegt? Ég
reyndi að setja
mig í spor þeirrar
persónu sem ég lék,
hún stendur með
sjálfri sér og hefur
sínar eigin skoðanir
sem er eitthvað sem
ég vil tileinka mér
en hvort við eigum
mikið sameigin-
legt verða aðrir að
dæma?
Katla Njálsdóttir,
13 ára.
Hlutverk: Hanna
– Vinkona Þórs og
Kristjáns – Besta vin-
kona Betu
Búseta: „Straight
out of Selás“ og
hálfur Hólmari
Foreldrar: Njáll
Þórðarson og Þóra
Pétursdóttir
Hvernig kom það til
að þú fórst að leika í
Hjartasteini? Mamma
sá auglýsingu um
skráningu í prufur á
netinu og mig langaði
að prófa
Hvernig undirbjóstu
þig fyrir myndina?
Ég er búin að fara
á leiklistaræfingar,
dansæfingar, hest-
anámskeið og
hugleiðslunámskeið
og það var allt mjög
skemmtilegt og ég er
mjög ánægð að hafa
fengið að prófa þessa
hluti.
Hvað er skemmti-
legast við að leika
í myndinni? Það
er margt mjög
skemmtilegt, sér-
staklega félagsskap-
urinn. Allt „crewið“
er skemmtilegt og
leikararnir líka og ég
veit að það verður
mjög erfitt að kveðja
þau öll þegar þessu
verkefni er lokið.
Jónína Þórdís
Karlsdóttir, 16 ára.
Hlutverk: Rakel –
Stóra systir Þórs
Búseta: Reykjavík
Foreldrar: Karl
Höskuldur Guð-
laugsson og Ingibjörg
Magnúsdóttir
Hvernig kom það til
að þú fórst að leika
í Hjartasteini? Fyrir
nokkrum árum lék ég
í stuttmynd eftir Guð-
mund, Ártún, hann
þekkti mig þaðan og
ég var beðin um að
koma í prufur.
Átt þú og persónan
sem þú leikur mikið
sameiginlegt? Ég
og Rakel eigum
þó nokkuð sam-
eiginlegt. Ég skil
hugsunarháttinn
hennar og það er
margt sem hún gerir
og segir sem ég er
sammála, þrátt fyrir
að hún sé mun skap-
stærri en ég.
Hvað er erfiðast við
að leika í myndinni?
Það erfiðasta er
trúlega að vera frá
skóla.
Stefnir þú á eitthvað
leiklistartengt í fram-
tíðinni? Já, ég stefni á
að taka að mér svipuð
verkefni í framtíðinni
enda er þetta með því
skemmtilegra sem ég
hef gert.
Rán Ragnars-
dóttir, 16 ára.
Hlutverk: Hafdís –
Stóra systir Þórs
Búseta: Stoltur
Laugardalsbúi.
Foreldrar: Halla
Jónsdóttir og Ragnar
Pétur Ólafsson
Hvernig undirbjóstu
þig fyrir myndina? Ég
tók þátt í æfingum
fyrir myndina, fór á
magadansnámskeið
og í hugleiðslutíma,
og lærði textann.
Átt þú og persónan
sem þú leikur mikið
sameiginlegt? Ég og
Hafdís erum báðar
frekar rólegar að
eðlisfari og eigum
báðar yngri systkini
sem er gaman að
gantast með.
Hvað er skemmti-
legast við að leika
í myndinni? Það er
búið að vera frábært
að kynnast frábæru
fólki og vera á
þessum fallega og
notalega stað sem
Borgarfjörður er.
Hvað er erfiðast við
að leika í myndinni?
Fjarveran úr skóla
er búin að vera erfið
og það að neyðast til
þess að fara langt út
fyrir þægindaram-
mann, sem að
sjálfsögðu borgar sig
á endanum.
Theodór Páls-
son, 13 ára.
Hlutverk: Mangi
– Vinur Þórs og
Kristjáns
Búseta: Reykjavík
Foreldrar: Díana
Júlíusdóttir og Páll
Eiríksson
Hvernig kom það
til að þú fórst að
leika í Hjartasteini?
Fór í prufu og hef
áhuga á því að
leika, var að leika í
mörgu áður.
Hvernig undir-
bjóstu þig fyrir
myndina? Las yfir
handritið og æfði
mig.
Átt þú og persónan
sem þú leikur mikið
sameiginlegt? Nei,
eiginlega ekki.
Hvað er skemmti-
legast við að
leika í myndinni?
Vera með öllum
þeim sem vinna í
myndinni.
Hvað er erfiðast
við að leika í
myndinni? Mér
fannst erfitt þegar
það var mjög kalt
úti og þurfti að
vera ber að ofan.
Stefnir þú á eitt-
hvað leiklistartengt
í framtíðinni? Það
kemur í ljós.
Daníel Hans Erlends-
son, 18 ára.
Hlutverk: Haukur –
Leiðtogi hóps eldri stráka
Búseta: Kópavogur
Foreldrar: Jórunn
Rothenborg og Erlendur S.
Birgisson
Hvernig undirbjóstu þig
fyrir myndina? Það var
haldið svakalega vel utan
um leikarahópinn. Við
fórum í sérstaka tíma sem
haldnir voru í raun til þess
að kenna okkur hvernig
ætti að vera leikari.
Þessir tímar hjálpuðu mér
mikið og ég lærði virkilega
mikið á þeim, aðallega
vegna þess að við vorum
með frábæran kennara,
Kristínu Leu, sem var með
allt á hreinu. Síðan las ég
senurnar aftur og aftur
til þess að reyna að vera
eins undirbúinn og ég gat
þegar ég var mættur á
sett. Einnig átti ég það til
að tala við sjálfan mig í
spegli...
Hvað er skemmtilegast
við að leika í myndinni?
Að vera á setti, ekkert
kemst nálægt því að
búa til sumar af þessum
senum. En það er líka svo
mikið fagfólk sem kemur
að myndinni, sem gerir
dvölina á Borgarfirði eystri
alveg frábæra og maður
er alltaf tilbúinn að gera
sitt besta þar sem allir eru
þarna til þess að hjálpa
hver öðrum.
Sveinn Sigurbjörns-
son, 13 ára.
Hlutverk: Guðjón – Vinur
Þórs og Kristjáns
Búseta: Akureyri
Foreldrar: Sigurbjörn
Sveinsson og Arna Ívars-
dóttir
Hvernig kom það til að
þú fórst að leika í Hjarta-
steini? Bróðir minn, hann
Ívar, sá auglýsingu á
netinu þar sem var lýst
eftir leikurum á aldrinum
11-16 ára. Okkur fannst
svo upplagt að senda
inn umsókn því ég hafði
áður leikið í sjónvarps-
þáttunum Hæ gosa sem
sýndir voru á Skjá einum.
Hvernig undirbjóstu þig
fyrir myndina? Það var
nú ekki mikið. Fór einu
sinni á tveggja vikna
fresti suður á æfingar í
svona tvo mánuði. Þurfti
að safna hári í allt sumar
en endaði svo bara með
því að ég var krúnurak-
aður.
Hvað er skemmtilegast
við að leika í myndinni?
Að vera með og kynnast
nýju fólki og horfa á
hana í bíó það verður
gaman.
Hvað er erfiðast við að
leika í myndinni? Að
þurfa að bíða svona
mikið, kannski 4-5
klukkutíma á milli setta.
Stefnir þú á eitthvað leik-
listartengt í framtíðinni?
Nei, en aldrei að vita.
Fótboltinn er númer eitt.
36 kvikmyndir Helgin 11.-13. september 2015