Fréttatíminn - 11.09.2015, Side 44
volundarhus.is · Sími 864-2400
VERÐTILBOÐ - GESTAHÚS 25 m²
með 9 m² yrbyggðri verönd
kr. 1.599.000,- án fylgihluta.
kr. 1.899.000,- með fylgihlutum og
byggingarnefndar teiknisetti.
Grunnmynd og nánari
upplýsingar á heimasíðu
volundarhus.is
www.volundarhus.is
Vel valið fyrir húsið þitt
HAUSTTILBOÐ
Á GESTAHÚSUM OG GARÐHÚSUM
VH
/1
4-
04
34 mm bjálki / Tvöföld nótun
TILBOÐ - GARÐHÚS 9,9 m² - án gólfs
kr. 299.900,- án fylgihluta
kr. 339.900,- m/fylgihlutum
70 mm bjálki / Tvöföld nótun
28 mm bjálki / Einföld nótun
TILBOÐ - GARÐHÚS 9,7m²
kr. 269.900,- án fylgihluta
kr. 299.900,- m/fylgihlutum
TILBOÐ - BARNAHÚS 2,2m²
kr. 149.900,- án fylgihluta
kr. 169.900,- m/fylgihlutum
28 mm bjálki / Einföld nótun
50% afsláttur
af utningi á
GARÐHÚSUM og
GESTAHÚSUM
á allar þjónustu-
stöðvar Flytjanda.
GESTAHÚS og
GARÐHÚS
sérhönnuð fyrir
íslenskar aðstæður
Sjá eiri
GESTAHÚS og
GARÐHÚS á tilboði
á heimasíðunni
volundarhus.is
Skírnartertur
að hætti Jóa Fel
Pantanir í Síma: 588 8998
joifel@joifel.is
Halda minningu afa á lofti
Módelsmiðurinn og listamaðurinn Axel
Helgason skildi eftir sig fjölda verka
tengdum Íslandi. Þekktust voru mót
hans af upphleyptum afsteypum af Ís-
landi, auk Íslandskortsins sem finna má
í Ráðhúsi Reykjavíkur. Barnabörn hans
og makar hafa nú endurvakið hönnun
hans og hafið framleiðslu á fallegum
plöttum, púðum og plakötum undir
nafninu Iceland By Axel.
Iceland by Axel platt-
arnir eru framleiddir
með sama hætti og Axel
gerði á sínum tíma.
Barnabörn hans tóku
upp þráðinn þar sem
hann hætti árið 1940
og framleiða nú, auk
plattanna, fallega púða
og plaköt.
V ið áttum hæðarlínuteikningar eftir Axel í möppu heima – mér fannst þær svo fallegar að ég lét prenta eina á
striga og gaf manninum mínum í jólagjöf. Það
var kannski upphafið af þessu öllu saman,“
segir María Johnson, en maður hennar, Jón
Axel Ólafsson, er barnabarn Axels. Þegar
Axel vann upphleyptu Íslandsplattana sína
studdist hann við Íslandskort fengin frá
sjóliðsforingjum úr danska hernum. Til að
framkvæma rétta upphleypingu á plöttunum
þurfti hann fyrst að útfæra sérstök hæðar-
línukort til að vinna út frá. „Okkur er það
mikilvægt að varðveita arfleifð Axels með því
að halda minningu hans á lofti. Við gerum
það best með því að tryggja að sem flestir
getir notið listaverka hans, líkt og hann hafði
í hyggju árið 1934 þegar hann byrjaði að
framleiða litla upphleypta platta af Íslandi til
að framfleyta sér og fjölskyldu sinni. Platt-
arnir voru mjög vinsælir og voru seldir meðal
annars til túrista og það kom mér bara á óvart
að það voru túristar hér yfir höfuð á þessum
tíma,“ segir María.
Ísland heillaði
Axel lærði til smiðs en gerðist seinna módel-
smiður. „Honum var hugleikið allt sem við
kom Íslandi og vann að fjölda verkefna sem
tengdust landinu í samvinnu við Reykja-
víkurborg, Landmælingar og ríkið,“ segir
María. Verkefnin voru fjölbreytt og misstór
og stærsta verkefni hans er án efa upphleypt
kort af Íslandi sem nú er til sýnis í Ráðhúsi
Reykjavíkur. „Það tók hann 8 ár að klára það
kort, ásamt fleiri hagleiksmönnum, og var
þetta hans síðasta verkefni,“ segir María.
Hönnun sem á vel við í dag
María segir að þau hafi ákveðið að endur-
vekja hönnun Axels þar sem hún eigi vel við
enn þann dag í dag. Ásamt plöttunum, sem
eru í hinum ýmsu litum, ákváðu þau að hefja
framleiðslu á púðum, plakötum í þremur
stærðum og hæðarlínukorti í mörgum stærð-
um. „Þær afsteypur sem nú eru fáanlegar eru
framleiddar á nákvæmlega sama hátt og Axel
gerði þau. Við einungis tókum upp þráðinn
þar sem hann hætti árið 1940, en Ísland-
splattarnir eru einstæður vitnisburður um
fagmann og einstakan afa,“ segir María, en
hún veit ekki til þess að mikið af upprunalegu
plöttunum sé enn til á heimilum landsins.
„Það voru þó margir sem mundu eftir þeim
þegar þeir bárust í tal.“
Á heimasíðunni icelandbyaxel.com má sjá
alla hönnunina sem í boði er, en einungis
eru tíu dagar síðan heimasíðan fór í loftið.
„Við höfum ekki undan að taka á móti pönt-
unum sem er algjört lúxusvandamál,“ segir
María. Búast má fleiri hönnunarvörum með
Íslandsteikningum Axels á næstunni. „Við
erum stolt af Axel og það er okkur mikilvægt
að hlutir hans færi áhugafólki um íslenska
hönnun gleði og ánægju,“ segir María.
Erla María Markúsdóttir
erlamaria@frettatiminn.is
Axel Helgason, listamaður og módelsmiður, vann fjöldann allan af fallegu handverki sem tengdist Íslandi á einn eða annan hátt.
Hér er hann á vinnustofu sinni árið 1966. Ljósmynd/úr einkasafni.
44 heimili Helgin 11.-13. september 2015