Fréttatíminn - 11.09.2015, Qupperneq 50
frá eyrunum til heyrnarstöðvar-
innar ekki nægilega skýrt og heil-
inn reynir að fylla upp í eyðurnar.
Sumar setningar er auðvelt að mis-
skilja en vissulega ná sumir að geta
í eyðurnar en það getur verið erfitt
og þreytandi til lengdar að taka þátt
í samræðum með skerta heyrn,“
segir Anna Linda. Að hennar sögn
eru ekki margir sem átta sig á því
hversu mikla orku það tekur frá
fólki að þurfa stöðugt að einbeita
sér að því að heyra. „Sumir sem
koma til okkar hafa þó bara gefist
upp á að reyna að heyra í krefjandi
aðstæðum eins og fjölmenni og klið
og segjast einfaldlega ekki nenna að
hlusta þegar aðstæður eru erfiðar
eða hætta jafnvel að taka þátt.“
Ný tækni sem auðveldar heil-
anum að skilja hljóð
Nýjustu heyrnartæki frá Oticon
búa yfir einstakri tækni sem kallast
BrainHearing™. Þessi tækni gerir
það að verkum að mikilvægar upp-
lýsingar eins og smáatriði í talmáli
berast skýrar til heyrnarstöðvar-
innar þannig að heilinn þarf ekki að
eyða eins mikilli orku í að fylla upp
í götin. Tæknin gerir heyrnartækj-
unum kleift að vinna saman sem eitt
kerfi til að hjálpa notandanum að
staðsetja hljóð og draga úr áreynslu
sem fylgir því að hlusta á samtöl.
BrainHearing™ tæknin sér um að
koma hljóðinu eins hreinu og skýru
og mögulegt er til þess að auðvelda
heilanum að skilja það.
Frí heyrnarmæling og heyrnar-
tæki til prufu í vikutíma
Hjá Heyrnartækni er hægt að fá
heyrnartæki til prufu í vikutíma
en það getur verið mikilvægt fyrir
þá sem eru að fá sér heyrnartæki
í fyrsta sinn að vera með þau í
einhvern tíma áður en tækin eru
keypt. „Vikuprófun getur gefið þér
nokkuð góða mynd af því hvernig
þér líður með tækin, bæði hvernig
það er að vera með þau í eyrunum
og eins hvernig þau hljóma. Fyrsta
skrefið er að bóka tíma í heyrnar-
mælingu til að sjá hvort tímabært
sé að fara að nota heyrnartæki,“
segir Anna Linda. Skoðun og
heyrnarmæling tekur um 40 mín-
útur og að henni lokinni er farið
yfir niðurstöðu mælingarinnar og
boðið upp á heyrnartækjaráðgjöf.
„Það getur verið gott að fá maka,
ættingja eða vin með sér í þetta
ferli, sérstaklega í ráðgjöfina, en
þar eru veittar mikilvægar upp-
lýsingar sem stundum getur verið
betra fyrir tvo að muna.”
Nánari upplýsingar má finna á
www.heyrnartaekni.is
Unnið í samstarfi við
Heyrnartækni
50 heilsutíminn Helgin 11.-13. september 2015
Er kominn
tími til að nota
heyrnartæki?
Ég _æki _örnin og tala við _ _estinnFlestum þykir mikilvægt að huga að heilsunni og leita sér að-
stoðar þegar eitthvað bjátar á. Heyrnarskerðing er eins og hvert
annað mikilvægt heilsuvandamál sem þarf að bregðast við. Því
fyrr sem vandamálið er meðhöndlað því betri verður útkoman.
A nna Linda Guðmundsdótt-ir, hjúkrunarfræðingur hjá Heyrnartækni í Glæsibæ,
segir að heyrnarskerðing geti haft
margvísleg áhrif á líðan og heilsu
og því er mikilvægt að hugsa um
hana sem hluta af almennri heilsu.
„Því miður bíða margir of lengi með
að leita sér aðstoðar og stundum
tekur það fólk nokkur ár að gera
eitthvað í málunum. Að fá sér heyrn-
artæki er vissulega stórt skref en
það getur skilað viðkomandi mikl-
um ávinningi.“ Rannsóknir hafa
sýnt að notkun heyrnartækja sem
meðferð við heyrnarskerðingu hef-
ur jákvæð áhrif á lífsgæði. „Heyrn-
artæki hjálpa þér bæði að heyra
betur og líða betur. Bestu heyrnar-
tækin eru þau sem skila þér skýru
og eðlilegu hljóði og tryggja að þú
sért ekki þreytt eða þreyttur í lok
dags,“ segir Anna Linda.
Að geta í eyðurnar
Fæstir leiða hugann að því að heyrn
er ekki eitthvað sem á sér eingöngu
stað í eyrunum. Það sem gerist á
milli þeirra, í heyrnarstöð heilans er
jafn mikilvægt. „Þar verður hljóð að
upplýsingum sem hefur einhverja
merkingu fyrir okkur. Þegar heyrn
er skert, hvort sem það er vegna
aldurstengdra breytinga í innra
eyra, hávaðaskemmda eða vanda-
mála í miðeyra er hljóðið sem berst
„Þegar heyrn er skert er hljóðið sem berst frá eyrunum til heyrnarstöðvarinnar
ekki nægilega skýrt og heilinn reynir að fylla upp í eyðurnar. Sumar setningar er
auðvelt að misskilja en vissulega ná sumir að geta í eyðurnar en það getur verið
erfitt og þreytandi til lengdar að taka þátt í samræðum með skerta heyrn,“ segir
Anna Linda, hjúkrunarfræðingur hjá Heyrnartækni.
Hjá Heyrnartækni
er hægt að fá
mikið úrval heyrn-
artækja í ólíkum
verðflokkum.
Anna Linda Guðmundsdóttir
starfar sem hjúkrunarfræðingur
hjá Heyrnartækni í Glæsibæ.
Þar er boðið upp á fría heyrnar-
mælingu og heyrnartæki til
prufu í eina viku. Mynd/Hari.