Fréttatíminn - 25.09.2015, Blaðsíða 10
Sætar franskar
frá McCain
Sætu kartöflurnar frá McCain eru ómótstæðilega
bragðgóðar. Þú skellir þeim í ofninn og áður en þú
veist af hefurðu töfrað fram girnilegt og gómsætt
meðlæti. Prófaðu núna!
Vinsælar hjá Íslendingum í mörg ár
V ið eigum í harðri sam-keppni við Youtube, Netflix og fleiri veitur
og þurfum að vera á tánum og
hlusta á börnin og fjölskyldur
þeirra. Við erum að þjónusta
börnin og ef við gerum ekki
eins og þau segja þá töpum við.
Börnin fara bara að gera eitt-
hvað annað, þau fyrirgefa ekki
neitt,“ segir Sindri Bergmann
Þórarinsson, verkefnastjóri
Krakka-RÚV.
Stóraukin þjónusta
RÚV hyggst stórauka þjón-
ustu sína við börn á næstunni,
enda kannski ekki vanþörf
á eftir fremur mögur undan-
farin ár. Vefurinn Krakk-
aruv.is fer fljótlega í loftið en
þar verður að finna mikið af
barnaefni á íslensku, tölvu-
leiki og sitthvað fleira. Þá bæt-
ast við ný stafræn útvarpsstöð
fyrir börn og fréttaþáttur fyrir
börn í sjónvarpi.
„Það hefði mátt gera mikið
betur en að undanförnu, það
má reyndar alltaf gera betur,
en það kemur samt á óvart
hvað er til mikið af efni á safn-
inu,“ segir Sindri um framboð
RÚV af barnaefni undanfarin
ár.
„En við erum nú að stórauka
þjónustuna. Við erum þegar
búin að taka til yfir 1.600 mynd-
skeið úr safni og erum bara
komin aftur til ársins 2001.
Þarna er fullt af gullmolum
og við erum búin að semja um
lengri birtingartíma þannig að
allt verður aðgengilegt enda-
laust,“ segir hann.
Nýjar Krakkafréttir á
virkum dögum
Sindri segir að fyrsta skrefið
sé vefurinn Krakkarúv sem
sé sérstaklega hugsaður með
spjaldtölvur í huga. Allt efni
verður á íslensku og hægt
verður að flokka það eftir
aldursflokkum og tegund.
Auk safnaefnis verður fram-
leitt efni sérstaklega fyrir
vefinn, til að mynda föndur-
þættir og myndbönd sem
kenna krökkum gömlu góðu
útileikina. Þá verður hægt að
skyggnast á bak við tjöldin
þegar Ævar vísindamaður býr
til þætti sína.
„Svo hvetjum við krakka til
að senda okkur inn smásögur,
stuttmyndir og annað efni
og það á að vera stór þáttur í
starfsemi vefsins. Við viljum
hvetja til þess að sem flestir
Hyggjast stórauka efnisframboð fyrir börn
Framboð af barnaefni á íslensku hefur verið af skornum
skammti síðustu ár. Nú horfir til betri vegar og RÚV boðar
nýjan krakkavef með miklu úrvali af efni, útvarpsstöð fyrir
krakka og Krakkafréttir í sjónvarpi. Youtube-kynslóðin vill
styttra og hraðara efni en áður hefur verið framleitt hér
fyrir börn.
RÚV er ekki eina stöðin sem
hyggst auka framboð á íslensku
efni fyrir börn. Á Stöð 2 er hinn
gamalkunni Afi mættur aftur til
starfa og segir Jóhanna Margrét
Gísladóttir sjónvarpsstjóri að
fleira sé í bígerð.
„Í október fer glæný þáttaröð
með Skoppu og Skrítlu í loftið.
Hún var tekin upp í ágúst og það
verður gaman að fá alveg nýtt efni
frá þeim. Svo erum við alltaf að
reyna að bæta við nýjum talsett-
um teiknimyndaseríum. Talsetn-
ingar eru dýrar en það eru tvær
seríur sem við áætlum að koma í
loftið í vetur, stelpuvænar seríur.
Við erum líka að vinna í því að
koma barnaefni inn á Krakka-
maraþon, þar sem áskrifendur
geta sótt sér heilar þáttaraðir,“
segir hún.
Verður jóladagatal í ár?
„Við erum að horfa til þess að
vera með eitthvað nýtt en það er
ekki komið á hreint ennþá.“
Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir verða umsjónarmenn Krakkafrétta á RÚV í vetur. Hér eru þau með
Sindra Bergmann Þórarinssyni, verkefnastjóra Krakka-RÚV. Ljósmynd/Hari
Þær verða á dagskrá Sjónvarpsins
klukkan 18.50 fjóra daga vikunnar.
„Þau munu setja málefni líðandi
stundar fram á skýran og mynd-
rænan hátt fyrir börn og ungt
fólk. Þau munu segja frá því sem
gerist í heiminum og setja það inn
í veruleika barna. Það eiga allir
rétt á því að skilja þessi hugtök og
frasa sem dynja á okkur á hverjum
degi, hvort sem það er hlýnun
jarðar, verðbólga, Alþingi eða
stýrivextir. Ég er nokkuð viss um
að þetta mun gagnast mörgum,“
segir Sindri.
Snjallkrakkar vilja styttra og
hraðara efni
Fleira verður í boði fyrir krakka
á RÚV þennan veturinn. Stafræn
útvarpsstöð fer í loftið, ný þátta-
röð um íþróttir barna og unglinga
auk þess sem Ævar vísindamaður
verður á sínum stað og Stundin
okkar sömuleiðis.
Sindri segir að við undir-
búning þessara breytinga hafi
verið tekið mið af því sem nýtur
vinsælda í dag. „Við erum að
horfa á hvað er að gerast á
Youtube og víðar. Það er verið
að biðja um styttra og hraðara
efni. Kjarnahópur okkar eru
börn á aldrinum 2-12 ára og ég
hef kosið að kalla þennan hóp
snjallkrakka. Það breytist allt
svo hratt og þau upplifa heim-
inn á allt annan hátt en ég gerði
sem barn.“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Hvað gera hinir?
finni snilligáfu sinni farveg og uppgötvi
eitthvað nýtt,“ segir Sindri.
Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir leikkona
og Guðmundur Björn Þorbjörnsson,
sem starfað hefur á fréttastofu RÚV að
undanförnu, munu verða umsjónarmenn
Krakkafrétta sem fara í loftið 5. október.
10 fréttaviðtal Helgin 25.-27. september 2015