Fréttatíminn - 25.09.2015, Síða 19
ERREA
„Það er varla hægt að hafa
skoðun á þessari treyju hún er svo
venjuleg.“ (GJ)
„Hvað í fjáranum
er þetta Errea?“
(GV)
„Þessi treyja
væri fín í rækt-
ina, en ekki
fyrir landsliðsmenn
sem ætla sér stóra
hluti úti á vellinum.
Í rauninni yrðu þeir
nánast ósýnilegir í
svona búningum og
það er ekki gott veganesti fyrir EM
í Frakklandi.“ (KG)
„Hér erum við að tala sama
tungumálið. Einfaldur og
klæðilegur.“ (ÁP)
„Í raun eins líflaus
og Lotto treyjan en
vantar línuritið. Veit
ekki hvort er að
verra að reyna að skreyta
dauðann með línunni eða
sleppa því. Í raun er þetta
táknmynd þeirrar óánægju
sem hefur verið með Errea
treyjurnar.“ (EG)
ERREA
„Þessi er líklega ljótust.“ (GJ)
„Ég endurtek: Errea?“ (GV)
„Lið sem spilar í svona treyjum er búið að
tapa fyrirfram, 10-0.“ (KG)
„Mætti vera fallegra, þessar doppur eru
ekki að gera neitt.“ (ÁP)
„Það gæti verið flott að setja mynstur inn í
treyjuna, t.d. skjaldarmerkið sem nokkurs
konar vatnsmerki. En
að setja þetta
tilgangs-
lausa
mynstur,
sem á
frekar
heima
á umbúðum
frá þýsku
lyfjafyrirtæki,
er algerlega
bannað.“ (EG)
JAKO
„Nei, nei, nei, Ísland fer ekki í firmat-
reyjurnar frá Jako. Engin ástæða til að fara
úr öskunni í eldinn.“ (EG)
„Nei takk. Ekki orð um það meir.“ (ÁP)
„Allt, allt of firmaboltaleg treyja. Myndi þó
henta bumbuboltaliði starfsfólks Húsa-
smiðjunnar við Súðavog afar vel.“ (KG)
„Jako? Getum við ekki bara haldið okkur
við Adidas? Nike? Eitthvað merki sem ég
mögulega get borið kennsl á.“ (GV)
„Þessi
búningur
er mjög
óspenn-
andi eins
og flest
sem
kemur frá
JAKO.“
(GJ)
HUMMEL
„Ég er mikill Hummel maður en þessi
treyja á bara heima í lyftingarsalnum eða í
veggtennis.“ (EG)
„Merkið fremst pirrar mig. Sniðið er ágætt,
stuttar ermar og aðsniðið en hönnunin
misheppnuð. Þessi ljósblái litur á öxlunum
er óþarfi.“ (ÁP)
„Einn mesti skandall íþróttasögunnar átti
sér stað þegar danska landsliðið hætti
að spila í Hummel-treyjum og skipti fyrir
í Adidas fyrir um áratug síðan. Ég veit
hins vegar ekki með þessa. Hún er dálítið
leiðinleg. Skellið Hummel-röndunum niður
ermarnar og þá skal ég hugsa málið.“ (KG)
„Þetta er eins og undirkjóll úr bláu silki.
Nei, ég segi nei!“ (GV)
„Hef ekki skoðun á þessu.“ (GJ)
ADIDAS
„Þessi búningur er fallegur, en það er auðvelt að
segja það þar sem hann höfðar til fortíðarþrá-
hyggju. En fallega einfaldur og
vel heppnað hálsmál.“
(GJ)
„Minnir mig á
útjaskaða Adidas-
bolinn sem ég
sef í. Þessi er ekki að
gera neitt fyrir mig.“ (GV)
„Maður sér hreinlega
fyrir sér Atla Eðvalds, Pétur
Ormslev, Ragga Margeirs
og fleiri hetjur spæna upp
völlinn í svona búningum.
Ef gamla KSÍ-lógóið yrði sett á þessa treyju í stað
hins nýja og gamla Adidas-merkið líka, væri þessi
treyja nálega fullkomin og varla hægt að gera
betur.“ (KG)
„Eftir að hafa pælt aðeins í fótbolta-
búningum í gegnum tíðina hefur Adidas
yfirleitt haft vinninginn. Ástæðan
er líklega sú að þeir hafa náð að
halda vel í klassíkina og ekki verið
að reyna of mikið að finna upp hjólið.
Rendurnar þrjár virka og þessi búningur er
retró með V-hálsmálinu. Þessi á vinninginn að
mínu mati.“ (ÁP)
„Þessi treyja er klassísk Adidas en það er samt
svo margt sem gengur ekki upp. Ég myndi
gjarnan vilja sjá landsliðið í flottri Adidas treyju
en þessi er bara ekki flott.“ (EG)
fótbolti 19 Helgin 25.-27. september 2015
Fleiri möguleikar
í hraðbönkunum okkar
Í hraðbönkum í útibúum okkar geta
viðskiptavinir lagt inn seðla og tekið
út allt að 300.000 kr.
Arion hraðþjónusta
– hafðu það eins og þú vilt
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
1
5
-1
9
9
2