Fréttatíminn


Fréttatíminn - 02.10.2015, Page 70

Fréttatíminn - 02.10.2015, Page 70
70 bílar Helgin 2.-4. október 2015  Ford Nýr Ka Fæst á góðu verði 96.900 kr.Frá: BETT sýningin er orðin vel þekkt á meðal kennara og stofnana á Íslandi og öldi fólks fer þangað á hverju ári til að sjá það sem er nýjast í heimi tækni og kennslu. Flottar ferðir þar sem gist er á hinu fræga Cumberland lúxushóteli við Oxford Street. BETT SÝNINGIN www.gaman.is gaman@gaman.is Sími 560 2000 Nýr Opel Astra var kynntur á bílasýningunni í Frankfurt á dögunum en bíllinn verður fáanlegur hér á landi eftir áramót. Nuddsæti eru nýjung í Opel Astra 2016. F ord Ka er ódýrasti nýi bíll-inn á markaðnum. Hann fæst nú í takmarkaðan tíma á 1.695.000 krónur hjá Ford- umboðinu Brimborg. Ford Ka er skemmtilegur smábíll með litríkan persónuleika þar sem saman fara frumlegheit og frískleiki í bland við þrautreynda tækni en í nýjum og nútímalegri búningi, eins og segir á síðu Brimborgar. „Hönn- unin miðar að því að koma öllum helstu þægindum sem krafist er í nútímabíl fyrir í vel hönnuðum og smáum pakka. Nú rúmar farang- ursrými bílsins 224 lítra eða 20% meira en í eldri kynslóðinni og samt er bíllinn jafn stuttur og því jafn auðvelt að leggja honum í þröng stæði,“ segir enn fremur. Ford Ka lítur ekki út fyrir að vera sérlega stór, en hann er samt rúmgóður og þægilegur og mikil áhersla hefur verið lögð á notagildi bílsins. Rými fyrir aftursætisfar- þega hefur aukist mikið og stökkið í aukabúnaði er gríðarlegt, segir á síðunni en þar kemur einnig fram að Ford Ka sé þekktur fyrir frábæra aksturseiginleika, góða svörun og fjöðrun sem hentar vel íslenskum aðstæðum. Eigendur nýs Ford Ka geta tengt tónhlöðuna sína við hljómkerfi bílsins sem er með sex hátölurum. Hvað öryggi varðar þá er bíllinn búinn stöðugleikastýringu (ESP), hemlalæsivörn (ABS) með hemla- jöfnun (EBD), líknarbelgjum, öryggiskerfi og ISOFIX festingum fyrir barnabílstóla. Hægt er að panta í bílinn auka- búnað eins og lakk með perluá- ferð, Bluetooth, USB tengibúnað og raddstýringu, öryggisgardínur, upphitaða framrúðu og framsæti, nálægðarskynjara og fjöldann allan af klæðskerasniðnum lausn- um eins og leðurklæðningu eða skreytingum að utan og innan. Nýr Opel Astra fæst með nuddsætum Ellefta kynslóðin af Opel Astra var frumsýnd á alþjóðlegu bílasýningunni í Frankfurt nýverið en bíllinn verður fáanlegur hér á landi eftir áramótin, að því er fram kemur á heimasíðu Bílabúðar Benna, umboðsaðila Opel. Meðal nýjunga sem Opel kynnir í bílnum eru nuddsæti, Opel On-Star upplýsingakerfi og ný háþróuð Led framljós. Opel hefur létt bílinn um 200 kg og stytt um 5 sentimetra en engu að síður rúmar nýr Opel Astra meira en forverinn, að því er fram kemur á síðu umboðsins. Allar vélar, bæði bensín og dísil, sem í boði verða í Astra eru nýjar, menga lítið og eyða litlu, segir enn fremur.  asKja Nýr Mercedes-BeNz gLc sportjeppi KyNNtur Mun straumlínulagaðri en forverinn Nýr Mercedes-Benz GLC var kynntur í Bílaumboðinu Öskju um liðna helgi, en bíllinn var frumsýndur á bílasýningunni í Frankfurt á dögunum. Askja, um- boðsaðili Merceces-Benz, fann fyrir mjög miklum áhuga varðandi hinn nýja GLC og all nokkrir bílar voru seldir fyrirfram hjá Öskju, að því er fram kemur á síðu bílaumboðsins. GLC lúxus sportjeppinn kemur í stað GLK. Hinn nýi GLC er fallega hannaður og með mun straumlínu- lagaðri og sportlegri línur en GLK. Framendinn er svipsterkur með áberandi framljósum og afturhlutinn hallar aftur og ber keim af coupe lagi. Innanrýmið er fallegt og vandað og þar fer saman aukið rými, meiri þægindi og nýjasta tækni. Hinn nýi GLC fæst bæði með aflmiklum og spar- neytnum dísil- og bensínvélum og eldsneytiseyðslan lækkar að meðaltali um 19% miðað við fyrri gerð, að því er segir á síðu Öskju. Öflug Plug-in Hybrid útfærsla er væntanleg á næsta ári. Níu gíra 9G-Tronic sjálfskipting er staðalbúnaður í öllum útfærslum GLC. Dynamic Select gerir öku- manni kleift að velja milli fimm aksturskerfa sem laga eiginleika bílsins að aðstæðum hverju sinni. GLC er í boði með 4Matic fjórhjóladrifinu. Þá er hægt að fá fjölmarga aukahlutapakka í bílinn, eins og venjan er hjá Mercedes-Benz. Nýr Mercedes-Benz GLC sportjeppi kemur í stað GLK. Hann er með mun straumlínulagaðri og sportlegri línur en forverinn. Framendinn er með áberandi framljósum og afturhlutinn hallar aftur. Ódýrasti nýi bíll- inn á markaðnum Nýr Ford Ka er smár og knár – og ódýrasti nýi fólksbíllinn á markaði hérlendis. Vel fer um bílstjóra og framsætis- farþega og rými fyrir aftursætisfarþega hefur aukist. LOKAHELGI! Ef keypt er fyrir 6.000 kr. eða meira fylgir gjöf OPIÐ ALLA HELGINA kl. 10–19 RISALAGERSALA á Fiskislóð 39 Allt að 90% afsláttur Yfir 4000 titlar frá öllum helstu útgefendum landsins! Gjafir fyrir öll tækifæri! LOKAHELGI!

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.