Fréttatíminn


Fréttatíminn - 25.09.2015, Page 4

Fréttatíminn - 25.09.2015, Page 4
og NorskIr brjóstdropar Kröftug hóstamixtúra sem róar hósta, dregur úr sársauKa í hálsi og losar um í ennis- og Kinnholum. daNskIr brjóstdropar Kröftug hóstamixtúra sem mÝKir hálsinn og stillir Þrálátan hósta. Fást í næsta apóteki brjóstdropar NorskIr daNskIr veður Föstudagur laugardagur sunnudagur Sólríkt, en dregur upp Skýjabreiðu veStanlandS. HöfuðborgarSvæðið: Þykknar smám saman upp Þegar líður á daginn. HvaSSt og jafnvel Stormur Sv-landS. rigning, en þurrt na-til. Hlýnar. HöfuðborgarSvæðið: slagveðursrigning, en lagast síðdegis. HæglætiSveður og S-átt. rigning a-landS og Skúrir Sv-til. HöfuðborgarSvæðið: skýjað að mestu og skúrir lægð og stormur á laugardag við veðurfræðingarnir höfum gantast með óveðurslægðirnar, að þær hitti um þessar mundir frekar á laugardaga, en aðra daga vikunnar. svo verður einnig nú og slagviðrið verður hvað leiðinlegast nærri miðjum degi sunnan- og vestanlands. Hvasst og jafnvel stormur v-lands um tíma na-til rignir hins vegar lítið og þar hlýnar nokkuð eina ferðina enn þetta síðbúna sumar. lægir á sunnudag, en veðrskilin verða við austurland og því rigning þar. spáð er mildum vindum framan af næstu viku. 8 5 7 8 9 10 8 13 11 10 8 9 7 5 8 einar Sveinbjörnsson vedurvaktin@vedurvaktin.is 2 milljarða króna velta er áætluð hjá veitingastað og matarbúð ikea á Íslandi eftir fimm ár. árið 2004 nam velta þessara eininga 50 milljónum króna. Drógu tillöguna til baka Borg ar stjórn reykja vík ur samþykkti á auka fundi í vikunni að draga til baka til lögu sem samþykkt var viku fyrr um að sniðganga vör ur sem eiga upp runa sinn í ísra el. ákvörðun borgarstjórnar hafði valdið talsverðri ólgu sem meðal annars hafði leitt til afbókana á ferðum til landsins og hótana um að sniðganga íslenskar vörur. Þá var látið að því liggja að bygging lúxushótels við Hörpu væri í uppnámi. dagur B. eggertsson borgar- stjóri hefur viðurkennt að málið hafi skað- að meiri- hlutann í borginni. 100 margrét lára viðars-dóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, lék 100. landsleik sinn gegn Hvíta-rússlandi í undankeppni em. ísland sigraði 2-0 en margrét brenndi af vítaspyrnu. Kóngurinn hagnast vel Fiskikóng ur inn seldi fyr ir rúm ar 409 millj ón ir króna í fyrra og nam hagnaður fyr ir tæk is ins um 11,6 millj ón um króna. í árs reikn ingi fé lags ins kem ur fram að eign ir þess námu 133,8 millj ón um króna í árs lok og eigið fé nam 34,6 millj ón um króna. justin bieber á íslandi kanadíski söngvarinn justin Bieber heimsótti ís- land í vikunni. kom hann til landsins á mánudag og var fram á miðvikudag. Bieber fór meðal annars til vestmannaeyja og gisti á Hótel rangá. mikla athygli vakti þegar hann birti mynd af sér á instagram á nærbux- unum eftir sundsprett í Fjaðrárgljúfri. Þá kvaddi hann land og þjóð með twitter-færslu og kvaðst elska ísland, þetta hefði verið besta ferð allra tíma. s taðan er einfald-lega sú að aðilar vinnumarkaðarins eru enn að ræða saman með aðkomu minni og næsti fundur er boð- aður á morgun, föstudag,“ segir Bryndís Hlöðvers- dóttir ríkissáttasemjari um stöðu viðræðna um sátt á vinnumarkaði. „Það er ekki komin ákveðin niðurstaða í neitt en það eru ákveðin atriði sem formenn heildar- samtakanna eru að skoða inni í sínu baklandi.“ Aðilar vinnumarkaðarins hafa fundað stíft í húsa- kynnum ríkissáttasemjara undanfarið og er mark- miðið með fundunum meðal annars að koma í veg fyrir yfirvofandi verkföll og ná varanlegri sátt á vinnumarkaði. Bryndís segir þetta samtal engan veginn nýtilkomið, það hafi staðið yfir í um það bil tvö ár, en í það hafi færst ákveðinn þungi og búið sé að halda fimm fundi það sem af er september. „Það er dálítil pressa á okkur því langstærsti hluti opinbera markaðarins á eftir að semja, meira og minna öll sveitarfélögin og um helm- ingur starfsmanna hjá rík- inu, auk hluta af almenna markaðnum.“ Bryndís segir hug- myndina um að taka upp vinnumarkaðslíkan að norrænni fyrirmynd hafa verið uppi lengi en nú sé meiningin að koma henni í framkvæmd. Spurð hvað það þýði á mannamáli segir hún það felast í því að að- ilar á vinnumarkaði komi sér saman um ákveðið vinnulag við gerð kjara- samninga. „Það felst meðal annars í því að sammælast um hverjir það eru sem ákveði það svigrúm sem er til staðar í samfélaginu og síðan hangir auðvitað ýmis- legt fleira á þeirri spýtu. Það er verið að ræða breyt- ingar á vinnumarkaðslög- gjöfinni, og almennt bara stóru myndina í sambandi við vinnumarkaðinn og kjarasamningagerð.“ Spurð um hvort eitthvað sé hæft í orðrómi um breyt- ingar á lífeyrisréttindum í stað launahækkana segir Bryndís það vera eitt af því sem verið sé að ræða. „Það er hins vegar ekkert komið á það stig að hægt sé að segja frá því opinberlega. Það er ekkert samkomulag komið, við erum bara að ræða saman og það gengur ágætlega.“ friðrika benónýsdóttir fridrika@frettatiminn.is  vinnumarkaður stíFt Fundað hjá ríkissáttasemjara Bryndís Hlöðvers- dóttir ríkissátta- semjari er bjartsýn á viðræður aðila vinnumarkaðarins. Skoða breytingar á vinnumarkaðslöggjöfinni samræður aðila vinnumarkaðarins og ríkissáttasemjara um varanlega sátt á vinnumarkaði ganga vel, að sögn ríkissáttasemjara, en engin niðurstaða er enn í sjónmáli. meðal þess sem verið er að ræða er að koma upp vinnumarkaðslíkani að norrænni fyrirmynd. 4 fréttir Helgin 25.-27. september 2015

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.