Fréttatíminn - 02.10.2015, Síða 31
Árlega deyja 52 einstaklingar úr ristilkrabbameini.
Það má koma í veg fyrir það.
Kauptu Bleiku slaufuna og hjálpaðu okkur að hefja
skipulagða leit að ristilkrabbameini.Bra
nd
en
bu
rg
52
. #
É
g les það í fréttum að
borgin sé svo vond við
fatlað fólk,“ segir Sigurjón
Kjartansson, söngvari og
gítarleikari HAM, er hann
situr á spjalli við við S. Björn Blöndal,
borgarfulltrúa og bassaleikara HAM,
„á meðan við sem búum í Kópavogi
þekkjum þetta ekki.“
„Kosturinn er sá að í Kópavogi er
greinilega enginn vondur við fatlað
fólk. Þá spyr maður hvort það sé ekki
góður staður fyrir fatlað fólk,“ segir
Björn. „Ég segi að við getum ekki ver-
ið eins góð við fatlað fólk og við mund-
um vilja vera. Vegna þess að við höfum
ekki fjármunina til þess og ríkið vill
ekki láta okkur fá þá. Þá segi ég ok,
ef ríkið telur sig geta gert þetta mikið
betur fyrir þetta fjármagn þá er sam-
félagslega ábyrgt að þessi málaflokkur
gangi aftur til ríkisins. Ríkið sjái þá
um að þjónusta það fólk sem á þarf
að halda. Bæði ódýrar og betur. Við
eigum ekki að vera að vasast í þessu ef
við eigum ekki að gera það almenni-
lega. Reykjavík þarf milljarð til þess að
gera þetta almennilega og ef við fáum
hann ekki, þá eigum við ekki að vera
að gera þetta.“ En nóg af pólitík.
Kapítalismi ekkert endilega
slæmur
„Hljómsveitin HAM er búin að vera
til síðan 1988, sem gera 27 ár,“ segir
Sigurjón og dæsir. „Ef þú vilt endilega
segja að það séu að verða þrjátíu ár
síðan, þá gerir þú það.“
„Umræðuefnið innan bandsins hefur
samt ekkert breyst neitt rosalega
mikið,“ segir Björn. „Þrátt fyrir að
menn hafi gert allan fjandann á þess-
um tíma. Ungir menn vorum við
oft að tala um pólitík og slíkt, en við
vorum þó ekki reiðir ungir menn. Við
erum bara þokkalega meðvitaðir um
okkar umhverfi sem hópur og höfum
pælt í því. Hver ræður og svona, hver
maðurinn, og slíkt. Sigurjón var lengi
mjög hægri sinnaður,“ segir Björn og
Sigurjón hlær við. „Þú varst á frjáls-
hyggjulínunni,“ segir Björn.
„Já, ég var það,“ segir Sigurjón. „Að
vissu leyti hefur það breyst en að öðru
leyti ekki,“ segir hann. „Ég er kap-
ítalískur í hugsun. Sem fyrir mér er
grunn-element í því að vera skapandi.“
„En þú veist líka að það þarf alltaf
ákveðin sósíal element til þess að
þetta gangi upp,“ segir Björn. „Kapít-
alisminn sem stundaður er á Íslandi
og víðar er ekki alvöru. Þetta er svona
fals-kapítalismi. Hér ertu bara í skjóli
opinbers fjármagns, og svo er þetta
spurning hvern þú þekkir og slíkt.“
„Í grunninn er ég samt meira til
vinstri,“ skýtur Sigurjón inn í.
„Kapítalisimi er ekkert endilega
slæmur en það er meðferð hans, sem
er ábótavant,“ segir Björn. „Það er
samt bein tenging milli frjálshyggju
og sköpunar.“
Björn og Sigurjón komu báðir að
stofnun Besta flokksins á sínum tíma,
þó Sigurjón hafi alltaf verið meira til
baka í pólitísku brasi félaga sinna.
„Upphaflega ætlaði enginn í pólitík.
Þetta var bara hugmynd. Við létum
þetta bara eftir Jóni Gnarr að vera með
í þessari hugmynd,“ segir Sigurjón.
„Við höfum alltaf látið allt eftir honum.
Það varð samt engin breyting á okkur
í sjálfu sér,“ segir Björn. „Það varð
bara einhver að gera þetta.“
Framhald á næstu opnu
Við fórum að reyna að gera ýmislegt annað þegar við vorum yngri.
Buffalo Virgin, önnur platan okkar er til dæmis ekki góð plata.“ Ljósmynd/Teitur
viðtal 31 Helgin 2.-4. október 2015